Skólablaðið - 01.03.1958, Qupperneq 3
5. tbl.
Marz
1958
33. árg„
Það er gleðilegt til þess að hugsa, að elzta málfundafél. landsins skuli hafa
þróast meðal menntaskolanema. Það sýnir, að þeim hefur skilizt það fljótt, að
það þarf æfingu og áræði til að standa upp ur mislitum hópi, án þess að í hnjá-
liðum marri, og mæla af munni fram einföld en kjarnmikil orð án þess að vefjast
tunga um tönn og hugsunin staðni og tjá þannig skoðun sína með fashreinni fram-
komu.
í upphafi vega, og allt fram á þriðja tug aldarinnar, var Framtíðin undir-
staða alls fólagslíf skólans. Innan hennar arma skapaðist allt og fór fram, er
nefnist skáldlegt, listþroskandi, heilsubætandi og fjöraukandi. Aðalhlutverk hennar
fyrr og síðar hefur þó ætíð verið fágun málandans og þróun hans í mælsku.
Minnumst þess á þessu stórcifmæli, að meirihluti nulifandi studenta hefur