SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Blaðsíða 32
32 20. desember 2009 S ú tíð er liðin að stjórnendur fyrirtækja í Dan- mörku líti á strangar umhverfiskröfur stjórn- valda sem illa nauðsyn sem hefði verið betra að vera án. Þvert á móti hafa þeir uppgötvað að vegna þeirra hafa dönsk fyrirtæki forskot á fjölmörgum sviðum í alþjóðlegri samkeppni. Þetta segir Axel Bendt- sen, séfræðiráðgjafi hjá dönsku Umhverfisstofnuninni (Miljøstyrelsen), en hann vinnur náið með atvinnulífinu. Blaðamaður er staddur í Kaupmannahöfn í aðdrag- anda loftslagsráðstefnunnar til að kynna sér stöðu danskra fyrirtækja í umhverfisgeiranum þegar alþjóðleg fjármálakreppa þrengir að rekstrarskilyrðum allrar at- vinnustarfsemi. Danir líta á sjálfa sig sem leiðandi þjóð í umhverfistækni, og ætla sér að verða enn stærri í þeim efnum að sögn Bendtsens. „Þetta er orðin gríðarstór út- flutningsvara fyrir landið,“ segir hann. „Í fyrra nam út- flutningur Dana á tæknilegum umhverfislausnum 160 milljörðum danskra króna (um 4.000 milljarðar ís- lenskra). Og möguleikarnir á að selja eru ennþá meiri.“ Umhverfislausnirnar sem Bendtsen vísar til eru t.d. frárennsliskerfi, vatnshreinsikerfi, vindmyllur, ný kyn- slóð eldsneytis og svo má lengi telja. Allar eiga lausnirnar það sameiginlegt að falla undir „cleantech“ – hreina tækni. Palle Weidlich, verkefnisstjóri hjá Væksthus, sem er stofnun á vegum viðskipta- og atvinnumálaráðuneyt- isins og liðsinnir sprotafyrirtækjum, hefur einmitt tölu- vert af „cleantech“-fyrirtækjum að segja. Hann segir um 800 fyrirtæki skilgreind sem slík í Danmörku. Þar af eru 200 sem eru á því stigi að teljast til sprotafyrirtækja, þ.e. eru með frá einum og upp í 30-40 starfsmenn. Þá eru ótalin önnur fyrirtæki í umhverfisgeiranum, s.s. ráð- gjafar-, matvöru- og iðnaðarfyrirtæki sem framleiða umhverfisvænar vörur. „Það hefur mikið gerst í tækniþróun á umhverfissvið- inu síðustu ár samfara því að menn taka loftslagsbreyt- ingarnar alvarlega,“ segir Weidlich. „Þetta hefur höfðað til fyrirtækja sem reyna að nýta sér þennan áhuga og æ fleiri mennta sig í umhverfisfræðum. Því spretta mjög margar hugmyndir úr háskólasamfélaginu sem síðar geta orðið að umhverfisvænni vöru eða þjónustu.“ Hann segir að smæð slíkra fyrirtæki dragi ekki úr mik- ilvægi þeirra. „Menn hafa séð með rannsóknum síðustu ár að sprotafyrirtæki standa fyrir 30-40% allra nýrra starfa sem verða til í Danmörku. Hin fjölmörgu litlu fyr- irtæki eru því gríðarlega mikilvæg enda höfum við séð að einmitt þau hafa fleytt Danmörku yfir erfiðleika og fjár- hagslegar kreppur í gegnum tíðina. Þessi atvinnu- samsetning er allt öðruvísi en t.d. í Svíþjóð og Noregi þar sem stór en fá fyrirtæki skipta miklu máli fyrir atvinnu- lífið í landinu. Ef eitt slíkt fyrirtæki hverfur er allt landið í vanda.“ Róðurinn erfiður í byrjun Hjá Umhverfisstofnun bendir Bendtsen á að áhugi danskra fyrirtækja á umhverfismálum komi ekki síst til af hagnaðarvoninni. „Það hefur komið í ljós að dönsk Græða á grænni framtíð Það er góður „bisness“ í umhverfismálunum, segja tveir danskir sérfræðingar sem starfa náið með atvinnulífinu þar í landi. Þeir ganga jafnvel svo langt að segja að markviss umhverfisstefna fyr- irtækja sé afgerandi fyrir það hvort fyrirtæki muni lifa af alþjóðlega samkeppni í fjármálakreppunni sem nú ríkir á Vesturlöndum. Umhverfismál Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Fyrirtæki Lasse Ramskov, Altiflex, starfar innan byggingariðnaðarins og býður nýja aðferð til að loka nýbyggingum meðan þær eru enn í byggingu með margnota einingakerfi. Í stað plasts í glugga- og hurðargötum eru notaðar plötur úr gegnsæjuum polycarbonatplötum, sem einnig má nota í stillansa, skilveggi og öryggisgrindverk. Kerfið er mun ódýrara en hefð- bundnar aðferðir því sá sem byggir leigir það einfaldlega af Altiflex sem nýtir það aftur og aftur, allt niður í smæstu skrúfur. Að auki sparar það 50 - 60% í hitunarkostnaði, miðað við hefðbundnar aðferðir. Ramskov dregur heldur ekki dul á að það er sparnaðarvonin sem fyrst og fremst selur kerfið, en ekki endi- lega hversu umhverfisvænt það er. „Hins vegar höfum við nýlega undirritað stóran samning við steinullarframleiðandann Rockwool um sameiginlega markaðssetningu þar sem kynntar verða hugmyndir um umhverfisvænar og sjálfbærar byggingar. Og í því samhengi er umhverfisvæn ímynd okkar afar mikilvæg.“ Ramskov bindur miklar vonir við samninginn en samkvæmt honum á Altiflex að auka markaðshlutdeild sína í Danmörku úr 2,2% í 8,6% innan tveggja ára sem þýddi veltu upp á um hálfan milljarð íslenskra króna. Þetta er mikill vöxtur því í dag eru starfsmenn fyr- irtækisins ekki nema rúmlega 20, en aðeins eru þrjú ár frá því að það hóf að leigja út eininga- kerfið. Salan á lausninni hefur rokgengið á þeim tíma því af þeim rúmlega 140 tilboðum sem Altiflex hefur gert hefur 112 verið tekið. Áhuginn hefur aukist enn frekar í fjármálakreppunni og fyrirtækið hyggst núna færa út kvíarnar bæði til Jemen og Ástralíu, auk þess sem önnur lönd eru í sigtinu. „Við höfum grætt mikið á því hvað allir eru uppteknir af því að spara peninga núna. Og með stöðugt stífari umhverfiskröfum á ég bara von á að áhuginn aukist enn meir.“ Áhuginn aukist í fjármálakreppunni „Vissulega hefur fjármálakreppan gert okkur mikla skráveifu,“ segir Nils Ole Ellegaard, framkvæmdastjóri danska vatnsfyrirtækisins Microdrop. „Í byrjun ársins gerðum við stefnumótunarsamning við stórt, fjármögnunarfyrirtæki en þegar á hólminn kom dró það sig út úr samningnum.“ Microdrop selur hreinsikerfi sem byggir á síum sem sprengja vatnsdropana sem leiðir til þess að arsen og önnur meng- andi frumefni skiljast úr vatninu. Engum tilbúnum hreinsiefnum er blandað í það. Kerfið er sparneytið á orku auk þess sem það er mun ódýrara en hefðbundin vatnshreinsikerfi þar sem dýr búnaður og tilbúin efni eru notuð. Fyrir- tækið var stofnað árið 2004 og hefur níu starfsmenn en stefnir hátt enda segir Ellegaard gríðarmikinn áhuga á lausninni út um allan heim. „Við höfum gert viðskiptaáætlun sem gerir ráð fyrir því að árið 2014 verði velta fyrirtækisins um 500 milljónir danskra króna. Verði það að veruleika þurfum við að ráða mörg hundruð starfsmenn til viðbótar.“ Til að geta fylgt þess- um áætlunum eftir þarf fyrirtækið um 10 milljónir dollara sem m.a á að nota í markaðs- setningu, vottunarferli og tölvulíkön af kerfinu. Gangi sú fjármögnun eftir, hvort heldur er vegna nýrra fjárfesta eða vegna aukinnar sölu, segir Ellegaard framtíðina bjarta enda á fyrir- tækið í samningaviðræðum við vatnsveitufyrirtæki víða um heim. „Stjórnvöld hafa hert kröfur um hámarksmagn arsens í drykkjarvatni sem er mjög gott fyrir okkar starfsemi. Fólk sýnir lausninni þó ekki síður áhuga vegna þess að hún er ódýr. Það er lík ljóst að umhverfi og vatn er talið mun betri fjárfestingarkostur í dag en t.d. olía. Við erum ekki nærri því búin að kom- ast fyrir horn í okkar starfsemi, en vonumst til að það verði innan skamms.“ Stefna að margföldun veltu á fimm árum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.