Skólablaðið - 01.03.1958, Side 6
- 126 -
Til "FRAMTÍÐARINNAR" á 75 ára afmælishátíð felagsins
f kvöld við gleðjumst9 strengi vora stillums
svo stynja við hin glæstu salarkynni3
og félag skolans 9 Framtíðina, hyllum,
nu fljóð og sveinar drekkum óskaminnio
í>að mark var sett5að efla orðsins kynngi,
og æfa sókn og vörn á málaþingio
Það ljómar enn af fslands fornu sögum,
þeir eldar brenna meðan þjóðin lifir.
Þeir kyndlar báru ljós á döprum dögum,
er dimmdi'’af kugun þjóð og landi yfir.
En orðsins list bar vitni um andans veldi,
þá vermdist kvalin þjóð af sagnaeldi.
Og enn í dag hér beitt er orðsins brandi,
hann blika mun um aldir hjörinn fríði,
og eflum5 vinirs öll þann sið í landi
æru og drengskap sýna í hverju stríði.
Svo veri "Framtíð" stofninn trausti sterki
og stöðugt hærra lyfti skólans merki.
Sigurlaug Ölöf Guðmundsdóttir, 5.-C.