Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 20

Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 20
168 VILJI Smalinn. Hann mitt í blómskrýddri brekku situr þars bláir lækir með straumnið falla. Á túnum glóir hinn guli litur, og grænkan liðast um hlíðir fjalla. Um bláhvolf himinsins sólin svífur og signir hjalla af fegurð ríka. En söngur smáfugla hugann hrífur, svo hjörðin gleymist — og tíminn líka. Hann gleymir skyldum og bóndans banni, — í blástör engjanna hjörðin rennur — því heimar opnast hans innra manni og alt, sem fjötrar í sundur brennur. Söngur fuglanna, fossins niður, sem fiðluhljómur í eyrum lætur, og sál hans gagntekur gleði og friður, sem gefur djörfustu vonum rætur. Hann dreymir lengi um daga bjarta, uns dagsól hverfur við efstu gnípur. Þá berst af útþrá hans unga hjarta, og æskumóðurinn sál hans grípur. Hann finnur eldinn í æðum bruna, sem ógnarbál gegnum hjartað þjóti. Hann finnur blóðið í brjósti funa og brosir vonglaður framtíð móti. Guðlaugur Lárusson.

x

Vilji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.