Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1958, Síða 16

Skólablaðið - 01.03.1958, Síða 16
- 136 - mundi útbúnaðurj sem vestan hafs telst fremur lélegur, vera talinn fullkominn. Er því engin furða, þó að nám í greinum eins og eðlis- og efnafræði sé haldbetra í skólum þar en í skólum hér á landi. Ég hef nú reynt að gera grein fyrir ýmsu, sem mér fannst nýstárlegt í banda- rískum gagnfræðaskólum. Sjá má, að nám- ið þar er að miklum mun léttara en í ís- lenzkum menntaskólum. Heimavinna þar tekur oftast ekki nema um 2 klst. á dag. Það er því sannarlega leikur að læra í þeim skólum. Að gagnfræðanámi loknu fara margir bandarískir unglingar í háskóla. Til þess þurfa þeir að taka allþung inntökupróf og uppfylla ýmis skilyrði önnur, eins og áður var getið. Betri nemendurnir eru vinzaðir úr með þessum prófum, en samt er það þeim mikil viðbrigði að hefja háskólanám, því að það er svo miklu erfiðara en gagn- fræðaskólanámið. Enda er raunin sú, að margir gefast upp þegar í byrjun. Flestir þekktustu háskólar Bandaríkj- anna eru einkaskólar, þó að ríkisháskólum sé sífellt að fjölga og vegur þeirra fari vaxandi. Nám við einkaskólana er oft svo óheyrilega dýrt, að ekki er nema fyrir sæmilega efnað fólk að senda börn sín í þá. Hins vegar eiga góðir námsmenn kost mismunandi ríflegra styrkja, sem gera þeim kleyft að stunda nám við einkaskóla, enda þótt þeir komi frá fátækum fjölskyld- um. í ríkisháskólunum er námskostnaður oft allt að því helmingi minni, og í ýms- um þeirra er jafnvel ekkert námsgjald fyrir sumar greinar, t.d. akuryrkju og búvísindi. En þröngur fjárhagur getur oft orðið þeim óyfirstíganlegur Þrándur í Götu, sem ekki eru nógu góðir náms- menn til að hljóta styrki. Ekki veit ég, hvort kenningar bandaríska kennarans, sem áður voru nefndar, eru réttar eða ekki, en það er mín skoðun, að íslenzka skólakerfið sé öllu heppilegra, þrátt fyrir alla þess galla. Það veitir tví- mælalaust víðtækari almenna menntun og gerir öllum kleyft að stunda æðra nám, sem hafa hæfileika til þess. En þetta get- ur beinlínis haft úrslitaþýðingu, því að styrkur þjóða fer ekki lengur eingöngu eftir auðæfum þeirra, heldur einnig eftir því, hversu miklum fjölda vísindamanna, verkfræðinga og annarra tæknimenntaðra manna þær hafa á að skipa. Febrúar 1958. TAFLAN Svart, svart, svart örlög manna birtast á framhlið þinni, taugar þynnast framan við ásjónu þína, sálir koma og fara en allar deyja þær í hræðilegri endurminning um Almar SKÓLABLAÐIÐ Gefið út í Menntaskólanum í Reykjavík Ritstjóri : Jonas Kristjánsson, 5.-X Ritnefnd : Sólveig Einarsdóttir, 5.-A Sigurður Gizurarson, 5.-X Sigurjón Jóhannsson, 5.-X Ómar Ragnarsson, 4.-Y Auglýsingastjórar : Eiður Guðnason, 5.-B Gunnsteinn Gunnarsson, 5.-B Ábyrgðarmaður : Einar Magnússon, kennari Forsíðumyndin og allar aðrar mynd ir í blaðinu eru gerðar af Sigurjóni Johanns syni. Skreytingar annaðist ritnefnd.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.