SunnudagsMogginn - 29.08.2010, Blaðsíða 45
29. ágúst 2010 45
L
ífsleikni Njálu – Siðfræðileg umhugsunarefni
fyrir ungt fólk heitir ný bók eftir Arthúr Björg-
vin Bollason. Bókin er gerð fyrir nemendur í 8. -
10. bekk grunnskóla og er ætlað að vekja athygli
þeirra á sögunni auk þess að tengja hana við siðfræði hins
daglega lífs í dag. Útgefandi bókarinnar er Skólavörubúð-
in A4 og ritstjóri hennar er Óskar Sigurðsson sem átti
frumkvæðið að því að bókin var skrifuð.
Forvitni
Tilefni þessarar bókar er í rauninni það að vekja forvitni
krakkanna á þessum sögum. Það er nú einu sinni þannig,
og það þekkja þeir sem hafa verið að kynna sögurnar fyrir
krökkum, að þær eru á köflum dálítið óaðgengilegar fyrir
yngstu lesendurna. Krakkar skelfast sögurnar þegar þeir
standa frammi fyrir þessum löngu ættartölum og fælast
oft hreinlega frá. Hugmyndin með þessari bók var því sú
að athuga hvort það væri hægt að finna einhverja aðra leið
til þess að koma krökkunum inn í heim Njálu. Ég sá um
Njáluverkefni í Rangárþingi í nokkur ár og áttaði mig þá á
því þegar ég tók á móti skólahópum að hægt var að vekja
athygli krakkanna ef maður fjallaði um söguna á hátt sem
þau skildu. Þessi texti er svolítið byggður á þeirri reynslu
og þeirri sannfæringu að ef rétt er á málum haldið sé bók
eins og Njála mjög skemmtileg og spennandi og full af
áhugaverðum karakterum, viðburðum og gjörðum fólks,
að það eigi að geta vakið athygli krakka sem eru á opnasta
aldrinum í lífinu. En ég held að flestir séu sammála um
það að krakkar á aldrinum 13 til 15 ára séu á opnasta aldr-
inum í lífinu og mjög forvitnir. Málið er að matreiða þetta
rétt ofan í þau þannig að þetta verði spennandi.
Fræðsla
Söguþráðurinn er rakinn í bókinni alveg aftur að Njáls-
brennu. Inn á milli má síðan finna umhugsunarefni þar
sem lesendur eru beðnir um að leggja mat á og skoða
hátterni, orð og gjörðir persóna í sögunni. Bryddað er upp
á siðferðilegum álitamálum sem koma fyrir í sögunni og
reynt að gera krökkunum ljóst hvað felst í hugtökum eins
og ábyrgð, skyldum, réttlæti, öfund, afbrýði, hefnd og
hatri, glæpi og refsingu, dyggðum og löstum. Þannig er
ætlað að þjálfa nemendur í rökræðu um siðferðileg efni.
Þetta er síðan tengt við daglegt líf en bókin er í samtals-
formi þar sem feðgar tala saman og pabbinn finnur oft
hliðstæðu við hið daglega líf stráksins í Njálu. Loks er
reynt að tengja verkefnin við það sem hefur verið að ger-
ast í okkar samtíð með skírskotunum inn í nútímann og
þau siðferðilegu álitamál sem komið hafa upp hjá okkur á
síðustu árum. Út frá Njálu er reynt að fá krakkana til að
hugsa um það sem er að gerast í þeirra eigin samfélagi á
þann hátt að þau skilji. Það er t.d. heilmikil spurning í
Njálu um réttlæti og ranglæti og því um líkt. Þar má líka
finna dæmi um viðskiptasiðferði þegar Gunnar á Hlíðar-
enda og Njáll búa til heilmikið viðskiptaplott gegn Hrúti
og er reynt að sjá hvort þetta samræmist því viðskipta-
siðferði sem stundað hefur verið hér heima á seinni árum.
Þá hefur verið talað um útrásarvíkinga á Íslandi og mik-
ilvægt að velta fyrir sér hvort í Njálu sé að finna sams
konar víkinga eður ei. Bókin spannar vítt svið en ís-
lenskukennarar hafa sagt mér að þessi aðferð gæti verið
mjög sniðug til að nota í íslenskukennslu. Mér hættir
nefnilega til að nota orð og hugtök sem ekki eru öllum
töm og gerði ritstjóri bókarinnar skýringarbálk til hlið-
ar með yfir 100 orðskýringum og skýringum á mál- og
orðatiltækjum. Þannig er bókin óvart orðin skemmti-
legur inngangur að íslensku máli. Auk þess getur bókin
nýst fullorðnum sem vilja fá kjarnann úr þessari marg-
flóknu sögu og þeim sem hafa áhuga á að kynnast Njálu
frá óvenjulegu sjónarhorni.
Fyrirmyndir
Erfitt er að tala um beinar fyrirmyndir úr Njálu því
þetta er svo allt annar heimur en við þekkjum í dag.
Samt sem áður eru til karakterar í Njálu sem eru allra
góðra gjalda verðir og margt í þeirra fari sem er hægt að
taka til fyrirmyndar. Njáll á Bergþórshvoli sjálfur er
mikill prýðismaður og reynir að leysa hvers manns
vanda þó honum mistakist líka. Höskuldur Hvítanes-
goði er líka mikill og frábær náungi, skemmtilegur og
góður en auðvitað eru margir hrappar líka og skýrar
neikvæðar fyrirmyndir eins og Otkell og Skammkell og
þeir gaurar. Hins vegar er sagan sem slík fyrirmynd um
óviðjafnanlega frásagnargáfu. Frásagnarlistin sem þar
kemur fyrir er til fyrirmyndar fyrir fólk á öllum aldri
sem þarf að gera það sem nútímafélagið krefst af þeim,
tjá sig, geta skrifað og komið því frá sér sem maður er
að hugsa.
Þrjú orð
Þrjú orð
um Njálu
Matreidd á réttan hátt er Njála
bæði aðgengileg og skemmtileg
fyrir lesendur á öllum aldri.
Söguna má nýta til að skoða
samfélagið í dag út frá sið-
fræðilegu sjónarhorni.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Arthúr Björgvin Bollason segir marga karaktera í Njálu góðra gjalda verða þó þar sé einnnig að finna fræga hrappa.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
’
Bryddað er upp á sið-
ferðilegum álitamálum
sem koma fyrir í sögunni
og reynt að gera krökkunum
ljóst hvað felst í hugtökum
eins og ábyrgð, skyldum, rétt-
læti, öfund, afbrýði, hefnd og
hatri, glæpi og refsingu,
dyggðum og löstum.