Morgunblaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009 Hollráð um eldvarnir oryggi.is Hringdu í 570 2400 og fáðu ókeypis öryggisráðgjöf heim! Reykskynjarar bjarga mannslífum Á hverju heimili ættu að vera reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnateppi. Fleiri hollráð og netverslun með öryggisvörur er að finna á oryggi.is. PPII PPAAA RRRRRR \\\\\\\\\\\\ TTTTTTTTTTBBBBB WWWWWW AAAA •• SSÍÍ AAA • 9 2 2 5 4 5 44 9 2 2 5 9 2 2 og St. Jósefsspítali-Sólvangur í Hafn- arfirði. Í þeirri skýrslu var t.d. ekki mælt með flötum niðurskurði og í Morgunblaðinu var haft eftir Huldu að slíkur niðurskurður væri beinlínis hættulegur. Starfshópnum, sem Álfheiður skip- aði í kjölfarið, var ætlað að fara yfir gögn um starfsemi og rekstur þessara sjúkrastofnana og greina ábatann af þremur helstu tillögum Huldu og fé- laga, þ.e. að endurskipuleggja þjón- ustu í skurðlækningum, fæðingar- og kvensjúkdómaþjónustu og seinni hluta sjúkrahúsmeðferðar. Í heilbrigðis- ráðuneytinu er litið svo á að engar til- lögur séu gerðar í skýrslunni í sjálfu sér, heldur sé hún fyrst og fremst greining á kostnaði og ábata, miðað við tilteknar gefnar forsendur eins og það er orðað. Mikill munur á stofnunum Margt fleira forvitnilegt er í skýrsl- unni, eins og kostnaður við aðkeypta sérfræðiþjónustu og upplýsingar um fjölda fæðinga á hverja ljósmóður og nýtingu skurðstofa. Eru þær tölur mjög mismunandi eftir sjúkrastofnun- um. Þannig nam aðkeypt klínísk sér- fræðiþjónusta 216 milljónum kr. á St. Jósefsspítala árið 2008 en sami kostn- aður á LSH nam 21 milljón. Fjöldi fæðinga á hverja ljósmóður var um 28 á HSu, en nærri 50 fæðingar á hverja ljósmóður á LSH. Þá var nýting á skurðstofu HSu 22%, en 44-85% á öðr- um sjúkrahúsum. Einnig er athyglis- vert að í fyrra fæddu 40% fæðingar- kvenna af Suðurlandi á LSH á meðan sama hlutfall var 28-29% hjá konum af Suðurnesjum og Vesturlandi. Spara mætti 1.700 milljónir  Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins bendir á sparnaðarmöguleika með flutningi verkefna milli sjúkrahúsa á suðvesturhorninu  Heilbrigðisráðherra segir engar ákvarðanir teknar ofan frá Morgunblaðið/Ómar Sjúkrahús Starfsemi sjúkrahúsanna á suðvesturhorni landsins er mismunandi og miklir möguleikar taldir á frek- ara samstarfi eða flutningi verkefna á milli stofnana. Ávinningurinn er metinn í milljörðum króna. FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is UM ER er að ræða flutning á öllum skurðlækningum og fæðingar- og kvensjúkdómaþjónustu frá Kraga- sjúkrahúsunum til Landspítalans og einnig flutning á hluta legusjúklinga eftir bráðaaðgerðir á Landspítalanum til Kragasjúkrahúsanna. Með flutningi fleiri verkefna mætti ná fram enn meiri ábata í krónum talið, eins og varðandi meltingarrannsóknir, grind- arbotnsmeðferð, rannsóknir og sam- vinnu um rekstrarverkefni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps sem Álfheið- ur Ingadóttir heilbrigðisráðherra skip- aði fljótlega eftir að hún tók við af Ög- mundi Jónassyni í haust. Megintilefnið var önnur skýrsla sem starfshópur, undir stjórn Huldu Gunnlaugsdóttur forstjóra Landspítalans, hafði skilað til ráðherra í lok september sl. Þar voru lagðar fram nokkrar tillögur að að- gerðum til endurskipulagningar á þjónustu Kragasjúkrahúsanna, sem eru Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi (HSu), Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) Samanburður milli sjúkrastofnana LSH HSu HSS SHA St.Jós. Fjöldi fæðinga pr. ljósmóður 49,7 27,6 35,2 39,1 - Fjöldi fæðinga pr. lækni 662 97,4 132,1 90,3 - Fjöldi sjúklinga í skurðaðgerð 12.764 582 960 1.417 2.189 Nýting á skurðstofum á ársgrunni 65-85% 21,6% 44% 43,5% 62,3% Mánaðarlaun lækna (þús.kr) 1.106 1.476 1.678 1.161 610* Mánaðarlaun hjúkrunarfr. (þús.kr.) 642 550 527 517 501 Mánaðarlaun sjúkraliða (þús.kr.) 500 388 366 400 351 Mánaðarlaun ljósmæðra (þús.kr.) 654 626 592 588 - Mánaðarlaun geislafræðinga (þús.kr.) 557 630 528 578 426 Aðkeypt klínísk sérfæðiþj. (milljónir kr.) 21,5 63,1 45,1 69,3 215,9 * Læknar án sérfræðileyfa, en kostnaður v. sérfræðilækna á St. Jósefsspítala var 2,2 milljónir kr. á mán. Tölur frá 2008 samkv. skýrslu starfshóps heilbrigðisráðherra í desember 2009 Með flutningi ákveðinna verkefna á milli Kragasjúkrahúsanna svo- nefndu og Landspítalans mætti spara árlega um 1.700 milljónir. ÁLFHEIÐUR Ingadóttir heilbrigðisráðherra segir að ekki verði farið í tilflutning á verkefnum milli sjúkra- húsanna á komandi ári. Skýrslan muni engu að síður nýtast stjórnendum vel í þeim niðurskurði sem fram- undan er. „Ekki verða teknar einhliða ákvarðanir ofan frá um tilflutning verkefna. Menn telja sig geta hag- rætt og gert hlutina betur og ódýrar samkvæmt ýmsum þeim leiðum sem bent er á í skýrslunni. Hún er ákveðið verkfæri og varpar nýju ljósi á starfsemi Kragasjúkra- húsanna,“ segir Álfheiður en bendir á að allar tölur í skýrslunni séu frá árinu 2008, eða fyrir bankahrunið. Mikið hafi breyst síðan þá og hátt í 500 milljóna króna niðurskurður orðið á sjúkrahúsunum og álíka mikið verði á næsta ári. „Þessar stóru tölur, sem verið er að horfa á í skýrslunni, eru því ekki raunverulegar. Mikið hefur breyst en samanburðurinn sýnir engu að síð- ur að sjúkrahúsin hafast ólíkt að. Eflaust mun eitthvað af verkefnum flytjast á milli en það verður ekki gert með stóru valdboði að ofan. Reynslan sýnir að slíkum ákvörðunum hefur verið tekið illa, bæði af stjórnendum sjúkrahúsanna, starfsmönnum og ekki síst íbúum og sveit- arstjórnum á viðkomandi svæði. Það er ekki merki um pólitískan kjark að efna til stríðs við íbúa og alla hagsmunaaðila eins og þáverandi heil- brigðisráðherra, Guðlaugur Þór, gerði í upphafi þessa árs,“ segir Álf- heiður. Bara önnur hliðin á peningnum Spurð hvort ráðuneytið verði samt ekki að taka þessar ákvarðanir, til að ná fram raunverulegum sparnaði, segir hún niðurstöður skýrslunnar bara aðra hliðina á peningnum. Eftir sé að skoða t.d. hve miklum verk- efnum Landspítalinn geti tekið við, eins og auknum fæðingum, án þess að ráðast í nýframkvæmdir. Ekki sé tekið tillit til slíks kostnaðar í skýrsl- unni, eða ferðakostnaðar fyrir sjúklinga. Verkfæri til ákvarðanatöku Álfheiður Ingadóttir BJÖRN Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir það verk- efni heilbrigðisráðuneytisins að skipuleggja heilbrigð- isþjónustuna í landinu. Skýrslan fjalli um skipulagið og hvernig þjónustan eigi að fara fram. „Mér fyndist eðli- legt að reynt yrði að nýta þessa miklu vinnu og tillögur sem koma fram í skýrslunni. Þarna er bent á að hægt sé að ná fram töluverðum sparnaði í heilbrigðiskerfinu án þess að það komi niður á þjónustu við sjúklinga, og jafn- vel gert hana betri,“ segir Björn og telur Landspítalann í stakk búinn til að taka til sín aukin verkefni. Hægt sé að nýta húsnæði, starfsfólk og tæki enn betur en gert sé í dag. Spurður hvort farið verði eftir ábendingum í skýrslunni segist Björn ekki sjá merki þess ennþá, „sem mér finnst miður“. Ákveðið frumkvæði í þessum efnum verði að koma frá heilbrigðisráðuneytinu en það taki að auki sinn tíma að ná fram tilflutningi verkefna milli stofnana. Getum bætt við verkefnum Björn Zoëga GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, þingmaður og fv. heil- brigðisráðherra, segir niðurstöðu starfshóps heilbrigð- isráðherra ekki koma sér á óvart, hún sé enn ein stað- festingin á hinu augljósa; að ráðast verði í skipulagsbreytingar frekar en að fara í flatan nið- urskurð. „Þegar við ætlum að reyna að halda uppi þjón- ustu á heimsmælikvarða, þá er nauðsynlegt að fara í skipulagsbreytingar í stað þess að fara leið vinstrirík- isstjórnarinnar, að vera með flatan niðurskurð. Það mun stórskerða þjónustuna og búa til biðlista sem við höfum ekki séð árum og áratugum saman. Óvíst er hvort það tekst að ná sömu gæðum þjónustunnar ef farið verður í flatan niðurskurð. Sú leið er atlaga gegn sjúklingum og starfsfólki í heil- brigðiskerfinu, sérstaklega á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta snýst um pólitískan kjark og hann er enginn hjá síðustu tveimur heil- brigðisráðherrum,“ segir Guðlaugur Þór. Stórskerða á þjónustuna Guðlaugur Þór Þórðarson 442 milljóna kr. ábati af flutningi fæð- ingar- og kvensjúkd.þjónustu af Kragasjúkrahúsum á LSH. 453 milljóna kr. ábati af flutningi 30% legusjúklinga af LSH á Kraga- sjúkrahúsin eftir bráðaþjónustu. 835 milljóna kr. ábati af flutningi allra skurðlækninga af Kragasjúkra- húsum á Landspítalann. 216 milljónir kr. fyrir aðkeypta klíníska sérfræðiþjónustu á St. Jósefsspít- ala 2008. 21 milljón kr. fyrir aðkeypta klíníska sérfræðiþjónustu á Landspítalan- um 2008.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.