SunnudagsMogginn - 29.08.2010, Blaðsíða 8
8 29. ágúst 2010
Ljóst er af því efni sem finna má á
heimasíðu Evrópusambandsins
að sambandið leggur mikla
áherslu á það að tryggja stuðning
almennings við inngöngu nýrra
ríkja, bæði í umsóknarríkjunum
og þeim ríkjum sem þegar eru inn-
an sambandsins.
Þannig segir t.a.m. í bæklingi
Evrópusambandsins um stækkun
þess að stjórnvöld í umsókn-
arríkjum verði að útskýra „með
greinilegum og sannfærandi
hætti“ þær breytingar sem gera
þurfi í tengslum við umsókn þeirra
sem sumar geti krafist „erfiðra
umbreytinga á pólitískri og efna-
hagslegri uppbyggingu landsins“.
Stuðningur þjóðfélagsins sé
„grundvallaratriði í þessu ferli“.
Í minnisblaði sem dreift var á
fundi utanríkismálanefndar Al-
þingis fyrir helgi kom m.a. fram að
Evrópusambandið hygðist verja
um 106 milljónum króna „til upp-
lýsingamála“. Á heimasíðu sam-
bandsins segir að stuðningur al-
mennings við stækkun þess hvíli
á „betri miðlun kosta“ hennar.
Það vekur óhjákvæmilega athygli
að ekki sé að sama skapi talað
um hugsanlega ókosti.
Stuðningur þjóðfélagsins grundvallaratriði
Evrópusambandið leggur áherslu á að tryggður sé stuðningur almenn-
ings í umsóknarríkjum við inngöngu þeirra í sambandið.
Morgunblaðið/Ómar
F
erlið sem Ísland er statt í gagnvart Evr-
ópusambandinu í kjölfar umsóknarinnar
um inngöngu í sambandið var upp-
haflega hannað árið 1995 og hefur síðan
tekið ýmsum breytingum. Í sem skemmstu máli
miðar ferlið að því að undirbúa ríki, sem ann-
aðhvort hafa sótt formlega um inngöngu í sam-
bandið eða lýst áhuga á slíkri inngöngu, undir
það að verða hluti þess.
Ferlið var í byrjun mótað með ríki í Austur-
Evrópu í huga sem stefnu að inngöngu í Evrópu-
sambandið þar sem stofnanauppbygging og
regluverk var yfirleitt mjög ólíkt því sem taldist
ásættanlegt í vesturhluta álfunnar. Af þeim sök-
um var ákveðið að færa aðlögun nýrra ríkja að
sambandinu fram fyrir hina formlegu inngöngu í
það.
Norðmenn einungis í viðræður
Inngöngu í Evrópusambandið og forvera þess
hefur tvisvar verið hafnað í þjóðaratkvæði í Nor-
egi, fyrst árið 1972 og síðan aftur 1994 eða árið
áður en ferli sambandsins fyrir ný ríki var breytt.
Fyrir vikið fóru Norðmenn einungis í viðræður
um inngöngu í Evrópusambandið en aldrei neina
aðlögun að sambandinu í tengslum við þær.
Ferlið sem hannað var eftir höfnun Norðmanna
og Ísland er nú statt í miðar að því að ríki gangi í
Evrópusambandið miðað við upplýsingar um
inngöngu nýrra ríkja á heimasíðu sambandsins.
Þar kemur skýrt fram að markmiðið með ferlinu
sé innganga en ekki t.d. að sjá hvað sé í boði svo
vitnað sé í umræðuna hér á landi.
Aðlögun samhliða viðræðum
Fram kemur á heimasíðu Evrópusambandsins að
viðræður við umsóknarríkið séu „hornsteinn“
ferlisins og að þær nái til „upptöku, innleiðingar
og gildistöku“ löggjafar Evrópusambandsins.
Fram kemur að áður en viðræður geti hafist þurfi
að bera saman löggjöf sambandsins og löggjöf
umsóknarríkisins til þess að varpa ljósi á það
hvaða mál þurfi að ræða á grundvelli ákveðinna
viðmiða fyrir hvern og einn málaflokk.
Viðræðum um hvern kafla lýkur síðan ekki fyrr
en umsóknarríki uppfyllir þau viðmið sem skil-
greind hafa verið til þess að það sé hægt, t.a.m. í
formi ráðstafana á sviði löggjafar sem og stjórn-
unar eða réttarfars. Þá þarf umsóknarríkið að
samþykkja „uppkast að sameiginlegri afstöðu
Evrópusambandsins“ eins og það er orðað.
Lögin ekki umsemjanleg
Í bæklingi sem Evrópusambandið hefur gefið út
um inngöngu nýrra ríkja kemur m.a. fram að
mikilvægt sé að undirstrika að hugtakið viðræður
í þessu samhengi geti verið misvísandi. Viðræð-
urnar leggi „áherslu á skilyrði og tímasetningu
upptöku, innleiðingar og gildistöku laga Evrópu-
sambandsins í umsóknarríkinu – um 90 þúsund
blaðsíður af þeim“. Þá segir að þessi lög séu „ekki
umsemjanleg“.
Þá kemur fram á heimasíðu Evrópusambands-
ins að eftir að innganga hefur verið samþykkt af
umsóknarríki, þá t.d. í þjóðaratkvæði, fái það
stöðu samþykkts ríkis þar til inngangan tekur
formlega gildi. Þá haldi ferlið áfram með því að
„gerðar eru breytingar á þeim sviðum þar sem
enn eru annmarkar til staðar og fer framvindan
fram undir vökulu auga framkvæmdastjórn-
arinnar“.
Ísland á leiðinni í
Evrópusambandið
Ferlinu var breytt ári eftir
höfnun Norðmanna
Ísland er nú statt í ferli gagnvart Evrópusambandinu í kjölfar umsókn-
ar um inngöngu í sambandið sem miðar að því að af inngöngu verði.
Reuters
Norðmenn hafa tvisvar hafnað inngöngu í Evrópu-
sambandið, fyrst árið 1972 og síðar 1994.
Vikuspegill
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjd@mbl.is
Markmið ferlisins í kjölfar um-
sóknarinnar um inngöngu í
Evrópusambandið eru styrk-
ing stjórnsýslunnar til að tak-
ast á við „þær breytingar sem
innleiðingu löggjafar“ sam-
bandsins fylgja og undirbún-
ingur fyrir „þátttöku í sjóðum
og samstarfsáætlunum“
samkvæmt minnisblaði utan-
ríkismálanefndar Alþingis.
Tvö megin-
markmið
Stúlka sem á um sárt að binda
vegna flóðanna í Pakistan sló
engu að síður á létta strengi á
föstudag og stillti sér upp með
matarskálina á hausnum. Hún var
að bíða eftir hrísgrjónaskammt-
inum úr eldhúsi, sem rekið er af
góðgerðarstofnun í Nowshera í
Pakistan, norðvesturhluta Khyber-
Pakhtunkhwa héraðsins. Enn er
verið að rýma þorp og bæi tæpum
mánuði eftir að flóðin hófust fyrst.
VERÖLDIN
Reuters
Húmor á erfiðum tímum