SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Blaðsíða 24
24 20. desember 2009
Á
sdís Rán eyðir jólunum hér á Íslandi
ásamt fjölskyldu sinni. Hún býr í Búlg-
aríu ásamt eiginmanni sínum, Garðari
Gunnlaugssyni knattspyrnumanni, og
börnum þeirra. Garðar hefur starfað þar sem at-
vinnumaður í knattspyrnu og Ásdís Rán er dálka-
höfundur fyrir OK magazine í Búlgaríu, sinnir þar
módelstörfum og nýtur mikillar velgengni.
Engin prímadonna
Ásdís Rán er fyrst spurð hvenær hún hafði
ákveðið að verða fyrirsæta. „Það hvarflaði ekki að
mér þegar ég var stelpa að ég myndi fara út í
fyrirsætubransann af því mér fannst ég ekkert
sérstaklega falleg,“ segir hún. „Ég er fædd á Eg-
ilstöðum og þar leið mér vel. Ég var mikið nátt-
úrubarn, sönn sveitastelpa og pældi ekkert í út-
liti, var bara í fótbolta. Mér líður alltaf best úti í
náttúrunni og ég keypti mér íbúð í Vatnsend-
anum af því það er svo fallegt þar. Ég upplifi
mikinn innri frið í náttúrunni við að ganga á fjöll
og skoða dýrin. Ég flutti til Reykjavíkur þegar ég
átti að fara í áttunda bekk og kom í bæinn sem
sveitapía. Ég leit ekki út eins og Reykjavík-
urkrakkarnir, var bara í jogginggalla og spilaði
fótbolta. Í bænum voru miklir töffarar og ég gerði
mér grein fyrir því að ég myndi ekki lifa lengi af í
þessu umhverfi nema ég breytti mér. Ég gerði það
og fór að fá athygli út á útlitið sem ég hafði aldrei
pælt í. Smám saman fékk ég svo áhuga á fyrir-
sætustörfum og fimmtán ára byrjaði ég að sitja
fyrir á ljósmyndum.“
Ákvaðstu þá strax að þú ætlaðir að ná langt?
„Það er alveg sama hvað ég geri, ég ætla mér
alltaf að ná langt. Ég hef alltaf verið gríðarlega
metnaðargjörn. Ég er mjög sterk. Það er fátt sem
hræðir mig. Hvað sem ég hefði tekið mér fyrir
hendur, hvort sem ég væri fyrirsæta, læknir eða
lögfræðingur, þá hefði ég alltaf stefnt á toppinn.
Ástæðan fyrir því að flestir ná ekki á toppinn er
sú að þeir gefast upp á miðri leið. Ég ákvað að
gera það ekki. Það er alveg sama hvað gerist, ég
held alltaf áfram. Ég er mjög stolt og ég læt engan
Viðtal
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
brjóta mig niður. Ég vil ekki
að neinn hafi þau áhrif á
mig.
Ég hef mikið sjálfstraust og
hef mikla trú á hæfileikum mín-
um. Ég veit að ég get skapað fal-
lega og góða hluti. Margir halda að
ég líti á sjálfa mig eins og ég sé fal-
legust og best. Það er ekki þannig. Ég
geri mér fulla grein fyrir því að ég hef
mína galla en ég veit samt að ég er mjög
hæfileikarík ung kona.“
Hvaða eiginleikar komu þér á topp-
inn?
„Ákveðni, metnaður, listrænir hæfileikar
og að sjálfsögðu útlitið. Þetta þarf allt að
vinna vel saman.“
Ertu prímadonna?
„Nei, það er ég ekki. Ég er vissulega vön
ýmsum fríðindum og fólk kemur fram við
mig á vissan hátt. Í vinnu minni verð ég að
setja ákveðin skilyrði til að geta skapað það
besta. Ég gæti auðveldlega labbað inn í
myndatöku og sagt við ljósmyndarann:
„Taktu bara einhverjar myndir af mér“ og
farið í viðtal og sagt við blaðamanninn: „Taktu
bara einhvern veginn viðtal.“ En ef ég ynni
þannig sæti ég uppi með eitthvað sem ég væri
óánægð með. Allt sem ég geri er skipulagt frá
upphafi til enda.
Ég er mjög hörð á að allt sé gert eftir mínu
höfði í myndatökum og viðtölum svo það komi
sem best út. Þetta er allt hluti af því að skapa sem
besta og áhugaverðasta söluvöru úr sjálfri mér.
Svo skiptir líka gríðarlega miklu máli hæfileikinn
til að geta metið eftirspurn, lesið fólk og áttað sig
á hvað hittir í mark í ólíkum löndum.“
Umtal er nauðsynlegt
Þú ert umdeild kona. Tekurðu slúðursögur og
illt umtal nærri þér?
„Nei, en auðvitað getur sumt verið sárt. Umtal
skapast alltaf um alvörustjörnur, hvort sem það
Ég verð aldrei
útrunnin vara
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
G
ol
li
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir er
örugglega umtalaðasta kona landsins.
Þessi ákveðna og viljasterka unga kona
fer óhikað eigin leiðir. Allt sem hún
gerir vekur athygli og tugþúsundir lesa
reglulega pistla hennar á Pressunni.
Í viðtali ræðir hún um ferilinn, einkalífið,
illt umtal og framtíðina.