SunnudagsMogginn - 29.08.2010, Blaðsíða 22
22 29. ágúst 2010
Í
Dansfélaginu Krumma eru þær
Katrín Gunnarsdóttir, Saga Sigurð-
ardóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir
og Snædís Lilja Ingadóttir en sú
síðastnefnda er stödd erlendis þegar við-
talið fer fram. Þær starfa allar sem dans-
arar og danshöfundar en dansa nú allar
saman í fyrsta sinn. Þær segja samstarfið
nýtt og spennnandi en þekktust þó allar
fyrir. Saga og Katrín eru báðar útskrif-
aðar frá ArtEZ Dansakademie í Hollandi,
þó þær hafi ekki verið við nám á sama
tíma, og Sigríður Soffía og Snædís út-
skrifuðust saman af dansbraut Listahá-
skóla Íslands auk þess sem Sigríður
Soffía og Snædís hafa unnið talsvert
saman.
Hvernig varð Dansfélagið Krummi
til?
KG: Dansfélagið Krummi varð eig-
inlega til upp úr því að ég gerði dansverk
meðan ég var enn í skóla sem hét Val-
kyrjur og var einmitt unnið út frá svona
hetjupælingum og hugmyndum. Eftir
það kitlaði það mig alltaf að halda áfram
að vinna með svipaða hugmynd og í
fyrra fór ég að velta því fyrir mér hvort
ég gæti ekki fengið nokkra dansara til
liðs við mig í verkið. Þá fór ég að pæla í
hvaða hetjukonur ég þekkti sem mig
langaði að vinna með og fór … SS: Á
hetjuveiðar!
KG: Já, og hringdi í naglana sem ég
þekkti til að gá hvort þeir væru ekki til í
samstarf og að senda inn nokkrar um-
sóknir. Síðan unnum við saman að því
að koma þessu á legg.
SSN: Það var skemmtilegt að á sama
tíma höfðum við Snædís verið að vinna í
annari umsókn um landnámstímann
þannig að við höfðum líka verið að
grúska í svipuðum efnum. Lokahandritið
var síðan dregið saman af hópnum og
verður afraksturinn sýndur á Reykjavík
Dance Festival sem hefst í næstu viku.
Talandi um umsókn, maður semur
ekki verk án þess að tryggja sýningu
fyrst, eða hvað?
SSN: Þar sem við erum sjálfstætt starf-
andi er engin ein stofnun sem framleiðir
sýninguna. Við þurfum að sækja um og
ráða til okkar allt það fólk sem kemur að
sýningunni. Því fer mikill tími í um-
sóknarskrif og reddingar, við erum í
raun eins og lítið fyrirtæki sem starfar í
þrjámánuði að einni uppfærslu.
KG: Það er meira en ár síðan ferlið
hófst en það er tímafrekt að sækja um
fjármagn og aðstöðu til að vinna sjálf-
stæða sýningu og koma á framfæri hug-
mynd. Það er mikið púsluspil að finna
nægilegan tíma, að allir séu lausir og
finna peninga þar sem við þurfum víst
að borða eins og aðrir. Þetta þarf allt að
spila saman sem verður óhjákvæmilega
til þess að ferlið verður svona langt.
SS: Það er líka heillandi við þetta að
maður byrjar með einhverja hugmynd
Dansfélagið Krumma skipa
Sigríður Soffía Níelsdóttir,
Katrín Gunnarsdóttir, Saga
Sigurðardóttir og Snædís
Lilja Ingadóttir , en hana
vantar á myndina.
Morgunblaðið/Eggert
Kraftur í
kvenhetjum
Krumma
Meðlimir Dansfélagsins Krumma og blaðamaður
setjast niður berfættir í æfingasal hópsins rúmri
viku fyrir frumsýningu verksins Þá skal ég muna
þér kinnhestinn. Sviðsskrekkur virðist fjarri
dönsurunum en það er spjallað, hlegið og grínast
með biðina eftir listrænum ágreiningi.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Helga Fagra er bogablóm og stillir sér
ósjaldan upp , hún er varkár og æðrulaus.
Egill Skallagrímsdóttir smjaðrar ekki, kjass-
ar ekki og þarf myrkur til að lifa í.
Bergþóra seiðir menn til sín oft til að trylla
þá og fá síðar til fylgilags við sig.
Hallgerður er ekki ginnkeypt fyrir afsök-
unum og best er að gefa aldrei neitt.
Ljósmynd/Lalli Sig