Vilji - 01.12.1928, Síða 19

Vilji - 01.12.1928, Síða 19
VILJI 167 götva hjá sjer skapandi og lýsandi hæfileika, og fá síðan þá þráhyggju í höfuðið, að þeir sjeu kallaðir sem slíkir. En skáldin eru nauðsynleg mannkyninu, sem siða- fræðarar og vandlætarar, því að ef þau væru ekki til, að rumska við lýðnum myndi hnefarjettur og hörmung- ar ríkja í heimi öllum. Hitt atriðið, að skáldin verði oft geðveik, af engu eða litlu, er ekkert sjereinkenni þeirra, en þó svo væri gæti það auðveldlega stafað af taugaveiklun og líkams- bilun eins og áður er sagt, eða af hinu, að sellur heilans hafa visnað og hætt að starfa á rjettan hátt sökum þroska annara, sem hafa haft meginstarf mannsins á höndum sjer, ef svo mætti segja, enda hafa ýms geðveik skáld skrifað fáránlegustu sögur og kvæði á vitfirringa- hælum, og virðist þar ímyndunaraflið eitt leika laus- um hala. Nú hefi jeg aðeins borið eina stjett afburðamanna, það er að segja hin sönnu skáld, saman við aðra heil- brigða menn, sem ekki eru sjerkennilegir að neinu leyti, og munurinn hefir reynst frá sálarfræðilegu sjónarmiði skoðað, harla lítill. Hann virðist aðallega í því fólginn, að skáldin og allir aðrir afburðamenn, sökva sjer dýpra niður í verkefni sitt; kryfja það til mergjar og hugsa ekki um annað. Þannig hafa allir skynugir og skyn- samir menn köllun og möguleika á því, að teljast til útvaldra og ráða gátur tilverunnar, — ef þá brestur eigi þolinmæði og samviskusemi til þess. Kristján Guðlaugsson.

x

Vilji

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.