SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Page 39
20. desember 2009 39
Guðrún heldur áfram. „Hér býr svo-
kallað þotulið, þ.e. fræga fólkið, sem
kemur t.d. úr vinahópi krónprinsins, úr
fjölmiðlabransanum eða er sterkefnað.
Þetta fólk ratar gjarnan á síður slúð-
urblaðanna, eins og „Se og hør“. En þetta
eru mjög góðir viðskiptavinir og al-
mennilegar manneskjur sem virðast vera
vel niðri á jörðinni þrátt fyrir frægðina.“
Hún vill ekki nefna nein nöfn enda segir
hún mikilvægt að virða trúnað við við-
skiptavinina, sem meðal annars koma til
hennar í andlitslyftingar sem hún fram-
kvæmir með sérstakri rafmagnstækni, án
þess að skurðhnífur komi nærri. „Fólk
kemur líka mikið til mín í andlitsböð og
nudd og t.d. er ég með fastan kúnna sem
kemur til mín á hverjum mánudegi í
tveggja tíma nudd, allt árið um kring.“
Hún hefur því lítið sem ekkert fundið
fyrir minnkandi viðskiptum í kjölfar
kreppunnar. „Ég hef alveg haldið mínum
fastakúnnum sem halda áfram að bóka
fram í tímann hjá mér. Og ég tek frá tíma
fyrir þá þegar ég veit að þeir ætla að
koma en eiga eftir að bóka. Reyndar get-
ur það verið svolítið flókið því ég er líka
með kúnna sem mega alls ekki hittast hér
hjá mér. Það getur haft ákveðnar afleið-
ingar ef sumir þeirra frétta af hinum hér á
stofunni.“ Þetta leyndardómsfulla tal af-
tekur Guðrún með öllu að útskýra betur
– enda segir hún viðskiptin í hættu ef
hún fari nánar út í þessa sálma.
Ísland alltaf „heim“
Með blómstrandi fyrirtæki er fátt sem
dregur Guðrún og fjölskyldu hennar
heim til Íslands þessi misserin. „Ég á
örugglega eftir að flytja heim þegar ég
verð gömul kona en ég hef ekki áhuga á
því í augnablikinu,“ segir hún og bætir
við að viðskiptavinir hennar hafi iðulega
spurt hana hvort hún væri ekki fegin að
búa annars staðar en á Íslandi, þegar
ósköpin dundu þar yfir í fyrra.
Þar með er ekki sagt að gamla landið
hafi ekki sitt aðdráttarafl og Guðrún segir
það mikils virði að hún á landareign við
Breiðafjörð ásamt systur sinni og móð-
ursystur. „Árið 2007 fórum við fjöl-
skyldan svo í túristaferð til Íslands með
dönskum vinum okkar þar sem við leigð-
um okkur tvo jeppa og ókum um landið,
fórum upp á jökul á vélsleða, í Bláa lónið
og á fleiri staði sem maður hefur aldrei
heimsótt áður. Það var 20-29 stiga hiti og
sól alla dagana og vinkonan mín skildi
ekkert í því hvað ég væri að gera í Dan-
mörku. Maðurinn minn þurfti líka reglu-
lega að minna mig á að það kemur líka
vont veður á Íslandi.“
Guðrún hlær að minningunni: „Auð-
vitað er æðislegt að koma til Íslands en
það er líka alltaf mjög gott að koma til
baka. Hins vegar á Ísland eitthvað í
manni og ég fæ alltaf kökk í hálsinn þegar
ég flýg þangað og flugfreyjan segir í há-
talarakerfið: „Góðir farþegar, velkomnir
heim.“
Lovísa og Helga Ólafsdætur stofnuðu fyr-
irtækið Ígló í ágúst 2008 en það sérhæfir
sig í hönnun á fatnaði fyrir börn á aldr-
inum 1-8 ára. Þær voru kunningjakonur
en hvor um sig gekk með þann draum í
maganum að hanna sína eigin barnafata-
línu. Lovísa ákvað að láta drauminn ræt-
ast, hringdi í Helgu, sem er fatahönnuður
og býr í Kaupmannahöfn, og spurði hvort
hún væri til í að hanna með sér barna-
fatalínu. Helga var til í slaginn og ekki
þarf að spyrja að leikslokum – fötin eru
fáanleg í völdum verslunum og á iglo.is
og er stefnt að því að koma Ígló í versl-
anir í Skandinavíu en nú þegar hafa bor-
ist fyrirspurnir frá Bandaríkjunum, Pól-
landi og Hollandi.
Frjáls verslun hefur valið Ígló eitt af tvö
hundruð athyglisverðustu sprotafyrirtækj-
unum en góðan árangur fyrirtækisins má,
auk fallegrar hönnunar, rekja til þess að
Lovísa er viðskiptafræðingur að mennt og
hefur því reynslu í gerð viðskiptaáætlana,
skattamálum, tollskýrslugerð o.s.frv. en
lítil sem engin þekking á þeim sviðum
hefur komið mörgum fyrirtækjunum í koll.
Fyrsta línan þeirra, sem nú er í sölu,
samanstendur af litríkum jökkum, buxum,
vettlingum og húfum úr flísefni en lögð
var áhersla á að línan væri klæðileg og
hlý og höfðaði til barna. Í nýju línunni
bættust við úlpur svo úrvalið eykst jafnt
og þétt.
Lovísa og Helga eiga báðar börn á
sama aldri, fjögurra og sjö ára, og eru
börn beggja í skólum sem fylgja Hjalla-
stefnunni. Ígló hefur verið beðið um að
hanna boli, leggings, skólapeysu og nýjan
skólagalla fyrir Hjallastefnuna og er Helga
með lopapeysu á teikniborðinu.
Klæðileg og hlý
Ljósmynd/Bergljót Þorsteinsdóttir
Hönnuðurinn
Frísklegt andlit með
náttúrulegum aðferðum
Til að halda andlitinu frísklegu mælir Guðrún
með því að hreinsa húðina daglega með
hreinsimjólk og andlitsvatni. Að auki er gott
að nota reglulega skrúbb til að fjarlægja
dauðar húfrumur sem og góðan maska sem
hafður er á andlitinu í 10 til 15 mínútur áður
en hann er þrifinn af.
Guðrún bendir að á hægt er að búa til
ágætan andlitsmaska úr eldhúsvörum sem
gefur húðinni nýtt líf. Til dæmis má hita 4
tsk. af haframjöli í 100 ml af vatni við væg-
an hita. Þegar grauturinn er kólnaður er 2
tsk. af hunangi bætt við og maskinn borinn
á andlitið, þó ekki í kring um augun. Yfir þau
má setja agúrkusneiðar. Maskinn og agúrk-
an er látin virka í 20 mínútur áður en andlitið
er hreinsað með volgu vatni.
Sé viðkomandi með þurra húð má mauka
niður þroskað avókadó og smyrja maukinu
yfir andlitið (gúrkur á augun). Sá maski er
látinn virka í u.þ.b. 15 mínútur.
er hann úr formbeygðum
krossvið og sami radíus er bæði
að ofan og neðan. Svo er hægt
að stilla setuna eftir þörfum
hvers og eins, sem er ekki al-
gengt á hönnunarstólum. Stóll-
inn er ekki bara fallegur heldur
finnst fólki mjög þægilegt að
sitja í honum. Ég hef m.a.
fengið sjúkraþjálfara til þess að
skoða hann og sá mælir með
honum, því mjög vel er stutt
við mjóbakið á þeim sem sest í
stólinn.“
Einar hefur lengi heillast af
húsgögnum frá sjöunda áratug
síðustu aldar og studdist við
þau við hönnunina.
Dropi verður í fjórum út-
færslum; með viðaráferð, bæs-
aður – annars vegar svartur og
hins vegar hvítur, þannig að
viðurinn sést í gegn – og síðan
stendur til að framleiða hann
spónlagðan með tekki. „Ef vel
gengur verður hægt að bæta
við sófa og borði en ég byrja
rólega. Það borgar sig að byrja
á því að taka lítil skref.“
skapti@mbl.is
Mig langaði að gefa
henni eitthvað eftir
mig og ákvað að
hanna handa henni
fallegan stól. í jólaskapi
kr.
kg1189
Lambalæri,
frosið
kr.
kg1598
Lambahryg
gur, frosinn
15%afsláttur
VSV humar
í súpur
og smárétt
i
898kr.pk.
Eldeyjar ræ
kja698kr.kgVillibráðapaté frá
Belgíu, 3 t
egundir
598kr.stk.