Organistablaðið - 01.09.1972, Blaðsíða 21
Tónleikar í Reykjavík
Langholtskirkja.
Kór Langholtskirkju, ásamt barna-
kór Arbæjarskóla héldu tónleika í
Langholtskirkju 29. apríl og í BústaSa-
kirkju 30. apríl. Einsöngvari var Ólöf
Harðardóttir, orgelleikari Gústaf Jó-
hannesson og stjórnandi Jón Stefáns-
son. Á efnisskránni voru eftirtalin
verk: 4 negrasálmar, 6 sálmalög í út-
setningu Distlers, Missa Dorica eftir
Joseph Ahrens, 130. sálmur Davíðs
eftir Kaminsky, auk stuttra verka eftir
Josquin Des Pres. Palestrina, Home-
lius og Jacoh Arcadelt.
Hallgrimskirkja.
Kór Hallgrímskirkju hélt vorhljóm-
leika sina 14. maí. Einsöngvari með
kórnum var Ólöf Harðardóttir, fiðlu-
leikari Rut Ingólfsdóttir, flautuleik-
ari Halldór Pálsson og orgelleikari
Martin Hunger. Stjórnandi hljómleik-
anna var Páll Halldórsson. Auk þess
kom barnakór undir stjórn Hallgríms
Jakobssonar fram á tónleikunum. —
A efnisskránni var íslenzk tónlist eftir
Róbert A. Ottósson, Pál ísólfsson, Carl
Ryden, Ólaf Þorgrímsson og FriSrik
Rjarnason. Einnig var flutt kóralkan-
'ata eftir Helmut Bornefeld, Ave
Maria eftir Arcadelt og sálmaútsetn-
Jng eftir Runbáck. Tvö orgelverk voru
a efnisskránni: Dorisk toccata eftir
J- S. Bach og Partita eftir Pepping.
Laugarnessókn — Ássókn.
1. júni voru sameiginlegir tónleikar,
sem kórar þessara sókna stóðu að.
Þeir voru haldnir í Laugarneskirkju.
Einsöngvarar voru Sólveig M. Björling
°g Halldór Vilhelmsson. FiSluleik ann-
aSist Þorvaldur Steingrímsson. Orgel-
¦eikari var Gústaf Jóhannesson. Stjórn-
endur vom Kristján Sigtryggsson og
Gústaf Jóhannesson. Á efnisskránni
voru aríur og orgelverk eftir J. S.
Bach, 3 kórlóg eftir Pál ísólfsson,
Einnig voru á efnisskránni þáttur
úr messu eftir Mozart og Sköpuninni
eftir Haydn.
Stabal Mater.
4. maí flutti Oratoriukórinn, ein-
söngvarar Svala Nilsen, GuSrún Á.
Simonar, Magnús Jónsson og Jón Sig-
urbjörnsson, Karlakór Reykjavíkur og
Sinfóniuhljómsveitin, Stabat Mater
eftir Antonin Dvorák. Stjórnandi
þessara hljómleika, sem fóru fram í
Háskólabíói, var Ragnar Björnsson
dómorganisti.
Úr bæ og byggð.
Frá Eyrarbakkakirkju.
ASjangadag jóla var haldin jólavaka.
Unglingar fluttu spádómsorð um komu
Krists úr Gamla testamentinu og sr.
SigurSur Pálsson, vígslubiskup á Sel-
fossi, las jólaguðspjallið. Kirkjukórinn
söng mótettu eftir Prætórius, gregor-
ianskt Gloria in excelsis o. fl. Kirkju-
gestir sungu sálmana. Orgeltónlist
eftir Bach (Aðventu- og jólaforspil,
aðallega úr Orgelbiichlein, var flutt
milli atriða.
A jbstudaginn langa var samfelld dag-
skrá með lestri píslarsögunnar aS
uppistöðu. Unglingar lásu úr Passíu-
sálmum og Davíðssálmum. Flutt voru
orgelverk eftir Gg. Böhm, Joh. Pac-
helbel og þættir úr Orgelmesse eftir
Bach. Stuttar skýringar voru lesnar
meS tónverkum. AS lokum sungu
allir kirkjugestir „Son GuSs ertu meS
sanni."
Annan í hvítasunnu var fermingar-
ORGANISTABLAÐIÐ 21