Morgunblaðið - 29.12.2009, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Á Þorláks-messu skil-aði IFS
greining umbeð-
inni skýrslu til Al-
þingis um áhættu-
greiningu
Icesave-samnings og skulda-
byrðar þjóðarinnar. Stjórn-
arliðar og stjórnarandstæð-
ingar höfðu gert um það
samkomulag að ræða rækilega
í nefnd þau atriði sem þar er
fjallað um. Engu að síður
ákvað meirihlutinn að afgreiða
málið úr nefnd áður en skýrsla
IFS greiningar fengist rædd.
Þeim sem lesa umrædda
skýrslu verður fljótlega ljóst
hvers vegna stjórnarliðarnir
ákváðu að hafa sem minnsta
umræðu um hana.
Skýrsla IFS greiningar er í
raun einn samfelldur áfell-
isdómur yfir Icesave-samning-
unum og þeirri fyrirhuguðu
lagasetningu sem Alþingi ræð-
ir nú. Augljóst er að áhættan
af samningnum er að mati
skýrsluhöfunda öll á annan
veginn og um forsendur Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins segir
að þær virðist langflestar vera
„mjög bjartsýnar“. Þá er bent
á að áhættugreining út frá
mjög bjartsýnni spá vanmeti
áhættuna og þetta sé gryfja
sem Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn falli í. Bent er á að hann
vanmetur sveiflur í íslensku
efnahagslífi stórlega. IFS
greining telur líklegt að álags-
próf Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
séu marktækari fyrir lönd þar
sem auðveldara er að spá um
efnahagsstærðir og þar sem
sveiflur eru minni.
Það hjálpar Ís-
lendingum þó lítið
þegar þeir þurfa
að kljást við Ice-
save-skuldbind-
ingar sem hengdar
hafa verið á þá með vísan í
þessi álagspróf sem ekki eiga
við.
Ísland varð ofurbjartsýninni
að bráð í útrásinni svokölluðu.
Þá trúðu menn því að verð á
mörkuðum gæti aðeins farið í
aðra áttina, að vextir yrðu allt-
af lágir, að lánsfjármagn yrði
alltaf aðgengilegt, gengi gjald-
miðla ætíð hagfellt og jafnvel
að meiri áhætta væri fólgin í
því að sitja hjá en að taka þátt
í gullæðinu.
Þjóðin situr uppi með afleið-
ingar þessa hugsunarháttar og
fær því ekki breytt. En það er
örugglega versta leiðin út úr
vandanum að ana inn í fram-
tíðina með sams konar glýju í
augunum. Telja þingmenn
virkilega að ofurbjartsýni á að
hagvöxtur, gengi gjaldmiðla,
vextir, lánsfjármarkaðir og
aðrir þættir efnahagslífsins
þróist okkur ætíð í hag sé
vænlegasta veganestið á næstu
árum og áratugum? Vitaskuld
er ekki svo.
Spá Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins um þróun efnahagsmála
hér á landi er óskhyggju bund-
in eins og IFS greining bendir
á. En það er ekki vegna þess
að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
sé í eðli sínu bjartsýn stofnun.
Ástæðan er einfaldlega sú, að
með raunhæfum forsendum
hefði dæmið aldrei gengið upp.
Icesave-dæmið var
látið ganga upp með
of bjartsýnum
forsendum AGS. }
Ofurbjartsýni að bráð
Komin er út íBretlandi mik-
il bók um sögu
bresku leyniþjón-
ustunnar MI5. Bók-
in er unnin í sam-
starfi við
leyniþjónustuna,
sem heimilað hefur
höfundinum, Cristopher And-
rew prófessor, aðgang að gögn-
um sínum, þó ekki að eigin vali.
MI5 hefur lengi lotið sérstökum
lögmálum. Skammt er síðan til-
vera hennar var viðurkennd op-
inberlega og í áratugi hafði eng-
in mynd verið birt af yfirmanni
hennar. Það var gert í fyrsta
sinn árið 1992 þegar afburða-
snjöll kona varð yfirmaður
leyniþjónustunnar, Stella
Rimmington. Lög voru ekki sett
um leyniþjónustuna fyrr en
seint á síðustu öld. Verkefni
hennar breyttust eftir þeim ógn-
unum sem við var að fást. Þær
komu úr býsna ólíkum áttum.
Frá hryðjuverkahópum gyðinga
fyrir stofnun Ísraels, starfsemi
kommúnista í Bretlandi, frá fas-
istaríkjum og svo
Sovétríkjunum í
kalda stríðinu,
norðurírskum
hryðjuverkahópum,
sjálfstæðisbar-
áttumönnum í ný-
lendunum og þar
fram eftir götunum.
Þegar lög um þessa óvenjulegu
starfsemi voru fyrst sett árið
1989 var verkefni þjónustunnar
tvískipt. Að tryggja annars veg-
ar almennt öryggi gegn ógnum
njósna, hryðju- og skemmd-
arverka og hins vegar að
tryggja heilbrigða efnahags-
starfsemi konungsríkisins gegn
hættum sem stafað gætu frá
starfsemi eða fyrirætlunum ein-
staklinga utan Bretlands. Orð-
rómur hefur lengi verið uppi um
að MI5 hafi haft afskipti af
starfsemi Íslendinga í Bret-
landi. Hafi það verið gert er
ljóst að slíkt væri í samræmi við
annað af tveimur meginverk-
efnum MI5 og er þá ekki nauð-
synlegt að vísa til hryðjuverka-
laga.
Annað meginverk-
efni MI5 að breskum
lögum er að verja
„heilbrigði bresks
efnahagslífs“.}
Kom MI5 að málum?
H
undur! Þarna er hundur! hugsaði
hún þar sem hún stóð í dyrunum
og horfði út. Snjórinn féll þráð-
beint til jarðar og á stuttum tíma
var komið hnédjúpt snjólag. Ég
verð að fara út, hugsaði hún.
Galvösk snaraði hún sér í útigallann og setti á
sig góða húfu. Vettlingunum gleymdi hún ekki
og góður trefill var vafinn um hálsinn. Ökklaháir
gönguskór settu síðan punktinn yfir i-ið og hún
var klár í slaginn.
Þegar út var komið gekk hún smáspöl og
varpaði sér síðan til jarðar. Hló stundarhátt og
ákvað að gera engil. Sundur, saman, sundur,
saman. Svo stóð hún varlega upp og sjá: Á jörð-
inni var fullskapaður engill.
Yfir sig kát yfirgaf hún engilinn sem hún hafði
skapað á örskotsstundu og gekk eftir göngu-
stígnum. Að stuttri stundu liðinni fór henni þó að leiðast
gangan og reyndi að hugsa upp eitthvað sem hún gæti
gert. Hugmyndin var ekki lengi að fæðast og hún svipaðist
um eftir góðum stað til að byggja snjóhús. Hún ætlaði sko
að byggja flottasta og stærsta snjóhús sem nokkurn tím-
ann hefði sést. Þó að snjórinn væri dúnmjúkur og ekkert
endilega ákjósanlegt byggingarefni lét hún það ekki á sig
fá. Þegar þarna var komið sögu hafði gripið hana metn-
aður og kátínan var á bak og burt. Nú skyldi byggt.
Með tvær hendur tómar mótaði hún hvern snjókögg-
ulinn á fætur öðrum, reyndi að þjappa snjónum vel saman
svo byggingin yrði þéttari. Hún gerði sér grein fyrir að
ekki þyrfti mikið til svo allt hryndi en bægði
hugsuninni um það frá sér. Eftir mikið og
langvarandi púl fóru veggirnir að koma í ljós
og hún ákvað að halla þeim inn í réttum hlut-
föllum svo þeir næðu á endanum saman í þaki.
Hún þóttist viss um að sér tækist að reisa
stórt og mikið snjóhús.
Klukkustundir liðu og hún var orðin renn-
sveitt í útigallanum, húfan seig stöðugt niður í
augun og þreytan sagði til sín. Vettlingarnir
voru löngu orðnir rennandi blautir og þungir
en áfram hélt hún.
Jæja, sagði hún loks við sjálfa sig. Nú get
ég farið inn í snjóhúsið! Hún dáðist að hand-
arverki sínu og bægði enn frá sér hugsuninni
um hversu veikbyggt húsið væri. Inn skreið
hún og sá svo að hún gat vel staðið upprétt í
dyragættinni. Þar stóð hún og horfði út.
Hundur! Þarna er hundur! hugsaði hún og horfði eins og
dáleidd á risastóran hundinn nálgast. Hann var ofsakátur
og ærslaðist í snjónum. Of seint áttaði hún sig á að hann
stefndi beint á nýbyggt snjóhúsið. Veikbyggt eins og það
var myndi það ekki þola áhlaupið. Hún hopaði inn aftur og
beið þess sem verða vildi. Búmm! og allt hrundi í kringum
hana. Í gegnum snjóhrúguna kom von bráðar heit tunga
og sleikti hana í framan. Allt var ónýtt. Ísköld, rennandi
blaut og dauðþreytt staulaðist hún heimleiðis.
Næsta dag gerði hún sér grein fyrir að kuldinn og
þreytan höfðu gert sitt. Hún lagðist fárveik og barðist við
afleiðingar húsbyggingarinnar lengi. Lengi. sia@mbl.is
Sigrún
Ásmundar
Pistill
Nýbygging hrynur
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Heimsálfurnar tengj-
ast við Sturlugötu
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ö
flugur tengipunktur
sem settur hefur verið
upp í vélasal Reikni-
stofnunar Háskóla Ís-
lands við Sturlugötu
gerir Ísland að nýjum tengilið öfl-
ugustu rannsókna- og háskólaneta
heims. Jafnframt tengist Rann-
sókna- og háskólanet Íslands
(RHnet) norræna rannsókna- og há-
skólanetinu og bandarískum og evr-
ópskum rannsóknanetum með af-
kastamiklum tengingum. Þetta er
gert með þremur sjálfstæðum net-
tengingum út úr landinu, um Farice
og Danice-neðansjávarstrengina til
Evrópu og nú einnig um Greenland
Connect til Kanada og áfram með
neti Canarie til New York.
Tengipunkturinn „IceLink“ er
settur upp af NORDUnet sem teng-
ir saman rannsókna- og háskólanet
á Norðurlöndunum. Sæþór L. Jóns-
son, forstöðumaður Reiknistofnunar
og stjórnarmaður í NORDUnet,
segir að það hafi reynst góður og
hagkvæmur kostur fyrir NORDU-
net og RHnet að koma upp öflugum
tengipunkti hér á landi. Tengingar
hingað hafi verið keyptar í gegn um
Cantat-3-sæstrenginn og verið dýr-
ar. Þá kemur kanadíska rannsókn-
anetið Canarie til samstarfsins og
tengist þannig Evrópu beint í gegn-
um Grænland og Ísland. Verkefnið
er styrkt af bandaríska vís-
indasjóðnum NSF sem styður Glori-
ad verkefni um bætt netsamband
milli þjóðanna á heimskautasvæð-
inu. Með því fæst enn ein hringteng-
ingin um heiminn.
Stjórnvöld bera engan kostnað
RHnet hefur í nokkur ár verið að
athuga möguleika á því að bæta ut-
anlandstenginguna við NORDUnet
og voru stjórnvöld með hugmyndir
um að koma að því með samningum
við Farice hf. Áætlað var að það
myndi kosta íslensk stjórnvöld á
þriðja hundrað milljónir kr.
Samvinna NORDUnet við Kan-
adamenn og Bandaríkjamenn sem
stjórnvöld bera engan kostað af
spara því Íslendingum umtalsverða
fjármuni.
Verkefnið skapar einnig mögu-
leika til að bæta netsamskipti Fær-
eyinga og Grænlendinga og er verið
að athuga möguleika á uppsetningu
tengipunkta þar.
„Við erum komnir með öflugar og
öruggar tengingar,“ segir Sæþór.
Þrjár aðskildar leiðir eru nú inn í
hús hjá Reiknistofnun, frá Farice,
Danice og Greenland Connect-
sæstrengjunum. Sæþór vekur at-
hygli á því að það hafi valdið mikl-
um vandræðum og aukakostnaði
þegar Cantat-3-strengurinn rofnaði
fyrir tveimur árum.
Opnar nýjar víddir
Þessar afkastamiklu tengingar
við öflugustu rannsóknanet heims,
Géant3 í Evrópu í gegnum
NORDUnet og Internet2 í New
York fyrir milligöngu Canarie gera
íslenskum vísindamönnum kleift að
taka þátt í fleiri rannsóknaverk-
efnum. Tengingin er til dæmis for-
senda þess að hér verði hægt að
hýsa norrænt samvinnuverkefni um
rekstur ofurtölvu sem styður áætl-
anir um netþjónabú og yrði lyfti-
stöng fyrir vísindaiðkun. Þá gerir
hún mögulegt að hýsa hér stór
gagnaver sem knúin eru endurnýj-
anlegri orku.
Sæþór nefnir að samkeyrsla á
tölvubúnaði yfir netið færist stöðugt
í vöxt. Íslendingar hafi ekki getað
tekið þátt í slíkum verkefnum vegna
lélegra tenginga. Nú geti vís-
indamenn fengið beinan aðgang að
stjörnusjónaukanum á Kanaríeyjum
og ofursmásjá í New York, svo
dæmi séu tekin. Sæþór nefnir einnig
að hægt sé að tengja íslenska jarð-
vísindamenn við jarðskjálftamið-
stöðvar í Kína, Indlandi og um allan
heim og þeir unnið eins og á innan-
húsneti. „Þetta opnar alveg nýjar
víddir,“ segir hann.
Tengingar RHnets
Nuuk
St. John’s
Halifax
New York
Reykjavík
London
Amsterdam
Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn - Reykjavík (Danice - 10 Gbit)
Reykjavík - London (Farice - 2,5 Gbit)
New York - London (NORDUnet - 10 Gbit)
Reykjavík - Kanada (GL Connect - 4 Gbit)
Kanada - New York (Canarie - 2 Gbit)
NORDUnet tengipunktur
Canarie tengipubnktur
Nýr öflugur tengipunktur í Há-
skóla Íslands tvinnar saman öfl-
ugustu rannsóknanet heims. Ís-
lenska rannsókna- og
háskólanetið fær afkastamikla
tengingu við umheiminn.
Rannsókna- og háskólanet Íslands
(RHnet) var stofnað til að koma á
hraðvirku neti háskóla og rann-
sóknastofna á Íslandi og til að
tengja þessar stofnanir við erlend
rannsókna- og háskólanet. Það
tengist NORDUneti beint.
NORDUnet tengir saman rann-
sókna- og háskólanet á Norð-
urlöndum og sér þeim fyrir teng-
ingum við sambærileg net í
heiminum, meðal annars Géant3 í
Evrópu.
Canarie er kanadískt rannsókna-
og menntanet. Það tengir NORDU-
net auk þess við Internet2 í New
York en það hefur aðgang að öllum
helstu háskólum og rannsókna-
stofnunum Bandaríkjanna.
TENGING
YFIR HAFIÐ
››