Morgunblaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
HINN 26. desember sl. voru fimm ár
liðin frá flóðbylgjunni miklu í Asíu
og austurströnd Afríku þar sem
mörg hundruð þúsund manns fór-
ust. Gífurleg samstaða Íslendinga
eftir hamfarirnar kom í ljós, en
Rauði krossinn safnaði alls um 170
milljón krónum frá íslenskum al-
menningi.
Rauði kross Íslands hefur sett upp
sérstaka vefsíðu í tilefni þessa. Þar
er gerð grein fyrir því hvaða verk-
efni framlög almennings, stjórn-
valda og fyrirtækja fóru í og rætt
við nokkra af sendifulltrúunum sem
störfuðu í Indónesíu og á Srí Lanka.
Reuters
Fimm ár Fórnarlamba flóðbylgj-
unnar í Asíu minnst.
5 ár frá flóðbylgju
MARÍA Níels-
dóttir, innborinn
Kópavogsbúi,
var 500.000.
gesturinn í Sund-
laug Kópavogs.
Afhentu Gunn-
steinn Sigurðs-
son bæjarstjóri
og Jakob Þor-
steinsson, forstöðumaður sundlaug-
arinnar, henni blómvönd, árskort í
líkamsrækt og sund og gjafapakka.
Aldrei hafa eins margir gestir
sótt laugina á einu ári. Aukningin
frá árinu áður nemur um 28% en þá
voru gestirnir 391.439.
Heimsóknarmet í
Kópavogslaug
Á Alþjóðadegi
fatlaðra var
styrkjum út-
hlutað úr Minn-
ingarsjóði Jó-
hanns Péturs
Sveinssonar. Að
þessu sinni voru
sex styrkþegar
og var heildar-
upphæð styrkjanna 600.000 kr.
Styrkþegarnir eru Friðrik Þór
Ómarsson og Guðrón Jóna Jóns-
dóttir, nemar í Háskóla Íslands,
Kristín Sigurðardóttir og Arna Sig-
ríður Albertsdóttir, sem æfa á
mono-skíðum, Rut Þorsteinsdóttir,
sem er við nám í Lýðháskólanum í
Danmörku, og Alma Ýr Ingólfs-
dóttir, nemi á Bifröst.
Styrkjum úthlutað
úr minningarsjóði
GYÐA Mar-
grét Pétursdóttir,
félags- og kynja-
fræðingur, varði
doktorsritgerð
sína (Innan áru
kynjajafnréttis:
Vinnumenning,
kynjatengsl og
fjölskylduábyrgð)
frá stjórn-
málafræðideild
Háskóla Íslands 9. október síðastlið-
inn.
Leiðbeinandi í verkefninu var dr.
Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í
kynjafræði.
Doktorsritgerðin er framlag til
fræða sem fjalla um samræmingu fjöl-
skyldulífs og atvinnu. Vinnumenning,
kynjatengsl og fjölskylduábyrgð voru
rannsökuð á ólíkum sviðum vinnu-
markaðarins: á einkamarkaði og í op-
inbera geiranum. Til viðbótar var
skoðuð verkaskipting heimilisverka,
umönnun barna, launamunur, og frí-
tími meðal gagnkynhneigðra, hvítra
Íslendinga, karla og kvenna sem eiga
börn. Eigindlegum rannsókn-
araðferðum var beitt, þátttökuathug-
anir voru framkvæmdar og eigindleg
viðtöl tekin við 24 konur og 24 karla
sem starfa á 15 ólíkum vinnustöðum.
Þeir eru vinnustaðir Reykjavík-
urborgar, hugbúnaðarfyrirtæki,
skyndibitastaðir, matvöruverslun og
bensínstöð. Í doktorsnefnd sátu dr.
Berit Brandth, prófessor í félagsfræði
við félagsfræði- og stjórnmálafræði-
deild Norwegian University of
Science and Technology, dr. Guðbjörg
Linda Rafnsdóttir, prófessor í fé-
lagsfræði við félags- og mannvís-
indadeild Háskóla Íslands, og dr. Þor-
gerður Einarsdóttir, prófessor í
kynjafræði við stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands.
Gyða Margrét Pétursdóttir er fædd
í Reykjavík árið 1973. Hún lauk BA-
prófi frá félagsvísindadeild Háskóla
Íslands árið 2002 og MA-prófi frá
sama skóla árið 2004. Samfara námi
hefur hún sinnt rannsóknum, og
kennslu við Háskóla Íslands og
Listaháskóla Íslands. Gyða er í hjóna-
bandi með Matthíasi M.D. Hemstock
tónlistarmanni og eiga þau þrjú börn.
Doktor í
kynjafræði
Gyða Margrét
Pétursdóttir
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Óskum
viðskiptavinum
okkar og
landsmönnum öllum
gleðilegs árs og friðar.
Þökkum viðskiptin á
árinu sem er að líða.
Gætið vel að staðsetningu kerta
Munið að slökkva
á kertunum
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
kg
25
SEK
2
4
6
Bláar fallegar kúlur sem skjótast
upp og springa. Niður fellur rautt
regn með brestum og silfurlituðum
stjörnum. Mögnuð kaka.
2
Blindrafélagið
og Slysavarna-
félagið Lands-
björg sendu öll-
um 10 til 15 ára
börnum gjafa-
bréf fyrir flug-
eldagleraugum.
Alls hafa 26.462
börn fengið send
gjafabréf fyrir flugeldagleraugum,
að því er segir í tilkynningu.
„Fikt með flugeldavörur er allt-
of algengt hjá krökkum og þá sér-
staklega strákum. Þeir taka flug-
elda í sundur, safna púðrinu
saman og búa til sínar sprengjur
eða taka kökur í sundur og
sprengja hvern hólk fyrir sig.
Þessi leikur er stórhættulegur og
foreldrar verða að vera vakandi
og meðvitaðir um það sem börn
þeirra eru að fást við þessa daga,“
segir í tilkynningu.
Gefa gleraugu