Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.03.1958, Page 6

Skólablaðið - 01.03.1958, Page 6
- 126 - Til "FRAMTÍÐARINNAR" á 75 ára afmælishátíð felagsins f kvöld við gleðjumst9 strengi vora stillums svo stynja við hin glæstu salarkynni3 og félag skolans 9 Framtíðina, hyllum, nu fljóð og sveinar drekkum óskaminnio í>að mark var sett5að efla orðsins kynngi, og æfa sókn og vörn á málaþingio Það ljómar enn af fslands fornu sögum, þeir eldar brenna meðan þjóðin lifir. Þeir kyndlar báru ljós á döprum dögum, er dimmdi'’af kugun þjóð og landi yfir. En orðsins list bar vitni um andans veldi, þá vermdist kvalin þjóð af sagnaeldi. Og enn í dag hér beitt er orðsins brandi, hann blika mun um aldir hjörinn fríði, og eflum5 vinirs öll þann sið í landi æru og drengskap sýna í hverju stríði. Svo veri "Framtíð" stofninn trausti sterki og stöðugt hærra lyfti skólans merki. Sigurlaug Ölöf Guðmundsdóttir, 5.-C.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.