Morgunblaðið - 12.01.2010, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 12. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-.
*//,+-
)*/,0+
*1,)21
**,/3*
)2,31
)*),.-
),++-.
)-1,.
)2-,-)
456
4 ))" 7
85 */)/
)*1,*.
*//,..
)*/,..
*1,*10
**,)*2
)2,3-*
)**,*+
),+1+2
)-0,+.
)./,1)
*++,2/)0
%
9: )*1,0.
*/),+2
)*),*+
*1,+)3
**,)-*
)2,211
)**,02
),+123
)-0,-3
)./,-)
Heitast 5 °C | Kaldast -5 °C
Slydda og síðar rign-
ing með köflum, en
hægari og bjart norð-
vestantil. Hiti 0 til 5
stig sunnanlands. » 10
Nýjasta kvikmynd
Ang Lee fjallar um
einn frægasta tón-
listarviðburð lið-
innar aldar, Wood-
stock-hátíðina. »29
KVIKMYNDIR»
Ang Lee og
Woodstock
KVIKMYNDIR»
Celda 211 fékk 16 Goya-
tilnefningar. »31
Höfund leikritsins
Endurómun, sem
sýnt verður í Borg-
arleikhúsinu,
dreymir um óhefð-
bundið leikhús. »27
LEKLIST»
Dreymir
óhefðbundið
TÓNLIST»
Evróvisjón-aðdáendur
spá í forkeppnina. »28
SJÓNVARP»
Ragnhildur Steinunn
gætir hlutleysis. »33
Menning
VEÐUR»
1. Andlát: Björn Önundarson
2. Lést af slysförum í Noregi
3. Andlát: Marteinn H. Friðriksson
4. Ein „venjuleg“ íslensk kona
Íslenska krónanstyrktist um 0,3%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Bandaríski
körfubolta-
maðurinn John
Johnson á enn
stigametið í úrvals-
deild karla en hann
skoraði 71 stig fyr-
ir Fram gegn ÍS
hinn 16. nóvember árið 1979. Grind-
víkingurinn Páll Axel Vilbergsson
jafnaði „Íslandsmetið“ á sunnudag-
inn þegar hann skoraði 54 stig fyrir
Grindavík. Valur Ingimundarson
deilir með honum „Íslandsmetinu“
en Valur hafði meira fyrir hlutunum
í þríframlengdum leik með Tinda-
stóli gegn Haukum árið 1988.
KÖRFUBOLTI
Stigamet Johns Johnsons
frá árinu 1979 stendur enn
Kolbrún Hall-
dórsdóttir, leik-
stjóri og fyrrver-
andi um-
hverfisráðherra,
hefur tekið við for-
sæti Bandalags ís-
lenskra lista-
manna. Tekur Kolbrún við stöðunni
af Ágústi Guðmundssyni leikstjóra.
Ágúst hefur gegnt stöðu forseta í
tvö kjörtímabil, eða frá árinu 2006.
Aðalfundur félagsins fór fram um
helgina og hylltu fundarmenn frá-
farandi forseta fyrir vel unnin störf
og buðu nýjan forseta velkominn til
starfa.
LISTIR
Kolbrún forseti Bandalags
íslenskra listamanna
Sýningar eru
hafnar á leikriti
Birgis Sigurðs-
sonar, Dagur von-
ar, í Kolowrat-
leikhúsinu í Prag, í
samstarfi við Þjóð-
leikhúsið. Leik-
stjóri sýningarinnar er Guðjón
Pedersen en um hönnun sviðs-
myndar og búninga sér Rebekka A.
Ingimundardóttir.
Dagur vonar segir af ekkju einni,
tveimur sonum hennar og andlega
vanheilli dóttur sem búa í Reykjavík
á 6. áratugnum. Sýningar á verkinu
munu standa til 13. maí n.k.
LEIKLIST
Dagur vonar sett upp í
Kolowrat-leikhúsinu í Prag
HÁSKÓLINN í Reykjavík flutti í gær þrjár af
fimm deildum í nýtt húsnæði í Nauthólsvík. Um
1.000 manns á vegum HR fylktu liði og gengu
undir trommuleik og með logandi kyndla frá
aðalbyggingu HR við Ofanleiti að nýju og glæsi-
legu 30.000 fermetra skólahúsi í Nauthólsvík.
Inni beið göngumanna heitt kakó og kleinur. Að
loknum ávörpum hófst svo fyrsti skóladagur í
nýrri skólabyggingu samkvæmt stundaskrá. | 8
Fjölbreytni í fánalitum vitnar um fjölþjóðlegt samfélag innan HR
Háskólinn í Reykjavík flytur í Nauthólsvík
Morgunblaðið/Heiddi
Spennan í úrvals-
deild karla í
körfuknattleik er
enn fyrir hendi
en toppliðin þrjú,
Stjarnan, Njarð-
vík og KR, fögn-
uðu öll sigri í
gærkvöldi. Nick
Bradford skrif-
aði nafn sitt í
sögubækurnar í
gær. Hann er sá fyrsti sem hefur
náð því að leika með Suðurnesjalið-
unum Keflavík, Grindavík og
Njarðvík í efstu deild. | Íþróttir
Bradford í
sögubækurnar
Nick
Bradford
Tregafull en fögur tónlist Tryggva
M. Baldvinssonar í heimildarmynd-
inni Árásinni á Goðafoss hefur vak-
ið athygli. „Ég vildi ekki ganga of
langt í dramatíkinni, því þeir sem
byrja að horfa á myndina vita frá
upphafi að hún endar illa,“ segir
tónskáldið. „Tónlistin er því full af
söknuði.“ | 27
Tregafull en fögur
tónlist Tryggva
ÖRN Úlfar Sævarsson er nýr
spurningasmiður og dómari Gettu
betur. Hann hefur unnið að því
hörðum höndum frá því í haust að
semja rúmlega 1.500 spurningar
fyrir keppnina.
„Þetta er ansi mikil vinna, þetta
eru 15 þættir í fyrstu umferð, í ann-
arri umferð 8 þættir og svo 7 í sjón-
varpinu, þannig að þetta eru 30
þættir í allt. Í ár er metþátttaka, 31
skóli er skráður til leiks, en einn
skólinn situr hjá í fyrstu umferð.
Þetta eru í kringum 1.500 spurn-
ingar sem þarf að semja og svo
hættir maður alltaf við einhverjar
og þannig eru þetta í raun mun
fleiri spurningar en það,“ segir Örn
sem tekur starfið af fullri alvöru og
segir nauðsynlegt að vanda til
verka. „Menn taka þetta mjög al-
varlega og þeir alhörðustu lifa og
deyja fyrir Gettu betur. Maður vill
því alls ekki gera nein mistök, en
það er náttúrulega aldrei hægt að
vera 100%. Ég er búinn að reyna að
undirbúa mig vel. Svo er það bara
þannig að dómarinn ræður og hefur
valdið til að skilja á milli lífs og
dauða.“
Meira umstang núna
Birgir Ármannsson þingmaður
tók tvisvar sinnum þátt í Gettu bet-
ur á fyrstu árum keppninnar fyrir
hönd Menntaskólans í Reykjavík og
segir ýmislegt hafa breyst en annað
ekki. „Okkur fannst heiður skólans
í húfi og vorum auðvitað mjög upp-
teknir af þessu þann tíma sem þetta
stóð yfir en hins vegar hafði ekki
skapast nein hefð í kringum þetta
eða í kringum undirbúninginn.“| 28
Valdið er dómarans
Fyrsta umferð spurningakeppni framhaldsskólanna hófst
á Rás 2 í gærkvöldi Aldrei hafa fleiri lið verið skráð til leiks
Morgunblaðið/RAX
Dómarinn Örn Úlfar Sævarsson.
Í HNOTSKURN
»Frá því að keppnin varfyrst haldin árið 1986 hef-
ur hún farið sívaxandi og á
sér nú fastan sess í fé-
lagsstarfi framhaldsskólanna.
»8 liða úrslitum er sjón-varpað í beinni útsend-
ingu á Rúv og er fyrsti þátt-
ur á dagskrá þann 13.
febrúar.