Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1958, Síða 5

Skólablaðið - 01.03.1958, Síða 5
- 125 - tíðarinnarM„ Fulltrui hans eða fulltrúar sjá um allt, er framkvæmd viðvíkur, líkt og um serstakt félag væri að ræða; sjá um kennslu og útbreiðslu málsins og fá jafnframt málfund haldinn um gildi þess, en njota fjármagns og styrks Framtíðar- innar„ Hin eiginlega stjórn Framtíðar- innar skiptir sér eigi beint af gerðum flokksins, því að hún er kosin til efling- ar almennu félagslífi og mælskulist. Auk þess er æskilegt, að mestu áhuga- menn hvers málefnis vinni að framgangi þess„ Lognist flokkurinn út af næsta ár, renn- ur allt hljóðalaust til Framtíðarinnar, en haldi hann tilveru sinni, starfar hann sem fyrr, og eflist hann, þá gerist hann alveg sjálfstætt félag. Og þökk sé Fram- tíðinni fyrir skilning sinn á félagslífi. Með tilliti til ofanritaðs vil ég ræða lítið eitt um hin einstöku félög í skólan- um nú. Skákfélagið Caissa var stofnað sl.vor, en Framtíðin hafði séð um skákstarfsemi frá því að skákfélagið þar á undan lagðist niður. Yar ætlunin að Caissa yrði flokkur undir verndarvæng Framtíðarinnar eins og áður er lýst. En það var fellt á aðal- fundi Framtíðarinnar„ Varð skákfélagið því algerlega sjálfstætt en hefur til um- ráða töfl Framt. o.fl. Caissa hefur starfað með miklum krafti og er fyrirsjáanlegt, að það deyr ekki í bráð. Það hefur barizt vel fyrir tilveru sinni og lagt meðal annars mjög há félags- gjöld á meðlimi sína sér til bjargræðis. Það skal þó ekki gert að umtalsefni heldur hitt, að það getur skaðað almennt félagslíf með baráttu sinni fyrir þessum eina félags- lið. Ég tel, að það eigi að útvíkka sjón- deildarhring sinn og sjá einnig um bridge- mót, verði bridge-flokkur ekki stofnaður. Ástæðan er sú, að nær allir bridge- menn eru í skákfél. , og það hlýtur að vera hætta á deyfð að hafa taflkvöld hvern föstudag fyrir nokkra tugi nemenda, og væri æskilegt að hafa bridge einstöku sinn- um. Aðalástæðan er þó sú, að nemendur geta aðeins fengið skólann í mesta lagi 4 kvöld í viku. Sé ball á laugardegi, hin nauðsyn- lega danskennsla á þriðjudegi, eins og var fyriir jól, og skák á föstudegi, er aðeins eitt kvöld í mesta lagi fyrir alla aðra fé- lagsstarfsemi í skólanum. Það er vafasamt, að þvílíkt kapp fyrir einstökum lið félagslífsins sé til heilla. Það verkar aðþrengjandi fyrir annað fé- lagsstarf. Fleiri en eitt blóm eiga rétt til að blómgast. Ef skákfélagið tæki m„ a. að sér bridge mættu föstudagarnir nýtast bet- ur, og dugnaður forustumannanna kæmi betur að notum. Ég held, að Baldur næði betur tilgangi sínum sem flokkur Framt. en sjálfstætt félag eins og það er nú, eða það samein- ist Braga, sem hefur hlotið góða forustu á þessum vetri. Bindindisfélagið í núverandi mynd er mikill misskilningur. Það er ekki nóg, að hin 6 manna stjórn þess verði til með ein- hverjum kynlegheitum, heldur er form þess með herfilegum hætti. Stjórnin tekur sér það bessaleyfi að velja og hafna um- sækjendum um félagarétt eftir eigin geð- þótta og sendir stumdum bréf, skyldi ein- hver félaganna hafa þegið sopa hjá náung- anum, þrátt fyrir að hann vissi um þá voðalegu áhættu, sem því fylgdi : að vera rekinn úr félaginu. Hvílík voðaleg áhætta! Hvílík stuðlun að bindindi ! Sem vonlegt var, þurfti félagið að fara út í aðra sálma, sem snertu hvorki til- gang félagsins né félagsmenn þess. En hví þá ekki að stofna bara "Danskennslu- félag" ? Ef stjórn Bindindisfélagsins ætlar að vinna eitthvað að sínu marki með á- rangri, þá held ég, að bezt væri fyrir hana að breyta skipulaginu strax og (eða) gerast flokkur Framtíðarinnar og beita henni fyrir sig eins og hún gæti. Iþróttafélagið starfar vel og þarf vart að óttast annað á meðan Lúðvígs nýtur við og Valdimar lifir, en taka mætti það athugasemd Kjartans Jóhannssonar í síðasta skólablaði til greina. Ég vona svo, að stjórn Framtíðar- innar líti aldrei á það sem sitt hlutverk að vaða uppi og kæfa allt annað félags- líf, nema það sem um hana snýst, svo að aðrir félagsliðir fái eigi þroskast, því að henni ber að vera sem móðir og telja í börn sín kjark til þess að láta ljós sitt skína, því að sérhver gróliður á rétt til lífsins. Guðmundur Ágústsson.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.