Morgunblaðið - 29.12.2009, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
26.12.2009
7 16 19 22 29
8 3 4 3 8
5 8 0 2 2
13
23.12.2009
18 25 27 29 44 46
478 19
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Jesús litli HHHHH, JVJ, DV
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Sun 3/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Jesús litli (Litla svið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 20:00
Þri 29/12 kl. 21:00 aukas Sun 3/1 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00 síðasta
sýn
Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sun 3/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00
Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00
Vinsælasti söngleikur ársins - sýningum lýkur í janúar
Djúpið (Nýja svið)
Mið 30/12 kl. 21:00 síðasta
sýn
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Fös 8/1 kl. 22:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 22:00
Lau 16/1 kl. 22:00 Lau 23/1 kl. 22:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Þri 29/12 kl. 20:00 síðasta sýn
Ekki við hæfi barna. Síðasta sýning 29. des
Bláa gullið (Litla svið)
Sun 17/1 kl. 14:00 síðustu
sýn
Sun 24/1 kl. 14:00 síðustu
sýn
Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið.
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00
Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Fös 29/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 15:00
Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 30/1 kl. 19:00
Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 15:00
Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 15:00 Aukas. Lau 6/2 kl. 19:00
Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 16/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas.
Tryggið ykkur sæti - miðarnir rjúka út!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Þri 29/12 kl. 15:00 Sun 3/1 kl. 15:00 Sun 10/1 kl. 15:00
Mið 30/12 kl. 15:00 Lau 9/1 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Ókyrrð (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 20:00
Gestaleikur - aðeins þessar tvær sýningar!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
39 þrep (Samkomuhúsið)
Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k.
Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00
Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas
Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00
Forsala er hafin
HÁTÍÐAHLJÓMAR
VIÐ ÁRAMÓT
MIÐASALA í Hallgrimskirkju, í síma 510 1000 og á midi.is
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 28. STARFSÁR listvinafelag.is
GAMLÁRSDAGUR KL. 17
T U
Gunnar Þórðarson á sér fáalíka í íslensku tónlistar-lífi, enda fáir sem hafaverið jafn lengi að, komið
jafn víða við og skilið jafn mikið
eftir sig á leiðinni. Fjölmörg laga
hans eru sígildar dægurperlur sem
hvert einasta
mannsbarn
þekkir inn og
út. Með hlið-
sjón af því
ætti fátt að
koma á óvart
þegar hann
tekur sig til
og leikur úrval laga sinna, eins og
hann gerði 2. október síðastliðinn í
Borgarleikhúsinu – eða hvað? Nei,
svo er nefnilega ekki því Gunnar
hefur útsett og útfært lög sín flest-
öll með bráðskemmtilegum hætti,
auk þess sem hann syngur þau
sjálfur – á stundum í félagi við
aðra mæta músíkanta. Þessum af-
bragðs tónleikum hafa nú verið
gerð skil, ekki síst fyrir þá sem
ekki áttu heimangengt, í veglegum
pakka sem inniheldur 17 laga
hljómdisk og 26 laga mynddisk.
Gunnar kemur víða við og lítur um
öxl yfir feril sem fer að nálgast
hálfa öld. Hér má heyra Hljóm-
asmelli, Trúbrotsslagara í bland
við sólóefni og meira segja er hér
að finna lag af einni bestu barna-
plötu sem komið hefur út á Íslandi,
Út um græna grundu frá 1976.
Það hefði vitaskuld verið fyr-
irhafnarminnst að leika lögin eins
og allir þekkja þau, en Gunnar fær
hrós fyrir að tefla „börnunum sín-
um“ fram með þeim hætti sem víða
má hér heyra; stundum er heill
hljómsveitarbragur orðinn að eins
manns gítarspili og söng. Við þær
aðstæður, þegar kjarninn hefur
verið skilinn frá hisminu, sést vita-
skuld mætavel hvort spunnið er
stefið eður ei. Gunnar sýnir og
sannar að hann er í sögulegum
sérflokki þegar hann strípar
stemmurnar niður í gítarinn einan,
samanber vel valið upphafslagið.
Það er á ferðinni lagið „Við sam-
an“ sem Hljómar gáfu út fyrir
fáum árum, og vert er að taka það
fram að Gunnar kemst hreint ekk-
ert síður frá söng þess lags en
Engilbert Jensen. Hljómaperlan
„Ástarsæla“, sem hann syngur
ásamt Svavari Knúti, er ekki síðra.
Loks verður að nefna lokalagið á
hljómdisknum, hið gullfallega,
„Vetrarsól“, sem Björgvin Hall-
dórsson söng upprunalega.
Skemmst er frá því að segja að
Gunnar klárar það með miklum
sóma, og er þá langt til jafnað.
Gunnar er, alltént í seinni tíð,
þekktari sem lagasmiður en söngv-
ari og því kemur það sumpart
þægilega á óvart hversu bráðs-
leipur söngvari hann í raun og
veru er. Röddin hefur líka orðið
dýpri, rámari eins og við er að bú-
ast, og um leið þéttari; þá fer hann
sem fyrr létt með að afgreiða háu
tónana, áreynslulaust með öllu.
Sem fyrr sagði eru góðir gestir
honum til fulltingis, áðurnefndur
Svavar Knútur, trúbador og
flauelsbarki, og svo hljómsveitin
Buff sem sumpart tekur kómíska
slaginn með blúsbastarðinum
„Harðsnúnu Hönnu“, sem löngum
hefur verið í hvað minnstum met-
um af lögum Gunnars á þessum
bæ, og svo „Fjólublátt ljós við bar-
inn“ sem 30 árum síðar er eig-
inlega komið hringinn og bara orð-
ið skemmtilegt nokk. Og þó.
Buffliðar eiga líka fína spretti í
lögunum „Svona er ástin“ og „Ís-
lands barn“ enda bráðflinkir mús-
íkantar.
Mynddiskurinn er fyrirtak
áhorfs, og kemur vel til skila hinni
nánu stemmningu með áhorf-
endum sem Gunnar magnaði upp á
vettvangi. Á honum er að finna
meira af svo góðu, enda rúmar
DVD-diskur meira en CD, og sá
geymir marga perluna í viðbót;
nægir að nefna „Við Reykjarvík-
urtjörn“ með bráðskemmtilegum
bluegrass-takti.
Í það heila er Vetrarsól hörku-
fínn pakki, ómissandi fyrir aðdá-
endur Gunnars og næsta skotheld-
ur fyrir aðra sem kunna að meta
úrvals dægurmúsík, í nánast óað-
finnanlegum lifandi flutningi. Ekki
skal undra að fullt hafi verið upp í
rjáfur á tónleikunum sjálfum og
tækifærið sem býðst með þessari
útgáfu er þess virði að tekið sé
höndum tveim. Góða skemmtun.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Skotheldur „Í það heila er Vetrarsól hörkufínn pakki, ómissandi fyrir
aðdáendur Gunnars og næsta skotheldur fyrir aðra sem kunna að meta úr-
vals dægurmúsík,“ segir Jón Agnar Ólason í gagnrýni sinni.
Meistarinn magnar seið
Gunnar Þórðarson –
Vetrarsólbbbbn
JÓN AGNAR
ÓLASON
TÓNLIST
Geisladiskur
Þegar mér var fengin sagaElfu Gísladóttur í hendurvissi ég ekkert hver þessikona var. Áhuginn á sögu
hennar var þó ekki lengi að kvikna
því Elfa hefur lifað mjög viðburða-
ríku lífi allt frá
barnæsku. Hún er
enn á besta aldri,
fædd 1955, og á
örugglega mörg
viðburðarík ár eft-
ir í viðbót.
Áberandi er í
sögunni hversu
mikil áhrif stöð-
ugir flutningar í
æsku og lítið öryggi hefur haft á Elfu
alla tíð. Hún er langt fram á fullorð-
insár feimin og óörugg þó að hún sé
lærð leikkona, hún telur sig heimska
og hefði eflaust komist enn lengra í
lífinu ef sjálfstraustið hefði verið
meira.
Anna Ólafsdóttir Björnsson ritar
söguna á góðri íslensku og heyrist
hennar rödd stundum inni á milli í
frásögn Elfu. Anna hefði mátt liggja
aðeins meira yfir bókinni því stund-
um fannst mér rennslið ekki nægi-
lega gott og frásögnin hefði mátt vera
línulegri. Það er hlaupið úr einu í ann-
að og vantar ákveðna dýpt í söguna.
Hér er oft skautað á yfirborðinu,
skrásetjarinn hefði mátt spyrja Elfu
dýpra, komast að því af hverju líf
hennar fór eins og það fór. Í staðinn
hefði mátt sleppa öllum nafnaupp-
talningum á frægum einstaklingum
sem Elfa umgekkst, þær eru svolítið
yfirborðslegar.
Bókin hefur verið auglýst út á sam-
band Elfu við Jón Óttar Ragnarsson
og ævintýrið við að stofna Stöð 2, en
það vantar dýpt í þær frásagnir,
hvers vegna byrjaði hún með Jóni
Óttari tvisvar, hvert var þetta æv-
intýri í kringum Stöð 2? Þeim spurn-
ingum er ekki nægilega vel svarað.
En kannski má útskýra þessa litlu
dýpt með því að þetta er kafli í lífi
Elfu sem er að baki og hún hefur ekki
mikla löngun til að rifja hann upp.
Augljóst er líka að hún hefur meiri
unun af því að segja frá lífi sínu í dag í
Bandaríkjunum. Þrátt fyrir þetta er
lífshlaup Elfu mjög athyglisvert og
bókin því áhugaverð lesning og ef-
laust enn áhugaverðari fyrir þá sem
muna eftir Elfu í framlínu fræga
fólksins á Íslandi á sínum tíma.
Viðburðarík ævi
Ævisaga
Elfa Gísla og hinar sögurnar
bbmnn
Skráð af Önnu Ólafsdóttur Björnsson
Salka 2009. 255 bls.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111