Morgunblaðið - 29.12.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
ÞRÁLÁTUR orðrómur hefur verið uppi um að Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sé jafnvel
að hætta í embætti um áramótin og muni tilkynna
það á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á gamlársdag.
Samstarfsmenn Jóhönnu sögðu við Morgunblaðið í
gær að ekkert væri hæft í þessum orðrómi, og hið
sama sagði hún sjálf í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöldi.
Jafnframt er það talið mjög ólíklegt að nokkrar
hrókeringar aðrar verði á ráðherraembættum um
áramótin en miðað við áform ríkisstjórnarinnar um
frekari sameiningar ráðuneyta og tilflutning verk-
efna þeirra gæti ráðherrum átt eftir að fækka á
komandi ári. Til stóð að leggja fram frumvarp á Al-
þingi fyrir áramót um sameiningu sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytisins annars vegar og iðnað-
arráðuneytisins hins vegar í eitt atvinnuvega-
ráðuneyti, en af því verður ekki fyrr en eftir áramót.
Andstaða við nýtt atvinnuvegaráðuneyti
Frumvarpið hefur verið í smíðum í forsætisráðu-
neytinu en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins hefur það m.a. mætt nokkurri andstöðu hjá nú-
verandi ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðar-
mála, Jóni Bjarnasyni, og einnig meðal umræddra
atvinnugreina sem hafa talið það óráð að hrófla við
þessum ráðuneytum á meðan viðræður um aðild að
Evrópusambandinu eru að fara í gang. Er engu að
síður stefnt að því að atvinnuvegaráðuneytið taki til
starfa um mitt árið 2010.
Ríkisstjórnin hefur áður boðað að fækka beri
ráðuneytum úr 12 í 9. Auk sameiningar í atvinnu-
vegaráðuneyti stendur til að sameina félags- og
tryggingamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið
í nýtt velferðarráðuneyti og innanríkisráðuneyti
verði til við samruna dóms- og mannréttindaráðu-
neytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis
en tvö þau síðast töldu fengu þessi heiti nýverið með
flutningi verkefna milli ráðuneyta. bjb@mbl.is
Hrókeringar um áramótin ólíklegar
Morgunblaðið/Golli
Stjórnin Jóhanna og Steingrímur J.
hafa leitt ríkisstjórnina til þessa.
Talið að engar breytingar verði á ríkisstjórninni um áramót Frumvarp vænt-
anlegt eftir áramót um sameiningu þriggja ráðuneyta í eitt atvinnuvegaráðuneyti
ÍBÚAR á höfuðborgarsvæðinu eru loksins búnir að fá jólamjöllina sína og
þurfa ekki lengur að öfunda Norðlendinga – nú eða hafa samúð með þeim.
Veðurstofan spáði einhverri snjókomu á svæðinu í nótt en norðanátt í dag,
allt að 13 metrum á sekúndu og léttskýjuðu. Gæti þá sums staðar farið að
skafa vegna þess hve snjórinn er léttur og best fyrir ökumenn að vera við
öllu búnir og ana ekki af stað á vanbúnum bílum.
Morgunblaðið/Kristinn
LÉTT AÐ SKAFA
LEIKSKÓLARÁÐ Reykjavík-
urborgar hefur ákveðið að lækka
svokallaða þjónustutryggingu,
greiðslu til foreldra barna yngri en
36 mánaða sem nýta sér ekki aðra
þjónustu, úr 35 þúsund krónum á
mánuði í 25 þúsund krónur. Breyt-
ingin tekur gildi 1. janúar nk. en frá
og með 1. ágúst lækka greiðslurnar
ennfrekar eða í 20 þúsund krónur á
mánuði.
Samkvæmt reglum um þjón-
ustutryggingu er hún greidd þar til
leikskólapláss býðst eða önnur þjón-
usta, s.s. hjá dagforeldri eða sjálf-
stætt starfandi leikskóla. Þjón-
ustutryggingu er ætlað að brúa bilið
frá því að fæðingarorlofi lýkur og
þar til barnið kemst í leikskóla. For-
eldrar geta valið um að nýta greiðsl-
urnar eftir þörfum og aðstæðum.
Lækka greiðslur
til barna utan
leikskóla
Lækkun Heimgreiðslur lækka.
TÆPLEGA 1.500 fjölskyldur fengu
jólaaðstoð Fjölskylduhjálpar Ís-
lands. Þar af leituðu 50 fjölskyldur
eftir neyðaraðstoð þ.e. eftir að
formlegri úthlutun lauk.
Áberandi er hversu margt ungt
fólk leitaði aðstoðar. Einnig leituðu
margir öryrkjar eftir aðstoð í
fyrsta sinn. Fjörutíu sjálfboðaliðar
tóku þátt í starfi Fjölskylduhjálp-
arinnar. Úthlutun hefst að nýju
miðvikudaginn 13. janúar næst-
komandi kl. 15.
1.500 fjölskyldur
fengu jólaaðstoð
57 kaupsamn-
ingum var
þinglýst á
höfuðborgar-
svæðinu 18.
desember til og
með 24. desem-
ber. Heildar-
veltan var
1.506 milljónir
króna og með-
alupphæð á samning 26,4 milljónir
króna.
Tvær eignir voru seldar á Suð-
urnesjum en sex á Akureyri.
Heildarveltan nyrðra var 181
milljón króna og meðalupphæð á
samning 30,2 milljónir króna. Á
sama tíma var 2 kaupsamningum
þinglýst á Árborgarsvæðinu.
Heildarveltan var 23 milljónir
króna.
57 kaupsamningar
í vikunni fyrir jól
www.noatun.is
Opið til kl. 20.00 í kvöld
Hafðu það
gott um
áramótin
TUC PAPRIKUKEX
KR./PK.
119
VÍNBER
RAUÐ
KR./KG
949
MELBA TOAST
KEX, 2 TEGUNDIR
KR./PK.
239
ALLT FYRIR
ÁRAMÓTAP
ARTÝIÐ
OSTAR
ÓMÓTSTÆÐ
ILEGA GÓÐ
IR