Morgunblaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 6
BRÝNT er fyrir farþegum sem ætla flugleiðina vestur um haf frá Keflavíkur- flugvelli að hafa með sér eins lítið af handfarangri og kostur er til að lágmarka taf- ir við innritun. Bandaríkjastjórn hefur hert vopnaleit á flugvöllum í kjölfar mis- heppnaðrar tilraunar Nígeríu- mannsins Umar Farouk Abdulmu- tallab til að sprengja upp flugvél á leið frá Amsterdam til Detroit. En eins og kunnugt er var Ab- dulmutallab yfirbugaður af hol- lenskum farþega er hann reyndi að kveikja í sprengiefni um borð. Tvisvar í gegnum leitarhlið Aðspurður hvernig farþegar á leið í Bandaríkjaflug verði varir við aukna leit á Keflavíkurflugvelli segir Friðþór Eydal, talsmaður vallarins, að þeir muni þurfa að fara í gegnum annað leitarhlið áður en þeir ganga um borð í flugvélina. Þá verði handfarangur grand- skoðaður við síðara hliðið áður en farþegum verði hleypt um borð. Farþegar lágmarki handfarangur í flugi Friðþór Eydal 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009 Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is „INNHEIMTAN hefur gengið mun betur en við áttum von á og færri mál hafa farið í milliinn- heimtu en áður,“ segir Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra náms- manna (LÍN). Milliinnheimta er það kallað þegar aðrir en LÍN taka við innheimtunni. Á síðasta gjalddaga, hinn 1. september, fóru 621 af um 24.000 kröfum vegna námslána í milliinnheimtu vegna vanskila. Nemur þetta um 2,6% allra krafna en á sama tíma í fyrra nam hlutfallið 4,2%. Guðrún segist telja að úrræði vegna breyttra aðstæðna vegna efnahagserfiðleikanna eigi drjúg- an þátt í betri heimtum. Felast þessi úrræði meðal annars í því að þeir sem hafa orðið fyrir meira en 20% minnkun tekna milli áranna 2008 og 2009 eiga kost á lækkun tekjutengdra afborgana eða nið- urfellingu þeirra að vissum skilyrðum uppfylltum. „Um 300 manns nýttu sér þetta og það fólk er þá með viðráðanlegri upphæð að greiða af,“ segir Guðrún. „Við teljum að þetta hafi gert að verkum að færri mál hafa farið í innheimtu.“ Litlar áhyggjur af heimtu af lánum Ekki liggur fyrir ennþá hvernig heimtur af þeim kröfum sem eru ennþá í vanskilum eru þar sem ekki er lengra síðan en í nóvember að þær voru teknar til innheimtu. Er reiknað með að af- drif þeirra verði ljós í byrjun nýs árs. „Við erum ekkert að hafa áhyggjur af þessu, fólk nýtir sér yfirleitt að dreifa greiðslunum,“ seg- ir Guðrún og kveður ekki horft mikið til þeirra sem standa við samkomulag um greiðslur í kjölfar innheimtu. Meiri áhersla sé á þá sem ekki virða umsamið greiðslufyrirkomulag. Betri heimtur af námslánunum  Mun færri kröfur vegna námslána til innheimtu nú en á sama tíma á liðnu ári  Úrræði vegna fjárhags lántaka árangursrík að mati framkvæmdastjóra LÍN » 621 krafa í innheimtu nú » 1.065 á sama tíma í fyrra » Ýmis úrræði vegna fjárhags » Óljóst um kröfur í vanskilum » Fólk nýtir greiðsludreifingu Morgunblaðið/Kristinn Háskólatorg Námslán eru mörgum stúdentum með öllu ómissandi. ÞAÐ eru ekki allir smáfuglar í jafngóðum mál- um og starrarnir sem halda til við pylsustaðinn Bæjarins bestu í Tryggvagötu. Þeir geta geng- ið að ætinu vísu en nú er örugglega hart í ári hjá mörgum smáfuglinum. Snjóað hefur um allt land og æti af skornum skammti. Því er rétt að brýna fyrir landsmönnum að muna eftir smá- fuglunum. Oft hefur verið þörf en nú er vissu- lega nauðsyn. Morgunblaðið/Ómar NÚ ÞARF FÓLK AÐ MUNA EFTIR SMÁFUGLUNUM FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is LOFTUR Árnason, framkvæmda- stjóri Ístaks hf., segir að verulegur samdráttur hafi verið hjá fyrirtæk- inu undanfarin misseri. Haustið 2008 hafi fyrirtækið verið með um 1.000 manns á launaskrá en nú séu þeir um 400 og fari fækkandi. Nán- ast engin verkefni séu á Íslandi en aukin verkefni erlendis hafi bjargað stöðunni. Ný verkefni Ístak er að byggja leikskóla í Nuuk á Grænlandi og á verkefninu að ljúka í maí 2011. Fyrirtækið er með nokkur verkefni í Noregi, þar af tvö ný jarðvinnuverkefni í Grylle- firði og Andeneshöfn, og er að fara að byrja á þjónustubyggingum fyrir skemmtiferðaskip í Falmouth á Ja- maíka. Verkefnin í Noregi eru nánast ein- göngu unnin af Íslendingum, Græn- lendingar koma einnig að málum í Nuuk og gert er ráð fyrir um 30 til 40 íslenskum stjórnendum á Jam- aíka. „Við verðum með á milli 200 og 300 manns í vinnu erlendis á næsta ári,“ segir Loftur og telur að fyr- irtækið verði með um 100 til 150 manns í vinnu hérlendis eftir ára- mótin. „Við sköpum gjaldeyri fyrir þjóðina og spörum atvinnuleys- isbætur,“ segir hann. Ónýtur markaður Eftir því sem verkefnunum hefur fækkað hefur fólki verið sagt upp hjá Ístaki en Loftur segir að nýju jarðvinnuverkefnin í Noregi haldi mönnum í vinnu. Hins vegar sjái hann ekki fram á ný smíðaverkefni að óbreyttu. „Þetta er alveg stein- dautt hér,“ segir hann og vísar til verkefnastöðunnar innanlands. „Markaðurinn er ónýtur.“ Gunnar Þorláksson hjá Bygging- arfélagi Gylfa og Gunnars ehf., Bygg hf., tekur í sama streng. Hann segir að þegar allt hafi verið á fullu hafi fyrirtækið verið með um 150 manns í vinnu fyrir utan undirverktaka en nú séu um 30 manns eftir til að ljúka verkefnum sem byrjað hafi verið á og engar nýframkvæmdir séu í gangi. „Ég hef ekki séð steypusíló í ár,“ segir hann. „Það er algjör óvissa framundan,“ bætir hann við. Ekkert í gangi „Það eru engin verk í gangi,“ heldur Gunnar áfram og segir mik- ilvægt að hjólin fari að snúast á ný. Alla framtíðarsýn vanti í bygg- ingageirann og verktakaiðnaðinn. Hafa beri í huga að mikil fjárfesting liggi í óloknum byggingum og það sé allra hagur að ljúka þeim til að geta komið þeim í leigu eða sölu. Þessar byggingar séu ekki eins margar og látið hafi verið í veðri vaka og mik- ilvægt sé að bankarnir og stjórnvöld vinni með atvinnulífinu í þessa veru. Aukin verkefni erlendis  Ístak hf. með um 200 til 300 starfsmenn á Grænlandi, Jamaíka og í Noregi  Ekkert að gerast innanlands en mikið undir í hálfköruðum byggingum Byggingarfyrirtæki hafa ekki úr miklu að moða hérlendis og tals- menn þeirra segja að staðan sé vægast sagt slæm en verkefni er- lendis halda Ístaki á floti um þessar mundir. Fyrstu 10 mánuði ársins voru 747 fyrirtæki tekin til gjaldþrota- skipta en 600 fyrirtæki á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýs- ingum hjá Hagstofu Íslands. Aukningin er 24,5% á milli ára og voru flest gjaldþrotin í bygging- arstarfsemi og mannvirkjagerð eða samtals 203 en voru 150 árið 2008. Í gær voru um 16.200 manns skráðir atvinnulausir hjá Vinnu- málastofnun. Sem fyrr er at- vinnuleysið langmest á höf- uðborgarsvæðinu eða tæplega 11.000 manns. Á þriðja ársfjórðungi ársins voru að meðaltali 10.900 manns án vinnu og í atvinnuleit, sam- kvæmt Hagstofunni, en 16.600 manns á öðrum ársfjórðungi og 12.700 manns á þeim fyrsta. Langflest gjaldþrot í byggingargeiranum Á FUNDI alls- herjarnefndar í gær var sam- þykkt breyting- artillaga þess efnis að níu manna þing- mannanefnd, sem verður kosin á Alþingi í dag eða á morgun, fái sömu stöðu og rannsóknarnefnd Alþingis, skv. 39 gr. stjórnarskrárinnar. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar, bendir á að fyrningarfrestur vegna hugs- anlegra brota ráðherra í tengslum við bankahrunið muni ná þrjú ár aftur í tímann, eða til desember 2006. „Mér finnst skipta máli að þingið sendi skýr skilaboð um að það ætli að taka þetta mál föstum tökum. Það stendur ekki til að gera eitt- hvað sem getur fyrnt mál,“ segir hún. Steinunn segir mikilvægt að þeir sem verða valdir í nefndina tengist ekki á nokkurn hátt aðdraganda hrunsins. „Það sé hafið yfir vafa að það séu einhver hagsmunatengsl, hafi menn setið í bankaráðum eða annað slíkt,“ segir hún. Níu manna þingnefndin verður væntanlega skipuð á morgun eða miðvikudag. Skv. frumvarpinu á hún að skila af sér skýrslu eigi síðar en í september nk. Fyrningarfrest- ur hugsanlegra brota þrjú ár Steinunn Valdís Óskarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.