Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1960, Blaðsíða 10

Ísfirðingur - 15.12.1960, Blaðsíða 10
10 ÍSFIRÐINGUR /? ó t Á jólaaftan var það einu sinni að Melum i Hrútafirði að barið var að dyrum, og er komið var út stóð þar skrautbúin kona er beiddist gistingar. Þá bjó sýslumaður að Melum og sagði hann það heimilt. Hún var spurð að nafni og sagðist hún heita Bóthildur, en ekki vildi hún segja hvaðan hún kæmi eða hvaðan hún væri upprunnin. Hún var þar um nótt- ina og var ein heima er annað fólk gekk til tíða, en um morg- uninn er fólkið kom heim hafði það aldrei séð bæjarhús eins prýðileg, öll þvegin og sópuð og allt undirbúið er til þurfti að taka. Bauð sýslumaður henni þá þar að vera lengur og gjörðist hún þá ráðskona fyrir búi hans og fór henni það vel úr hendi. Næsta jólaaftan fór fólk allt til tíða nema Bóthild- ur, en þegar fólkið kom heim um morguninn sá það að hún var hrygg mjög og grátin, en ekki bar á því endranær. Þriðju jólanóttina var hún ein eftir heima og langaði þá smaladreng sýslumanns er Guðmundur hét að vita hvað hún hefðist að, og gjörði sér upp veiki er hann var kominn á stað, og snéri heim aftur. Hann átti hulinhj álmsstein og tekur hann nú í hönd sér og gengur inn í baðstofu. Sér hann þá að hún býr sig í skart mikið og þykist hann aldrei hafa séð jafnfallegan búning. Síðan tekur hún grænt klæði upp úr kistu sinni og gengur út. Guðmundur fer á eftir henni þangað til þau koma að vatni einu, þá breiðir hún klæðið á vatnið og stígur á. Guðmundur kom sér á horn klæðisins og síga þau nú niður, þókti honum sem þau væðu reyk niður eftir jörðinni þangað til þau komu á völlu fríða. Þar leit hann standa borg fríða og háreista og kirkju með háum turni. Bóthildur gengur til borgarinnar og var henni þar vel fagnað. Sá er Guðmundi sýndist þar æðstur, og allir aðrir lutu, tók hana í fang sitt og kyssti hana sem konu sína, og þrjú börn heilsuðu henni sem móður sinni. Allir urðu glað- ir er þeir sáu Bóthildi og báðu hana vera velkomna. Þar næst var gengið í kirkju og fór þar fram tíðagjörð eins og hjá kristnum mönnum. Börn Bóthildar gengur milli stóla og léku sér að þrem gull- hringum, en hið yngsta missti sinn hring og fannst hann eigi, en því var svo varið að Guðmundur hafði tekið hann upp og L i 11) u i ^iottnin^ geymdi hjá sér. Þegar gengið var frá tíðum var setzt til borðs og settist Bóthildur í hásæti hjá manni sínum. Var þar vel veitt og vel drukkið, en er leið að dægramótum stóð Bóthild- ur upp og kvað tímann vera kominn að skilja. Urðu þá allir hryggir, en þó einkum maður hennar Kvaddi hún þá alla, en maðurinn gekk með henni á leið og taldi sér margar rauna- tölur að þeim væri samvistum synjað og að nú mundu þau sjást í seinasta sinnið. Síðan kvöddust þau með miklum harmi. Steig hún þá á klæðið og Guðmundur með og fóru upp sömu leið og áður. Gengur síðan heim að Melum og klæðir sig úr skrúðanum og tekur til starfa, og var hún búin að undirbúa allt eftir vanda er kirkjufólkið kom heim. Guðmundur kem- ur þá líka hehn og spyr sýslumaður hann hvar hann hafi verið. Hann kvaðst hafa verið að kanna neðri byggðir. Sýslu- maður spyr hvernig á því stæði. Hann kvaðst hafa verið að fylgja ráðskonunni hans. Síðan segir hann upp alla söguna og hlýddi Bóthildur á á meðan, en að lyktum spyr hún hann hvort hann geti sýnt þess nokkur merki að hann segi hér satt frá. Dregur hann þá upp hringinn og sýnir henni. Verður þá Bóthildur glöð og segir: „Þú hefur satt sagt og á ég þér mikið gott að launa. Ég var áður drottning í álfheimum þangað til valva ein lagði það á mig að ég skyldi hverfa og vera með mennskum mönnum og ekki fá að koma í álfheima nema á jólanóttina, og skyldi ég ekki úr þeim álögum leysast fyiT en einhver mennskur mað- ur yrði svo djarfur að fara með mér ofan þangað. Nú hefur þá leyst mig úr álögum þessum og skal þér ríkmannlega laun- að.“ Síðan kvaddi hún sýslumann og allt heimafólk og hvai-f á 'burt. Nóttina eftir kom hún í draumi til Guðmundar og gaf honum ógrynni fjár og gei’semar og lá það á koddanum hjá honum þá er hann vaknaði. Síðan keypti hann sér jörð, kvongaðist og varð hinn rnesti gæfumaður. (Úr Þjóðsögum J. Á.) Gamlárskvöld á fsafirði 1956. Þá var veður ágætt, bærinn vel skreytt- ur og flugeldum óspart skotið. —(Ljósmyndari: Ámi Matthíasson).

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.