Morgunblaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. D E S E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 343. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «DAGLEGTLÍF HLJÓMSVEITIN TAL- ENTURNAR ER EINSTÖK «KLÚÐURÁRSINS Stóra spurningin er: Woods eða Icesave? 6 Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is GREIÐSLUR ríkisins af lánum á næsta ári munu nema um 40% af tekjum ef miðað er við tekjuáætlun fjármálaráðneytisins eins og hún liggur fyrir. Sé litið til gagna um endurgreiðsluferil er- lendra lána sem Seðlabanki Íslands birti við- skiptanefnd Alþingis fyrir stuttu, og við bætt greiðslum vegna innlendra skuldbindinga, má lesa úr því að greiðslur af skuldum munu vega þungt í útgjöldum ríkisins á næstu árum að óbreyttu. Á árinu 2011 munu greiðslur af skuldum nema tæplega 60%, og er þá gert ráð fyrir 2% tekju- aukningu ríkissjóðs frá árinu áður miðað við tekju- áætlun fjármálaráðuneytis. Með því hæsta Jón Daníelsson, dósent í fjármálum við London School of Economics, segir að skuldastaða íslenska rík- isins sé með því hæsta sem þekkist á byggðu bóli. „Ég myndi nú halda að þetta væri nálægt eða yfir þolmörkum, eins og þetta er lagt upp. Afborganir lána 40% tekna  Jón Daníelsson dósent í fjármálum segir að íslenska ríkið sé nú nærri eða yfir sínu skuldaþoli  Stjórnvöld hefðu þurft að skera miklu meira niður í ríkisrekstrinum en gert hefur verið til þessa  Skuldabyrðin þungbær | 18 Stjórnvöld hefðu þurft að skera miklu meira niður í ríkisrekstrinum til að geta staðið undir þessu. Meiri skattheimta er ekki nóg til að leysa vandamálið, enda eru háir skattar vinnu- letjandi, dæmin sanna það,“ segir Jón í samtali við Morgunblaðið. Hann telur jafnframt að stjórnvöldum hafi tekist illa upp við fjárlaga- gerðina. Útgjöldin miðist við árið 2007 en tekj- urnar taki mið af árinu 2009: „Ríkið virðist ekki gera sér grein fyrir al- vöru vandamálsins og hefur greinilega ekki forgangsraðað útgjöldunum nægilega,“ segir Jón. Í HNOTSKURN »Greiðslubyrði ríkissjóðs mun nematæpum 60% af tekjum hans á árinu 2011. »Telur að stjórnvöldum hafi tekist illaupp við fjárlagagerðina og út- gjöldum hafi ekki verið forgangsraðað nægilega. »Útgjöldin miðist við árið 2007 á með-an tekjurnar taki mið af árinu 2009. Jón Daníelsson ÞÚSUNDIR ferðamanna hafa notið lífsins á Ís- landi yfir hátíðirnar og segja má að þeir hafi fengið kaupauka þegar snjóa tók á höfuðborgar- svæðinu. Myndavélarnar eru því mundaðar af miklum móð og víst að margir munu seint gleyma ferðalaginu til landsins okkar bláa. Morgunblaðið/Kristinn FERÐAMENNIRNIR FÁ SNJÓINN Í KAUPAUKA Breytingartillaga var lögð fram við frumvarp um rík- isábyrgð vegna Icesave-skuld- bindinga í gær. Pétur H. Blöndal lagði tillöguna fram. Hún felur í sér að þjóðin kjósi, innan sex vikna frá setningu laganna, um það hvort fjár- málaráðherra verði heimilt að veita ríkisábyrgðina. Samþykkt var í gær- kvöldi að atkvæðagreiðsla um Icesave-frumvarpið færi fram á morgun. Flestir flokkar voru með það á stefnuskrá sinni að heimildir til þjóð- aratkvæðagreiðslu yrðu auknar. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, bendir þó á að setja þurfi lög um slíkar atkvæðagreiðslur og það taki nokkra mánuði. Þá taki þær oft- ast nær ekki til þjóðréttarmála. Þráinn Bertelsson, óháður, segir tillögu Péturs tilraun til að draga enn Icesave-málið á langinn. | 4 Vill þjóðar- atkvæði um Icesave Pétur H. Blöndal með breytingartillögu ÍSTAK hf. verður með á milli 200 og 300 manns í vinnu á Grænlandi, Jamaíku og í Noregi á næsta ári, en er ekki með nein ný verkefni hér- lendis. Fyrirtækið er með nokkur verk- efni í Noregi, þar af tvö ný jarð- vinnuverkefni, byggir leikskóla á Grænlandi og byrjar senn á bygg- ingu þjónustubygginga fyrir skemmtiferðaskip á Jamaíku. Gjaldþrot í greininni Fyrstu tíu mánuði ársins voru 747 fyrirtæki tekin til gjaldþrota- skipta en 600 fyrirtæki á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum hjá Hagstofu Íslands. Aukningin er 24,5% á milli ára og voru flest gjaldþrotin í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða samtals 203 en voru 150 árið 2008. Loftur Árnason, framkvæmda- stjóri Ístaks, bendir á að haustið 2008 hafi fyrirtækið verið með um 1.000 manns á launaskrá en nú séu þeir um 400 og fari fækkandi. „Þetta er alveg steindautt hér,“ segir hann og Gunnar Þorláksson hjá Bygg tekur í sama streng. | 6 Morgunblaðið/Kristinn Viðhald Byggingarfyrirtæki sinna frágangi en fá ekki ný verkefni. Vaxtarbroddurinn í verkefnum erlendis ÖLL rök hníga að því að íslenska ríkið eigi ekki að veita ríkisábyrgð á Icesave-skuldbindingum Íslands gagnvart Bretum og Hollendingum. Þetta segir Magnús Ingi Erlings- son lögfræðingur í grein sem hann ritar blaðið í dag. „Í nýju frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi Íslendinga sem er lög- leiðing breytingartilskipunar Evr- ópusambandsins um sama efni, sem tók gildi 11. mars 2009 í Evrópusam- bandinu, er sérstaklega tekið fram að ekki sé gerð tillaga um að lántök- ur tryggingarsjóðsins njóti ríkis- ábyrgðar. Í ljósi ágreinings Íslend- inga, Breta og Hollendinga um ábyrgð samkvæmt tilskipuninni nokkrum mánuðum fyrir gildistöku hennar hefði mátt búast við að inni- stæðutryggingar nytu ríkisábyrgðar með skýrum og ótvíræðum hætti í breytingatilskipuninni. Svo er ekki og það bendir til hins gagnstæða. Væri slík skylda fólgin í tilskipuninni væri einnig skylt að lögleiða hana nú með breytingalögunum,“ segir Magnús m.a. í grein sinni. Hann er lögfræðingur hjá Seðlabankanum en skrifar greinina í eigin nafni. | 25 Íslenska ríkinu ber ekki að veita ábyrgð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.