SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Blaðsíða 47
20. desember 2009 47 LÁRÉTT 1. Heiður vigta sem fimm hundruð. (7) 4. Fyrsta kast er lendir fyrir þingi. (8) 8. Mbl hefur fá tækifæri fyrir snauða. (8) 9. Maður gerður úr klessu er mikill áhugamaður. (9) 10. Aki með indverska og ruglaða að spili. (12) 12. Án samfestings en samt fullkominn. (9) 14. Auki eina synd með því að flækja hana með ánægju. (9) 16. Kona kennd við snyrtivöru er Kínverji. (12) 17. Stúlka sem nær að seðja. (5) 19. Gosa skal finna í efni. (7) 22. Hrekkjusvín stjórni með stjórnvöl. (10) 23. Heima linnir ekki áreiti þess sem er fóstraður þar. (9) 25. Ávaxtanagdýr sem er stundum borið fram með mat. (7) 28. Sonur Hómers klippi hjá rakara. (9) 29. Nást upplýsingar um mann sem seldi sál sína. (4) 30. Norskar verða gamlar. (7) 31. Sjá ón pota og brúka of mikið. (6) 32. Tek inn stúdentinn. (6) 33. Stórt brjálæðiskast? (8) LÓÐRÉTT 1. Lok vegna snúnings. (7) 2. Heilagur hefur hæga ferð með sérstökum þráðum. (7) 3. Blekkir Evrópumeistaramót til að flækjast um og fá sér eitthvað þvotthelt. (9) 5. Grét tinda með áli vegna einhvers sem á að vera. (11) 6. Svefn í smóking. (3) 7. Flýtir í próf um stig í frumuskiptingu. (7) 8. Afhenda blað fyrir afbrigði af selleríi. (9) 11. Suða í ánauðarmanni. (5) 13. Er Guð hálfilla við að snúa sér að sveigjanlegri. (5) 14. Hrygglaus nær að gretta sig. (5) 15. Sunnu fær sá fallegi fyrir sérstakt belti (7) 18. Stök fær fallegt – tvímælalaust (7) 20. Í héraðsblaði er minnst á drykkjarílát tröllkonu. (10) 21. Er Sam fyrir Ella í kvenkynsfatnaði? (8) 22. Drepi rýmið með fletinu. (10) 24. Sá sem sækir í eitthvað kom í stutta heimsókn. (7) 25. El Skandinava næstum upp sem ástmann. (8) 26. Flaðraði einhvern tímann upp um friðað. (8) 27. Aumingjabátur fyrir aðalsmenn að því er sagt er. (7) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 20. desember rennur út miðvikudag- inn 23. desember. Nafn vinningshaf- ans birtist í blaðinu á aðfangadag. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 13. des- ember sl. er Helga Steinarsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Ekkert fokking klúður eftir Jens Lapidus. JPV gefur út. Ekkert blað kemur út sunnudaginn 27. desember en krossgátan verður í blaðinu sem kemur út á aðfangadag. Krossgátuverðlaun EINS og margir höfðu spáð hafði Magnús Carlsen sigur á vel heppnuðu stórmóti, London chess classic, sem lauk á mánu- daginn. Norðmaðurinn er nú kirfilega í 1. sæti stigalista FIDE með 2.810 stig. Í þessu móti var tekin upp hin svonefnda „Sofia-regla“ þ.e. ekki mátti bjóða jafntefli. Stigakerfið var tekið úr enska boltanum. Sam- kvæmt því var lokaniðurstaðan þessi: 1. Magnús Carlsen 13 stig. 2. Vladimir Kramnik 12 stig. 3.-4. David Howell og Michael Adams 10 stig. 5. McShane 7 stig. 6. Nakamura 6 stig. 7. Ni Hua 6 stig. 8. Nigel Short 5 stig. Skipuleggjendur þessa móts, Malcolm Pein og David Nor- wood, létu sér ekki nægja að hrúga upp öllu því tæknidóti sem fylgir nútímamótahaldi, þeim tókst líka að fanga andrúmsloft liðins tíma. Eins og þeir væru að leita upprunans; fágun var kjör- orð fyrsta alþjóðlega mótsins sem var haldið í tengslum við heimssýninguna í London sum- arið 1851. Þeirra fremsti meistari, Howard Staunton, sá um skipu- lagningu og lagði til hina klass- ískt mótuðu taflmenn sem bera nafn hans. Hápunkturinn var „ódauðlega skákin“ sem tefld var þegar hlé var gert á mótinu. Þar áttust við Adolph Andersson og Lionel Kieseritzky. Á London chess classic náði Nigel Short sér aldrei á strik. Þó var viðureign hans og Magnúsar Carlsens í lokaumferðinni ein- hver magnaðasta baráttuskák sem sést hefur lengi. Drekaaf- brigðið hefur verið í vopnabúri Norðmannsins í nokkurn tíma. Eftir flókna byrjun varð Short á ónákvæmni í 26. leik þegar hann varð að leika 26. Be4. Riddarinn á e3 lamaði stöðu hvíts en Short gaf sig þó hvergi en þegar upp kom drottningarendatafl voru vinningsmöguleikarnir allir Carlsens megin. Hann gat leikið 54. … Dxf6 með vinningsstöðu en taldi sig vera að vinna með 54. … Dd1+ og 55. … Dh5. Þetta var vendipunkturinn; hann taldi sig geta svarað hinum bráðsnjalla leik 56. c5! með 56. … Dxc5 og sást yfir svarið 57. Dg2+! sem leiðir til máts, t.d. 57. ... Kf8 58. Da8+ o.s.frv. Kasparov gat minnt hann á skák sem hann tefldi við Margeir Pétursson á Möltu 1980 en þar kom þetta þema fyrir. Nú var Short með pálmann í hönd- unum en Magnús varðist frábær- lega, 58. … Dd1! var eini leik- urinn. Að lokum stóðu kóngarnir tveir einir eftir á borðinu og þar með lauk líka mótinu: London classic 2009; 7. um- ferð: Nigel Short – Magnús Carlsen Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 Rc6 8. Dd2 0-0 9. 0-0-0 d5 10. Kb1 Rxd4 11. e5 Rf5 12. exf6 exf6 13. Bc5 d4 14. Bxf8 Dxf8 15. Rb5 Re3 16. Hc1Bh6 17. Dxd4 Rf5 18. Dc3 Bxc1 19. Kxc1 Bd7 20. Bd3 Hc8 21. Dd2 Bxb5 22. Bxb5 Dc5 23. Bd3 Re3 24. He1 He8 25. Df2 f5 26. f4 Dd4 27. g3 He6 28. Dd2 Rg4 29. h3 Hxe1+ 30. Dxe1 Rf2 31. Bf1 Re4 32. Bg2 b6 33. c3 Dd3 34. g4 Rg3 35. b3 Re2+ 36. Kb2 Kf8 37. Bc6 fxg4 38. hxg4 h5 39. gxh5 gxh5 40. a4 a6 41. f5 h4 42. Bg2 Rg3 43. f6 Dd6. 44. Df2 Kg8 45. b4 a5 46. bxa5 bxa5 47. Kc2 Kh7 48. c4 Da3 49. Be4+ Kg8 50. Df4 Dxa4+ 51. Kd2 Rxe4+ 52. Dxe4 Da2+ 53. Kc3 Da1+ 54. Kb3 Dd1+55. Kb2 Dh5 56. c5 56. … h3 57. c6 a4 58. Ka2 Dd1 59. De8+ Kh7 60. Dxf7+ Kh6 61. c7 Dc2+ 62. Ka3 h2 63. Dg7+ Kh5 64. Dh8+ Kg6 65. Dg8+ Kxf6 66. c8D Dxc8 67. Dxc8 h1D 68. Da6+ Ke5 69. Db5+ Dd5 70. Kxa4 Dxb5+ 71. Kxb5 Jafntefli. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Aftur til fortíðar Skák Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.