Morgunblaðið - 29.12.2009, Side 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
✝ Kristján Jón Jón-atansson fæddist
í Súðavík 25. febrúar
1921. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Ísafirði 17. des-
ember sl. Foreldrar
Kristjáns voru hjónin
Sigurjón Jónatan
Sigurðsson frá Furu-
firði, f. 8.10. 1892, d.
8.5. 1978, og Ingi-
björg Kristjánsdóttir
frá Álftafirði, f.
28.11. 1891, d. 1.1.
1975. Kristján var
elstur í röð fjögurra systkina. Hin
eru Elín Valgerður Jónatansdóttir,
f. 16.6. 1926, d. 20.10. 1995, Krist-
jana Magnea Jónatansdóttir, f.
23.12. 1927, og Steinunn María
Jónatansdóttir, f.
30.4. 1931, d. 16.2.
1990. Kristján ólst
upp í Súðavík og bjó
þar alla tíð. Kristján
var vélstjóri að
mennt og stundaði
sjómennsku lengst af
sinni starfsævi eða
þar til hann varð fyr-
ir alvarlegu slysi um
borð í Valnum ÍS ár-
ið 1972, en þá missti
hann annan fótinn
við hné. Upp frá því
starfaði hann við
fiskvinnslu í Súðavík.
Útför Kristjáns fer fram frá
Súðavíkurkirkju í dag, þriðjudag-
inn 29. desember, og hefst athöfn-
in kl. 14.
Á sinn hægláta hátt var Stjáni
frændi okkar áberandi í mannlífi
Súðavíkur. Þeir sem þekkja til í
Súðavík sjá fyrir sér Stjána gamla á
rúntinum. Áður en heilsa hans brast
tók hann dag hvern bíltúrinn um
þorpið, út að Djúpagili á Súðavíkur-
hlíð og inn að Langeyri. Hringinn
tók hann í mestu makindum og tók
stöðuna á veðrinu, færðinni og
mannlífinu og fékk nýjustu aflatölur
af bryggjunni. Síðan kom hann við í
búðinni og hitti hina gárungana þar
sem þeir drukku kaffi og skiptust á
sögum. „Ég veit það ekki, en þetta
segja þeir … það er nú svona,“ sagði
hann svo þegar hann sagði fréttirn-
ar. Á okkar heimili var Stjáni fastur
punktur. Hann stal oft senunni yfir
borðhaldinu, gjarnan með óvæntu
innskoti, og gaman þótti honum að
vekja hlátur krakkanna með laumu-
legri stríðni.
Um leið og við kveðjum Stjána
frænda okkar viljum við þakka fyrir
samfylgdina sem einkenndist af
hlýju viðmóti og velvild í okkar garð.
Þakka vil ég kynni kær,
kveðju mína skrifa.
Kæri vinur með mér fær
minning þín að lifa.
(S.M.J.)
Kveðja frá frændfólki frá Súðavík,
Sædís María, Steinunn Björk
og Kristján Jón.
Kristján Jón
Jónatansson
✝ Kristrún JóhannaÁsgeirsdóttir
(Hanna) fæddist 4.
ágúst 1930 í Skógum
í Arnarfirði. Hún lést
20. desember síðast-
liðinn.
Foreldrar hennar
voru Ásgeir Bjarna-
son frá Stapadal í
Arnarfirði, f. 27.9.
1900, d. 6.4. 1970, og
Guðný Guðmunda
Þorvaldsdóttir frá
Rauðsstöðum í Arn-
arfirði, f. 28.3. 1908,
d. 4.11. 1985. Hún var önnur í röð
fimm systkina en hin eru: Margrét
Kristjana, f. 21. ágúst 1928 í Skóg-
um í Arnarfirði. Bjarni Þorvaldur,
f. 1. október 1935 í Skógum í Arn-
arfirði. Helga Þórunn, f. 4. mars
1942 á Siglufirði. Haraldur, f. 6.
apríl 1945, d. 31. janúar 1986.
Hinn 6. júní 1954 giftist Hanna
Sigurði Þorkelssyni, f. 22. febrúar
1924, d. 28. febrúar 2007. For-
börn og tvö fósturbarnabörn. 5)
Gunar, f. 4.5. 1956, maki Guðrún
Margrét Einarsdóttir, þau eiga
eina dóttur og fyrir á Guðrún þrjú
börn og eitt barnabarn. 6) Hörður,
f. 6.6. 1958, maki Ingibjörg Jó-
hannesdóttir, þau eiga þrjú börn.
7) Sigurður Þór, f. 16.7. 1959,
maki Sigrún Inga Magnúsdóttir,
þau eiga fjögur börn. 8) Hallfríður
Steinunn, f. 1.5. 1963, maki Ómar
Elíasson, þau eiga þrjú börn. 9)
Elías Sigurðsson, f. 23.5. 1964,
maki Emilía Bergljót Ólafsdóttir,
þau eiga tvö börn og fyrir á Emilía
einn son og eitt barnabarn. 10) Jó-
hanna Sigríður, f. 2.12. 1966, sam-
býlismaður er Finnur Einarsson,
þau eiga þrjú börn og fyrir á Finn-
ur eina dóttur. 11) Ásgeir, f. 2.8.
1970, sambýliskona hans er Svala
Steina Ásbjörnsdóttir, þau eiga tvo
syni.
Hanna var að mestu heimavinn-
andi húsmóðir, en þegar börnin
fóru að stálpast fór hún út á vinnu-
markaðinn og vann við ýmis störf,
en lengst af vann hún á saumastof-
unni Tinnu í Kópavogi og gegndi
m.a. starfi trúnaðarmanns þar.
Útför Kristrúnar Jóhönnu fer
fram frá Digraneskirkju í dag,
þriðjudaginn 29. desember, og
hefst athöfnin kl. 13.
eldrar hans voru
Þorkell Kristinn Sig-
urðsson Svarfdal,
fæddur á Hreiðars-
stöum í Svarfaðardal
8. apríl 1881, d. 20.
desember 1940, og
Jóhanna Guðríður
Kristjánsdóttir, fædd
í Aðalvík 6. janúar
1892, d. 11.12. 1986.
Hanna og Siggi eign-
uðust ellefu börn,
þau eru: 1) Guðný
Ásgerður, f. 16.1.
1949, fyrrverandi
maki Graham Grundy, þau eiga
tvö börn og fjögur barnabörn. 2)
Þorkell Jóhann, f. 4.8. 1950, maki
Gróa Halldórsdóttir, þau eiga þrjú
börn og sjö barnabörn. 3) Hrönn, f.
1.2. 1952, maki Ægir Björgvinsson,
þau eiga fjögur börn, fimm barna-
börn og fjögur fósturbarnabörn. 4)
Brynja, f. 31.5. 1953, fyrrverandi
maki Nói Jóhann Benediktsson,
þau eiga fjögur börn, sjö barna-
Það er margs að minnast og margs
að sakna. Við systkinin teljum það
ótrúlegt afrek hjá foreldrum okkar
að hafa alið upp allan þennan stóra
barnahóp. Það hlýtur að hafa verið
mikil vinna enda fylgir stórum
barnahópi stór vinahópur, en alltaf
stóð heimilið opið fyrir öllum og
plássleysi var ekki til í orðabók
mömmu. Heimilið var félagsmiðstöð
okkar barnanna og vina okkar. Það
var ótrúleg þolinmæði sem hún sýndi
okkur og aldrei kvartaði hún þegar
allur vinaskarinn var í heimsókn
jafnvel langt fram á kvöld. Mamma
var mjög gestrisin og heimilið stóð
alltaf opið fyrir gestum og gangandi
og alltaf var heitt á könnunni. Margir
ættingjar komu utan af landi og
fengu að gista, þrátt fyrir að öll rúm
væru full var alltaf fundið pláss. Fólk
kom líka til að fá fréttir, einnig um
framtíðina. Hún var ótrúlega glögg
að spá í bolla og rættust spádómarnir
oft. Margar peysurnar, vettlingana
og sokkana prjónaði hún á okkur
börnin og barnabörnin og var hún að
prjóna fram á síðustu viku. Mamma
var mikil jólakona og árlega bauð
hún barnabörnunum að koma og
mála piparkökur á meðan foreldr-
arnir fóru í jólaverslunina. Hún elsk-
aði að ráða krossgátur og myndagát-
ur og beið eftir þeim þegar þær komu
í blöðin. Mamma sagði okkur oft sög-
ur frá því í gamla daga, henni var
mjög minnisstæð fyrsta ferðin sín
suður með Catalínu-flugbát en hún
hafði unnið fyrir ferðinni með vinnu í
síldinni á Siglufirði og margar sögur
hafði hún að segja frá síldarævintýr-
inu. Mamma hafði mjög gaman af að
ferðast og munum við eftir mörgum
ferðum þegar við vorum lítil t.d. í
Borgarnes, á Siglufjörð og til Akur-
eyrar til að heimsækja ættingja.
Margar góðar minningar eigum við
úr ferðunum sem farnar voru í prent-
arabústaðina og útilegurnar á prent-
aralandið á Laugarvatni. Seinustu
árin höfum við systkinin oft litið inn í
Kjarrhólmann og alltaf tíndi mamma
það besta sem til var í kotinu og lagði
á borð fyrir okkur. Hún var klettur-
inn í lífi okkar og hélt okkur saman.
Ekki bara okkur heldur allri ættinni,
það var ótrúlegt hvað hún fylgdist vel
með og gat sagt fréttir af stórfjöl-
skyldunni. Hún var manneskja sem
aldrei kvartaði og hélt sínu striki,
sama hvað gekk á í lífinu. Þegar hún
greindist með krabbamein núna í
sumar ákvað hún að berjast við mein-
ið og gerði það fram á síðasta dag.
Það lýsir henni vel þegar hún var á
spítalanum hvað henni fannst gott að
hafa mikið af fólki í kringum sig, því
þegar við spurðum hana hvort hún
vildi ekki fá frið fyrir gestaganginum
svaraði hún: „Nei, ég vil engan frið,
ég vil bara heimsfrið.“ En þannig var
mamma, hún vildi hafa líf og fjör í
kringum sig. Takk fyrir allt sem þú
hefur gefið okkur, guð geymi þig
elsku mamma. Minning þín er ljós í
lífi okkar.
Dætur og synir.
Mamma kvaddi okkur á sunnu-
dagsmorgun, hinn 20. des. Við héld-
um að við fengjum meiri tíma með
henni og vorum sannfærð um að hún
kæmist yfir þessi veikindi sem
hrjáðu hana síðustu dagana, en hún
fór eins og hún vildi fara.
Ég minnist þess þegar ég var lítill
og fram á unglingsár þá var umgang-
urinn mikill á okkar heimili. Vinir
mínir voru oft í heimsókn og ekki
munaði um þótt einn þeirra eða fleiri
bættust við matarborðið en þá var
bara diski bætt við. Veit ég vel að vin-
ir mínir kunnu vel að meta mömmu
og það umburðarlyndi sem hún sýndi
okkur, en samt var hún ekkert lin við
okkur, ótrúlegur hæfileiki sem vænt-
anlega lærist á því að ala upp 11
börn.
Nú síðustu ár var fastur liður á
daginn að líta inn í Kjarrhólmann í
hádeginu og fá kaffi og brauð eða
eitthvað sem var til. Þar hittumst við
systkinin oft að spjalla um daginn og
veginn.
Seinnipartinn þegar við vorum bú-
in að sækja Róbert í leikskólann og
langaði að kíkja eitthvað í heimsókn
var tilvalið að kíkja aðeins til mömmu
og var alltaf gott að koma þangað.
Þetta tómarúm sem er að myndast
núna verður vandfyllt.
Ég kveð þig með söknuði.
Þinn sonur,
Ásgeir.
Kveðja frá tengdadóttur
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
Kristrún Jóhanna
Ásgeirsdóttir✝Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN KRISTINN HANSEN
kennari,
Sóleyjarima 9,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 19. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
30. desember kl. 11.00.
Ingibjörg Júlíusdóttir,
Kristín Jónsdóttir, Pálmi Erlendsson,
Hildur Jónsdóttir, Steindór S. Guðmundsson,
Gerður Jónsdóttir, Hannes Helgason
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐLAUGUR EYJÓLFSSON,
Árskógum 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju miðvikudaginn
30. desember kl. 13.00.
Margrét S. Jónsdóttir,
Helga Eygló Guðlaugsdóttir, Reynir Garðarsson,
Jón S. Guðlaugsson, Þórkatla Þórisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÞORLEIFUR ÓSKARSSON
frá Brú í Biskupstungum,
Fremri-Brekku,
Dalabyggð,
sem lést mánudaginn 21. desember, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
30. desember kl. 13.00.
Valgerður Lárusdóttir,
Sigrún Þorleifsdóttir, Oliver Robl,
Ómar Þorleifsson, Hafdís Dögg Birkisdóttir,
Baldur Þorleifsson, Gyða Steinsdóttir,
Guðrún Þorleifsdóttir, Sæmundur Grétarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGEBORG GRIMM JÓNSSON,
Þorsteinsgötu 11,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju þriðjudaginn
29. desember kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi
eða Sjúkrahús Akraness.
Hugheilar þakkir til allra sem hafa sýnt okkur samúð og vinarhug.
Guðmundur Jónsson,
Úlfar Guðmundsson, Joan Andersen,
Sverrir og Guðmundur Úlfarssynir,
Kristófer Þór, Michael Van Eric,
Timothy Manfred, Melinda og Christie.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju vegna andláts elskulegrar móður
minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur,
SVEINBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR
frá Norðfirði,
Fellsmúla 5.
Guð gefi ykkur öllum gæfuríkt ár.
Sesselja G. Ingjaldsdóttir, Sveinbjörn Kristjánsson,
Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir,
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, Birgir Árnason,
Kristbjörg Sveinbjörnsdóttir,
Auðbjörg Stefánsdóttir
og barnabarnabörn.