SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 10
10 25. október 2009 Í hvert skipti sem ég hef vikið svo mikið sem einu orði að Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í pistlum mínum hefur slíkt kallað á mikil viðbrögð, bæði neikvæð og jákvæð – einkum þó jákvæð. Ég hef fundið að um land allt á ég skoðanasystkin, þegar ég held því fram að þjóðin sé fyrir margt löngu búin að fá sig full- sadda á lýðskrumi, yfirborðsmennsku og tvískinnungi forsetans, og það sé nánast óbærileg tilhugsun að forsetinn ætli sér að hengslast í embætti í næstum heil þrjú ár í við- bót. Skoðanasystkin mín eru há sem lág, sauðsvartur al- menningur og þjóðþekktir einstaklingar, og sama máli gildir um hin, sem eru algjörlega á öndverðum meiði við mig, í mínu mjög svo takmarkaða áliti á forsetanum. Þessu finnst mér rétt að halda til haga strax í upphafi. Vegna hinna sterku viðbragða sem gagnrýni á forsetann virðist vekja hef ég einatt eftir forsetaskrif, sem nota bene hófust af minni hálfu hér á síðum Morgunblaðsins sumarið 1996, þegar Ólafur Ragnar var kosinn forseti, hugleitt að nú væri nóg komið. En svo gerir forsetinn alltaf nýtt og nýtt axarskaft, aftur og aftur. Því sjáið þið enn eina kveðju mína til ábúandans á Bessastöðum, lesendur góðir, og ég lofa engu um að hún verði sú síðasta. Það sem kveikti í pirringsstöðvum heilans að þessu sinni voru orð og æði forsetans, fyrst í Spegli Ríkisútvarpsins fyrir rúmri viku, hinn 16. október, og svo aftur í viðtali við Sölva Tryggvason á Skjá einum á miðvikudagskvöldið í þessari viku. Í viðtali Kristins Hrafnssonar fréttamanns í Speglinum við forsetann tókst Kristni með herkjum að skáskjóta inn örfáum spurningum um þá hörðu gagnrýni sem forsetinn, helsta klappstýra útrásarvíkinganna undanfarin ár, hefur mátt sæta. Orðavaðall forsetans snerist einkum um þann samhug, velvilja, jákvæða áhuga, samveru, gleði og sam- hjálp, sem hann hefði orðið var við hjá fólkinu í landinu á undanförnum 12 mánuðum. Loksins þegar forsetinn vék svona í eins konar framhjáhlaupi að ítrekaðri spurningu Kristins um þá hörðu gagnrýni sem hefði beinst að honum sagði forsetinn orðrétt: „Ja, það hljómar kannski skrýtið að svara þessari spurningu neitandi, en ef ég á að svara henni sannleikanum samkvæmt, þá er bara svarið nei.“ Jahá! „Sannleikanum samkvæmt“ sagði forsetinn. Veit hann hvað er að svara sannleikanum samkvæmt? Er for- setinn algjörlega sambandslaus við fólkið í landinu, eða kann hann ekki að skammast sín? Ég hallast að því að Ólafur Ragnar sé hvorki blindur né heyrnarlaus, þannig að svar mitt við eigin spurningu er: Ólafur Ragnar kann ekki að skammast sín. Aðeins síðar í Spegilsviðtalinu sagði Ólafur Ragnar: „Ég vík mér ekkert undan gagnrýni hvort sem hún birtist í persónulegum samskiptum eða annars staðar. En það er eins satt og ég get best greint frá að þegar er farið eins og ég hef gert … þá verð ég ekki var við þessa gagnrýnisöldu eða þennan hamagang út í forsetaembættið eða mig.“ Hið sanna er, að Ólafur Ragnar víkur sér alltaf undan gagn- rýni, drepur henni á dreif og talar um A þegar gagnrýn- endur spyrja hann um B. Í viðtali Sölva við forsetann á Skjá einum kom þetta eiginlega enn betur í ljós en í Spegl- inum. Ég hvet lesendur sem „misstu“ af Speglinum hinn 16. október sl. að hlusta á hann á fréttavef RÚV og sömuleiðis hvet ég þá til þess að horfa og hlusta á viðtal Sölva við for- setann miðvikudagskvöldið 21. október sl. á heimasíðu Skjás eins. Dæmi svo hver fyrir sig. Ólafur Ragnar Grímsson, ein helsta klappstýra útrás- arvíkinganna, sem hefur á kostnað banka og stórfyrirtækja ferðast í einkaþotum þeirra, þegið fríðindi og veislur af sömu mönnum, flutt makalausar þjóðremburæður út um allan heim um hina glæstu bankamenn sem allt kunnu öðrum betur, verið umfjöllunarefni í gríðarlegum lof- gjörðardoðranti Guðjóns Friðrikssonar um forsetann – doðranti sem vitanlega var fjármagnaður af hinum föllnu einkabönkum, er enn við sama heygarðshornið. Hann var í góðri trú. Hvar værum við stödd hefði forsetinn verið í vondri trú?! Er Ólafi Ragnari Grímssyni sjálfrátt? Agnes segir Agnes Bragadótir agnes@mbl.is 6.15 Augun opnast í Skarðs- hlíðinni á Akureyri og Hrefna Þorbergsdóttir sprettur á fætur. Hún byrjar daginn yfirleitt á því að fá sér ristað brauð og kaffi, jafnvel ávöxt. „Svo labba ég hingað oneft- ir,“ segir hún þegar blaðamaður truflar hana við færibandið í vinnslusal Brims, þar sem einu sinni hét Útgerðarfélag Akur- eyringa. „Ég er alltaf komin hingað rétt fyrir sjö.“ Vinnudagurinn hefst á slag- inu. Þá byrja þær að snyrta flökin, standa margar við færi- bandið. Þorskurinn þokast nær. Eftir snyrtingu er hann léttsalt- aður og sendur til Spánar. Með roðinu að þessu sinni. Kreppan, launin, fiskeríið Þetta er svo sem engin truflun. Hrefna heldur áfram að snyrta fyrir Spánverjana eins og ekkert sé þótt blaðamaður tylli sér á tá við hlið hennar. Hún kann réttu handtökin. Hefur verið hérna í röska þrjá áratugi, síðan ’78. Hrefnu finnst gott að ganga í vinnuna. „Ég er ekki nema rúmar tíu mínútur á leiðinni. Strákurinn minn er í Mennta- skólanum og vill hafa bílinn; ég lofa honum það, að minnsta kosti á meðan veðrið er svona gott.“ Bjallan hringir í fyrsta skipti þegar klukkuna vantar tuttugu mínútur í níu, eins og alla aðra vinnudaga. Þá er gert 20 mín- útna hlé og þær Hrefna skunda upp í matsal. „Við fáum okkur kaffi og spjöllum saman. Ég held að allir séu búnir að fá upp í háls af umræðunni um ástand- ið, en samt er talað um það.“ Ennþá, bætir hún svo við. Kannski vegna þess að fólk er ekki sammála. „Við tölum um allt milli him- ins og jarðar; kreppuna, launin okkar, fiskeríið.“ Aftur er hringt klukkan ell- efu. Kaffisopi á efri hæðinni á ný og örstutt spjall. Þegar klukkan slær tólf er enn hringt. „Í hádeginu er alltaf eldað hér uppi og hægt að fá ódýran mat, ýmist kjöt eða fisk. Venjulegan, góðan heim- ilismat.“ Það er ekki bara snyrt, þær njóta þess að hlusta á útvarpið í heyrnartólunum og spjalla líka saman við vinnuna. „Já, já, við tölum saman. Þetta eru ekki þrælabúðir! Starfið er einhæft en það er gott að hafa vinnu í þessu árferði,“ segir hún. „Mér líkar mjög vel að vinna hér og hefur alltaf gert. Það var aldrei neitt vesen að fá frí ef krakkarnir voru lasnir; hér er stór og góður hópur sem hjálp- ast að.“ Vanagangur Hádegishléið er hálftími. „Sum- ar hætta klukkan tólf og aðrar koma hálfeitt og eru til fimm, þegar er aukavinna. Annars hættum við tíu mínútur yfir þrjú.“ Þá daga sem Hrefna vinnur til rúmlega þrjú reynir hún að brjóta upp hversdaginn að vinnu lokinni. „Ég fer oft á flakk; í verslanir, sest á kaffihús eða fer í heimsóknir. Lífið geng- ur sinn vanagang; þetta er ósköp venjulegt.“ Þegar vinnudagurinn er til fimm heldur hún oftast beint heim. „Þá er ég ekki komin heim fyrr en hálfsex, fer í sturtu og byrja svo að elda. Við borðuðum að vísu óvenju snemma í dag því strákurinn fór á handboltaleik. Eftir mat- inn fór ég aðeins í tölvuna. Strákurinn stofnaði fyrir mig síðu á Facebook; mér finnst gott að vera þannig í sambandi við stelpuna mína sem býr fyrir sunnan.“ Eftir þrjú símtöl er hún sest fyrir framan sjónvarpið. Fram- undan er umfjöllun um mat. „Þau eru á sama tíma, Jóhanna Vigdís og Jói Fel.“ Efnið vekur áhuga Hrefnu og hún vill af hvorugu missa. „Ég horfi á Jóa fyrst á Stöð 2 og svo Jóhönnu á plúsnum.“ Hrefna er aldrei með neitt á prjónunum en les mikið. Að- allega reyfara. „Ég kíki í Séð og heyrt þegar ég fer í klippingu en heima les ég reyfara.“ Ljósið er yfirleitt slökkt í Skarðshlíðinni á milli ellefu og tólf. Reyfarinn er þá lagður á náttborðið og augun aftur. skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þetta er ósköp venjulegt Dagur í lífi fiskverkakonunnar Hrefnu Þorbergsdóttur Hrefna Þorbergs- dóttir við færibandið í vinnslusal Brims. Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is Gleym mér ei
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.