SunnudagsMogginn - 29.08.2010, Blaðsíða 14
14 29. ágúst 2010
E
f Stuðmenn voru hljómsveit allra landsmanna
þá er Kristján Kristjánsson, KK, tónlistarmaður
allra landsmanna. Áreynslulaus sjarmi þessa
manns hefur heillað landann upp úr skónum,
allt frá því að hann steig fram hérlendis með plötu sína,
Lucky One, árið 1991. Við hittumst heima hjá KK í Voga-
hverfinu; blaðamaður, ljósmyndari og KK sjálfur. Sum-
araukinn gerði vel við okkur þennan dag, það var rétt
komið fram yfir hádegi og menn voru vel slakir á því.
Golli setti af stað ljósmyndatörn í garðinum og upp við
hús og blaðamaður þvældist um á meðan, vitandi að hans
tími myndi koma. Inni á heimilinu hanga þessir munir
sem við þekkjum svo vel, myndir frá brúðkaupi og af
börnum, allt saman settlegt og fínt og yfir heimilinu stó-
ísk ró – svona svipað og yfir manninum sjálfum.
Reynt er að fá KK til að munda gítar eður hjólbörur en
hann færist undan öllu „proppsi“. Hann stingur hins
vegar upp á því að hann helli upp á kaffi fyrir þrenn-
inguna og hún fái sér svo sæti í garðinum. Það er gjört og
spjallið hefst á meðan Golli smellir af.
Spilað með öllum
Kannski er það veðrið, kannski er það afslappað fas KK,
en bæði hann og blaðamaður hika við að einhenda sér í
formlegt spjall um það sem er útgangspunktur stefnu-
mótsins, tónleikarnir sem nefndir voru í upphafi. Þess í
stað hjölum við um eitthvað allt annað. Íslenska tónlist
og skrif um hana, mátt tónlistarinnar („hann er einn af
spámönnunum í mínum huga,“ segir KK t.a.m. um Ste-
vie Wonder), vini, félaga o.s.frv. Nágranninn er að slá
garðinn og drunurnar í sláttuvélinni yfirgnæfa okkur á
köflum. En það breytir engu. Við erum sultuslakir. „Því
minna sem er greinilegt á upptökutækinu, því betra,“
grínast ég í KK. „Þá verð ég svo fljótur að skrifa þetta.“
En eitthvað verður nú að koma inn á blessaða tón-
leikana. „Já, nú skulum við fara að jarðtengja okkur,“
segir KK og hlær. Tónleikarnir hafa fengið yfirskriftina
Vegbúinn og af nógu er að taka hvað tónlistina áhrærir.
KK hefur gert átta plötur í sínu nafni, fimm plötur í sam-
starfi við Magnús Eiríksson, tvær plötur með hljómsveit
sinni KK Band, eina jólaplötu með systur sinni Ellen sem
og ógrynni af tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir og ber
þar hæst tónlist hans í verkunum Þrúgur reiðinnar og
Fjölskyldan.
„Þetta eru yfirlitstónleikar,“ segir KK. „Ég hef spilað
með öllum og það er það skemmtilega við þetta, að hafa
spilað með svona mörgum í gegnum tíðina. Að hafa spil-
Laugardagskvöldið 11. sept-
ember ætlar KK að fara yfir feril
sinn í tali og tónum í Háskóla-
bíói, dyggilega studdur af vin-
um og vandamönnum. „Já, þeir
fundu víst út að ég ætti tuttugu
og fimm ára starfsafmæli,“ seg-
ir KK blaðamanni sposkur, um
tildrög þessarar samkundu.
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Gatan
liggur
greið
KK á veröndinni
í hlaðinu heima.