SunnudagsMogginn - 29.08.2010, Blaðsíða 36

SunnudagsMogginn - 29.08.2010, Blaðsíða 36
36 29. ágúst 2010 É g man ekki eftir öðru eins veðri síðan árið 1939,“ segir dr. Björn Sigurbjörnsson er hann tekur á móti blaðamanni í skógi vöxnum garð- inum á Kiðafelli. Faðir hans, Sigurbjörn Þor- kelsson í Vísi, fæddist þar fyrir 125 árum og hélt stór- fjölskyldan upp á afmæli hans í sumar á ættarsetrinu. Blaðamaður er kominn til þess að fá hann til að rifja upp minningar um föður sinn, en veðrið kemst aðeins að hjá honum fyrsta augnablikið. „Við héldum að árið í fyrra hefði verið gott, en í sumar dregur aldrei fyrir sólu,“ segir hann. „Er sól í bænum?“ Blaðamenn kunna ekki að svara spurningu nema með spurningu. – Skiptir um veður við Tíðaskarð? „Já, það gerir það oft,“ svarar Björn. „Það getur verið mjög hvasst á Kjalarnesinu og þá er gott hér, en þegar hér er ekki stætt, þá er skárra þar. Ég man í gamla daga þegar Klettur var til, fiskimjöls- verksmiðjan, þá gat maður séð reykinn liðast beint upp í loft, en þegar komið var á Kjalarnes, þá var hvassviðrið slíkt að þar var veggur. Fjöllin gera þetta oft, að breyta veðráttunni. En hér er logn og trén vaxa vel.“ Hann svipast um skógi vaxna hlíðina. „Þetta var beitiland til ársins 1976, engin hrísla neins staðar. Þá var girt hérna fyrst og ég sótti meðal annars efniviðinn á tilraunastöðina Mógilsá. Nú er þetta orðinn skógur. Kiðafell er samkomustaður fjölskyldunnar; hér komum við alltaf reglulega saman og hittumst á fjósloft- inu. Þar er byggðasafn. Faðir minn sagði að fjölskylda sín hefði verið viðloðandi Kiðafell síðan Svartkell katneski nam hér land árið 890 með leyfi Ingólfs Arnarsonar. Hann gerði oft að gamni sínu. En þetta er tilfellið, við eigum marga forfeður hér.“ Brenndi nóturnar – Manstu eftir versluninni á Laugavegi 1? „Ég var kornungur þegar faðir minn átti búðina,“ seg- ir Björn. „Ég held að hann hafi selt hana þegar ég var átta ára. Ég var að afgreiða og hjálpa honum. Gísli versl- unarstjóri sagði að ef ég seldi sígaretturnar áfram á sama verði, þá færi búðin á hausinn! Hann var flinkur kaup- maður. Fyrstu minningar mínar um föður minn eru úr miðri kreppunni. Ég er fæddur árið 1931 og kreppan hófst tveimur árum fyrr. Þá var hann kaupmaður með ellefu börn, bæði tengdamömmu og hennar barn og ömmu sína. Þetta var allt á heimilinu, oft tólf til átján við borðið heima. En það sem er minnisstæðast, það var þegar kreppunni lauk og stríðið byrjaði. Þá var hann með heil- an bunka af nótum, því allt var tekið út í reikning. Fólk var mjög fátækt, gat ekki keypt mat, og ég var hjá hon- um þegar hann sagði: „Ég er að hugsa um að brenna þessar nótur.“ Þá var engin hitaveita og hann fór niður í kjallara, þar sem var miðstöðvarketill með kolum, og brenndi bunkann. Mér fannst það svolítið sérstakt, þó að ég væri ungur.“ – Hvers vegna seldi hann búðina? „Hann missti heilsuna í byrjun fimmta áratugarins og varð að selja. Þá fékk hann fyrir hjartað, það var kölluð hjartaþreyta þá. Og læknirinn sagði að ef hann héldi áfram þessu stússi – hann var í alls konar nefndum og ráðum – þá myndi hann lifa svona sex mánuði. Hann seldi búðina og smám saman batnaði honum. Eins og þeir sögðu, nokkrir læknar í afkomendahópnum sem fylgdust með honum: „Hann var bara í fínu lagi þegar hann dó, 96 ára.“ – Eru margir læknar meðal afkomenda? „Ætli það séu ekki átta til tíu læknar í afkomenda- hópnum. Barnabörnin eru 36 og ég hef ekki tölu á barnabarnabörnunum. Ég er langalangömmubróðir lítils drengs og það kalla ég að vera „forfaðir“. Þegar ég lít til baka, þá á ég langalangömmubróður, sem var Tómas Sæmundsson Fjölnismaður. Það er svolítið langt síðan hann var uppi,“ segir hann og brosir. – Það þekktu margir Sigurbjörn? „Já, það þekktu hann eiginlega allir. Hann gekk alltaf með hatt og það var komið gat í hattinn, þar sem hann tók hann niður til að heilsa fólki. Því hann var í niður- jöfnunarnefnd og þá þurftu menn að þekkja skattgreið- endur alla, ekki bara með nafni, heldur inni á gafli, og gegnum það kynntist hann ansi mörgum. Þetta var ekki vinsælt starf, því engar tölvur voru til og þeir urðu að áætla skattinn. Ég man eftir að svara í síma strákur og þá sagði karlmannsrödd: „Er helvítið hann Sigurbjörn heima?“ Þá hafði hann fengið of hátt útsvar, býst ég við.“ – Það hefur stundum verið þröngt í búi á svo mann- mörgu heimili? „Er sól í bæn- um?“ Sigurbjörn í Vísi var goðsögn í lifanda lífi. Björn sonur hans rifjar upp minn- ingar frá viðburðaríkri ævi föður síns, en 125 ár eru liðin frá fæðingarári hans. Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.