SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 36
Kvikmyndir
36 25. október 2009
Það gengur mik-
ið á í gamanhroll-
vekjunni Zom-
bieland. En
einnig á frumsýn-
ingum erlendis,
þar sem fólk
klæðir sig upp
sem lifandi
dautt. Myndin
verður frumsýnd
hér á landi um
næstu helgi.
Í landi hinna
lifandi dauðu
Leikarinn Jesse Eisenberg varð 26 ára í október
og er háaldraður í samanburði við mótleikkon-
una Abigail Breslin. Hún er aðeins 13 ára, en hef-
ur þegar verið tilnefnd til óskarsverðlauna.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Þ
egar símtalið hefst við Abigail Breslin,
þá stendur hún í þeirri trú að hún sé
að tala við írskan blaðamann og byrjar
þegar að rekja ættir sínar til Írlands.
Blaðamaður flýtir sér að leiðrétta hana, segir
þjóð sína vissulega eiga ætt sína að rekja til Ír-
lands, en hann búi á öllu norðlægari eyju, nefni-
lega Íslandi.
„Það er mjög svalt,“ segir hún hikandi. Svo
tekst henni að finna eitthvað uppörvandi við
uppruna blaðamanns:
„Þú ert fyrsti Íslendingurinn sem ég tala við!“
Platar strákana
Breslin er enginn nýgræðingur í kvikmyndaleik,
þrátt fyrir ungan aldur. Hún var tilnefnd til ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni Little
Miss Sunshine frá árinu 2006, aðeins tíu ára
gömul. Og þá var hún þegar orðin sjóuð í kvik-
myndaleik, en fyrsta hlutverkið var í Táknum
leikstjórans M. Night Shyamalans árið 2002, þar
sem pabbi hennar var leikinn af ekki ófrægari
manni en Mel Gibson.
Fyrr á árinu var svo sýnd afar áhrifamikil en
dásamleg mynd í íslenskum kvikmyndahúsum,
Á ég að gæta systur minnar. Í sögunni hefur
eldri systirin glímt við hvítblæði og sú yngri,
sem leikin er af Breslin, neitar að fara í enn eina
líffæragjöfina til að hjálpa henni, og ræður sér
lögfræðing. Glímt er við ótal grundvallarspurn-
ingar í myndinni um siðferði og tilgang jarðlífs-
ins, en lítið fer fyrir því í Zombieland.
Það liggur því beint við að spyrja hvers vegna
hún tekur á sig þennan krók. „Ég vildi leika í
myndinni, af því að mér líkaði handritið, sögu-
persónurnar, ekki síst sú persóna sem ég leik,
Little Rock. Hún er hörð af sér, hugrökk, platar
strákana og kann að bjarga sér.“
– Horfirðu á hrollvekjur?
„Já, já, ég geri það. En ég lít frekar á þetta sem
gamanmynd.“
– Eru hrollvekjur ekki bannaðar innan 17 í
Bandaríkjunum?
„Jú, en það er í lagi ef einhver eldri horfir á
þær með manni.“
– Hvernig býr maður sig undir að leika á móti
lifandi dauðum?
„Ég held það sé ekki hægt að undirbúa sig
fyrir það sérstaklega. En ég varð þó að læra að
skjóta af byssum og það var ógnvekjandi upp-
lifun. Ég þurfti að fylgja ströngum öryggis-
reglum – og standa í lappirnar!“
– Þú komst af fjöllum í myndinni, en hafðirðu
sjálf heyrt Bill Murray getið?
„Já,“ segir hún og hlær. „Ég hafði séð mynd-
ina What About Bob og þar var hann ótrúlega
fyndinn.“
– Þú ert farin að leggja í vana þinn að leika í
góðum myndum; hvernig velurðu þær?
„Takk fyrir það,“ segir hún hlýlega. „Ég vel
myndirnar út frá því, að ég vilji kynnast persón-
unni betur, sagan sé góð og þetta hljómi
skemmtilegt.“
Hef gaman að búðarrápi
– Á ég að gæta systur minnar er dásamleg mynd;
veitti hún þér innblástur?
„Ég þekki fólk sem hefur gengið í gegnum þá
lífsreynslu. Afi fékk krabbamein og maður sækir
í þann reynslusarp. Svo var Nicole okkur innan
handar á tökustað [táningur af City of Hope
meðferðarstofnuninni], en hún hefur glímt við
krabbamein og gat miðlað okkur af sinni per-
sónulegu reynslu.“
– Varstu undrandi á þeim miklu viðbrögðum
sem Little Miss Sunshine fékk á sínum tíma?
„Já, það var algjört brjálæði, en afar skemmti-
legt. Og ég naut þess að leika í myndinni.“
– Hvar finnurðu tíma til að leika í bíómynd-
um – er ekki fullt starf að vera þrettán ára?
„Það er ekkert mál. Ég hef nóg fyrir stafni inn
á milli. Stundum höldum við hrollvekjukvöld,
þar sem við sofum saman vinkonurnar, og horf-
um á margar hryllingsmyndir í röð. Ég hef líka
gaman að búðarrápi. Ég er núna í Barselóna,
verslaði heilmikið í gær og ætla að versla aftur í
dag.“
– Hvað svo, leggurðu leiklistina fyrir þig?
„Það getur vel verið. Annaðhvort það eða að
verða dýralæknir.“
Verð leikkona
eða dýralæknir
Abigail Breslin heldur reglulega hrollvekjukvöld
með vinkonum sínum – og einhverjum fullorðnum!