SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 6
R
auði herinn frá Liverpool er með böggum
hildar. Ósigrar eru óvelkomnir þar um slóðir,
að ekki sé talað um fjóra í röð. Áratugir skilja
að ófarir af því tagi. Liverpool var síðast í
þessum sporum vorið 1987. Eftir að hafa gjörsigrað Hull
City, 6:1, á Anfield í lok september hefur liðið legið gegn
Fiorentina og Lyon í Meistaradeild Evrópu og Chelsea og
Sunderland í ensku úrvalsdeildinni. Verður „svarti
október“ botnaður gegn erkifjendunum í Manchester
United í dag, sunnudag?
Á síðustu sparktíð laut Liverpool aðeins tvívegis í gras í
38 deildarleikjum. Liðið hefur þegar tapað fjórum af
fyrstu níu deildarleikjum sínum á þessum vetri og er á
framandi slóðum í töflunni, áttunda sæti. Svo neðarlega
hafa stuðningsmenn félagsins ekki þurft að renna aug-
unum lengi. Er nema von að menn séu uggandi.
Bent hefur verið á meiðslavandræði sem skýringu á
þessu ógengi og vissulega hafa heilbrigðisstarfsmenn á
Anfield haft í ýmsu að snúast að undanförnu. Til að
mynda eru tveir bestu leikmenn liðsins, Steven Gerrard
og Fernando Torres, frá þessa dagana. Fjarvera manna af
því tagi veikir vitaskuld öll lið en veruleikinn er hins
vegar sá að Torres hefur leikið fjóra af sex tapleikjum
Liverpool í haust og Gerrard fimm. Að vísu haltraði fyr-
irliðinn af velli eftir 25 mínútur gegn Lyon.
Það breytir ekki því að mestur glans fer af Rauða hern-
um þegar Gerrard og Torres eru fjarverandi. Aðrir leik-
menn hinnar sögulegu sveitar standa þeim óþægilega
langt að baki í getu. „Það eina sem er spennandi við Liv-
erpool án Gerrards og Torresar er auglýsingin framan á
búningnum,“ sagði sparkvís maður sem greinarhöf-
undur hitti á förnum vegi á föstudag. Og þeim samningi
hefur verið sagt upp!
Þung orð en hnitmiðuð
Þetta eru þung orð fyrir Púlara að kyngja en hættulega
hnitmiðuð. Yossi Benayoun hefur að vísu staðið sig von-
um framar á Anfield en aðrir eru eftirbátar hans. Javier
Mascherano er þróttmikill en takmarkaður. Lucas Leiva
hefur ekki sýnt að hann eigi erindi í ensku knattspyrn-
una, ekki heldur Andriy Voronin. Ryan Babel virkar bara
þegar hann kemur inn á og David Ngog er ekki tilbúinn.
Dirk Kuyt er duglegur. Þá er vörnin hvergi nærri eins
traustvekjandi og oft áður.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þau
gömlu sannindi hafa stuðningsmenn Liverpool fært
heim á Xabi Alonso að undanförnu. Vissulega var hann
mörgum Púlaranum kær en aðrir höfðu minni mætur á
honum, þótti Spánverjinn hægja um of á leik liðsins.
Ýmsir spyrja sig hvort hann hafi verið bindingin sem
ekki mátti bresta. Arftaki Alonsos, Alberto Aquilani, er
að verða klár í slaginn en enginn veit hvernig hann kem-
ur til með að duga. Ítalinn lék að meðaltali átján deild-
arleiki á vetri síðustu fjögur árin hjá Roma.
Í þessu ljósi kemur ekki á óvart að Rauði herinn hafi
oft verið bjartsýnni en nú fyrir glímuna við höfuðand-
stæðing sinn, Manchester United, á Anfield. Skjótt skip-
ast veður í lofti, Liverpool lagði United í tvígang á liðinni
leiktíð – það án Gerrards og Torresar á Anfield.
Rauðu djöflarnir frá Manchester eru ekki árennilegir
fremur en endranær. Þeir sitja makindalega á toppi úr-
valsdeildarinnar, með 22 stig úr níu leikjum. Ýmsir
bjuggust við að það tæki þá Fergusyni tíma að venjast
brotthvarfi viðundursins Cristianos Ronaldos en eftir
belglendingu í Burnley í byrjun móts hafa þeir verið í
vargaformi. Unnið sex deildarleiki og gert eitt jafntefli.
Gamlar og nýjar stjörnur hafa spýtt í lófana. Ryan
Giggs hefur ekki leikið betur í heilan mannsaldur,
Wayne Rooney er í jötunlíki og einu gildir hver leikur á
miðjunni, Fletcher, Carrick, Anderson, Scholes. Allir
vinna þeir sem einn maður. Þá eru nýju mennirnir farnir
að láta að sér kveða. Antonio Valencia hefur skorað í
tveimur síðustu leikjum og hvað gerir Michael Owen í
sínum gamla helgidómi? Menn ættu þó að hafa gömul og
holl ráð í huga: Sært ljón er ekki sjálfgefin bráð.
Líf er púl
Allt gengur á aftur-
fótunum hjá
Liverpool fyrir risa-
slaginn gegn Man-
chester United
Reuters
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Dirk Kuyt og Pepe
Reina ganga bognir af
velli eftir ósigurinn
gegn sprækum Lyon-
istum í vikunni. Von-
brigðin leyna sér ekki.
6 25. október 2009
Leikmönnum Liverpool hafa ekki
aðeins verið mislagðir fætur í úr-
valsdeildinni á þessu hausti, liðið
er í afar erfiðri stöðu þegar keppni
er hálfnuð í riðlum Meistaradeildar
Evrópu. Hefur aðeins hlotið þrjú
stig úr jafnmörgum leikjum. Liver-
pool hefur lotið í gras gegn Fiorent-
ina og Lyon en náði að merja sigur
á ungversku meisturunum, Debre-
ceni, á Anfield. Framundan eru úti-
leikir í Frakklandi og Ungverjalandi
og þá þarf Liverpool helst að
vinna, a.m.k. ná fjórum stigum til
að tryggja sér úrslitaleik gegn Fio-
rentina um annað sætið. Það verð-
ur ekki létt verk.
Liverpool er ekki óvant að fara
Krísuvíkurleiðina í Meistaradeild-
inni. Fyrir tveimur árum var liðið
aðeins með eitt stig eftir þrjá leiki og öll sund virtust lokuð. Þá rann
æði á menn. Fyrst var Besiktas tekið til bæna, 8:0, þá Porto 4:1 og
loks Marseille á útivelli, 4:0. Rauði herinn brautskráðist með láði,
þremur stigum á undan Marseille sem hafnaði í þriðja sæti en
franska félagið fékk ekki stig í seinni umferðinni.
Nú þarf Liverpool aftur á Houdini-tilþrifum af þessu tagi að halda.
Manchester United með algjöra yfirburði í sínum riðli
Annar bragur hefur verið á leik Manchester United í Meistaradeildinni.
Þrír leikir, þrír sigrar. Það er engu líkara en Sir Alex Ferguson hafi stillt
á „auto-pilot“, liðið gerir það sem gera þarf, hvorki meira né minna.
Allir leikirnir hafa unnist með einu marki. Enda er það nóg.
Rauðu djöflarnir eru með heljartök á riðlinum, fimm stigum á undan
Þýskalandsmeisturum Wolfsburg, og bóka að óbreyttu farseðilinn í
sextán liða úrslitin með sigri á CSKA Moskvu á Old Trafford í næstu
umferð. Kannski Rússarnir verði teknir með tveimur mörkum – til
gamans.
Ólíkt hafast þau að í Evrópu
Ryan gamli Giggs hefur verið
hamrammur á þessu hausti.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Kanarí
Aðeins örfáar íbúðir í boði!
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanarí-
eyjum 24. nóvember í 25 nætur á frábæru tilboði.
Í boði er m.a. frábært stökktu tilboð þar sem þú
bókar flugsæti og gistingu og fjórum dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir (stökktu tilboð
með „öllu inniföldu“ jafnframt í boði). Einnig bjóð-
um við hið vinsæla Jardin del Atlantico íbúðahótel
með öllu inniföldu á hreint ótrúlegum kjörum.
24. nóvember – frá kr. 99.900
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Ótrúleg s
értilboð!
*** Jardi
n Atlantic
o ***
með „öll
u inniföld
u“
Verð kr. 99.900
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó /
íbúð í 25 nætur. Stökktu tilboð 24. nóvember.
Aukalega m.v. stökktu tilboð með "öllu inniföldu"
kr. 50.000. Aukalega m.v.2 í íbúð á Jardin del
Atlantico með "öllu inniföldu" kr. 60.000.
Frá kr. 149.900 – með „öllu inniföldu“
25 nátta ferð