Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 36

Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 36
36 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 Sudoku Frumstig 7 3 6 6 4 1 9 8 4 5 8 1 9 3 7 6 3 9 1 6 4 7 1 5 7 9 4 1 3 7 1 4 8 3 6 5 8 7 6 9 4 8 7 9 1 3 6 5 6 7 6 9 2 5 5 6 2 6 4 5 9 7 9 1 1 5 9 8 2 8 6 4 7 1 3 8 9 2 6 5 4 7 6 4 7 5 1 8 2 3 9 5 9 2 7 3 4 1 8 6 9 2 6 3 7 5 8 1 4 8 7 3 6 4 1 9 2 5 4 5 1 8 9 2 6 7 3 3 8 9 2 5 7 4 6 1 7 6 4 1 8 9 3 5 2 2 1 5 4 6 3 7 9 8 8 9 7 6 4 2 3 1 5 4 2 1 8 5 3 9 7 6 3 5 6 1 7 9 4 8 2 7 4 3 5 6 1 8 2 9 5 8 2 4 9 7 6 3 1 6 1 9 3 2 8 5 4 7 9 3 4 7 1 6 2 5 8 1 6 8 2 3 5 7 9 4 2 7 5 9 8 4 1 6 3 7 3 8 5 4 2 6 1 9 5 9 2 8 6 1 3 7 4 4 6 1 9 3 7 2 8 5 3 8 4 2 7 9 1 5 6 6 5 9 3 1 4 8 2 7 1 2 7 6 5 8 9 4 3 8 7 6 4 2 3 5 9 1 9 1 5 7 8 6 4 3 2 2 4 3 1 9 5 7 6 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 12. febrúar, 43. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. (I. Kor. 13, 13.) Það er segin saga að eftir því semlengra líður á þorrann hlaupa föt Víkverja æ meir í þvotti. Þar sem þessi hlaup hafa verið árviss við- burður á þessum tíma í nokkur ár er Víkverji sannfærður um að þvotta- vél heimilisins hefur verið stillt þannig hjá framleiðanda að hún verði vanstillt á 12 mánaða fresti. Þessi vanstilling hefur reyndar var- að lengur að þessu sinni en und- anfarin ár eða í marga mánuði, en hafa ber í huga að útivera í roki og rigningu kallar á tíðari þvott en ella og Víkverji hlýtur eiginlega að hafa mætt óvenjumiklu hvassviðri og úr- komu undanfarnar vikur, mánuði og misseri. x x x En það blæs víðar en í blessaðrináttúrunni. Sagt er að stjórn- arliðar hafi verið á útopnu án þess endilega að hafa náð sýnilegum ár- angri. InDefence-samtökin hafa ver- ið dugleg að benda á máttleysi stjórnvalda og í vikunni hvöttu þau Íslendinga til þess að hafna Icesave- lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Víkverji tók samtökin á orðinu, skellti sér niður í Laugardalshöll og merkti við nei í utankjörfund- aratkvæðagreiðslu vegna þjóð- aratkvæðagreiðslunnar. x x x Þar með hefur Víkverji tekið þáttí þessari þjóðaratkvæða- greiðslu sem alls ekki er víst að verði haldin eftir allt saman, en haft var eftir fulltrúum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í vikunni að ekki þurfi að halda þjóðaratkvæða- greiðslu um Icesave ef nýir samn- ingar takast. Engu að síður hefur Víkverji tekið af skarið og er ánægð- ur með að hafa fengið tækifæri til þess að hafna Icesave-lögunum, en veltir því fyrir sér hvað verði um at- kvæðið verði hætt við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 6. marz. Þessi óvissa virðist teygja sig í þvottavél heimilisins, því vanstill- ingin hefur aldrei verið meiri en undanfarna daga og fyrir vikið hafa fötin aldrei verið þrengri. Víkverji veltir því fyrir sér tengingu vélar og stjórnar. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 veglyndi, 4 tengdamaður, 7 fiskur, 8 heitis, 9 bók, 11 askar, 13 ljúka, 14 dugnaðurinn, 15 laut, 17 hornmyndun, 20 auli, 22 gímalds, 23 hreyfist hægt áfram, 24 ránfugls, 25 sterti. Lóðrétt | 1 sjúkdóm- urinn, 2 hljóðfæri, 3 hreyfist, 4 grobb, 5 látin af hendi, 6 afturenda, 10 starfið, 12 rándýr, 13 bókstafur, 15 hlýða, 16 mynnið, 18 erfið, 19 nam, 20 spil, 21 slæmt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skynjaðir, 8 bolur, 9 aulum, 10 ull, 11 iðnum, 13 lerki, 15 leggs, 18 salur, 21 kát, 22 glata, 23 amman, 24 flekklaus. Lóðrétt: 2 kolin, 3 nýrum, 4 aðall, 5 illur, 6 obbi, 7 smái, 12 ugg, 14 efa, 15 laga, 16 gjall, 17 skark, 18 stall, 19 lömdu, 20 ræna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Bg5 c5 3. Bxf6 gxf6 4. dxc5 Ra6 5. Rf3 Rxc5 6. c3 Db6 7. Dc2 d5 8. Rbd2 Bh6 9. e3 Bd7 10. 0-0-0 Ba4 11. b3 Bd7 12. Rd4 Hc8 13. Be2 Bf8 14. g4 e6 15. Db2 h5 16. h3 a5 17. Kb1 a4 18. b4 a3 19. Dxa3 Ra4 20. Hc1 hxg4 21. Bxg4 Staðan kom upp á Kornax- mótinu, Skákþingi Reykjavíkur, sem lauk fyrir skömmu í húsakynn- um Taflfélags Reykjavíkur. Bragi Þorfinnsson (2.398) hafði svart gegn Patreki M. Magnússyni (1.977). 21. … Hxc3! 22. Hxc3 Bxb4 23. Hb3 Bxa3 24. Hxb6 Rxb6 25. Rc2 Bd6 svartur hefur nú yfirburð- artafl. 26. Rb3 Ke7 27. Ra5 Ra4 28. Rd4 Ha8 29. Rab3 f5 30. Bf3 e5 31. Rc2 e4 32. Bh5 Be5 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Réttur tromplitur. Norður ♠KDG3 ♥8752 ♦D84 ♣D6 Vestur Austur ♠102 ♠985 ♥G963 ♥KD4 ♦ÁG763 ♦K10952 ♣105 ♣43 Suður ♠Á764 ♥Á10 ♦– ♣ÁKG9872 Suður spilar 7♠. Fjögur-fjögur samlegan er göldrótt í slemmunum. Þeir keppendur í tví- menningi Bridshátíðar sem völdu laufið sem tromplit urðu að sætta sig við tólf slagi, en í spaðasamningi fást allir slagirnir með einni tígulstungu. Aðeins 4 pör af 59 í NS náðu að melda 7♠, svo það er augljóslega erf- itt verkefni. Með Standard sem grunn gætu sagnir þróast þannig: Opnun á laufi í suður og hjartasvar í norður. Suður stekkur svo í 2♠ til að sýna há- marksopnun og norður lyftir í 3♠. Fyrirstöðuleit hefst með 4♣, en norð- ur hrökklast í 4♠. Þar með veit suður að makker á ekki ♦Á og spyr um lyk- ilspil. Norður sýnir eitt slíkt með 5♦, sem er þá augljóslega spaðakóngur. Suður leitar loks eftir spaðadrottn- ingu með 5♥, norður játar henni með 6♠, sem suður lyftir í sjö. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert á leið gegnum undarlegt tímabil breytinga, en þær verða til góðs. Hættu að gera lítið úr sjálfum þér; þú ert ekki verri en hver annar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Frelsið er dýrmætt en það kostar líka sitt því öllu frelsi fylgir ábyrgð sem ekki er hægt að horfa framhjá. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú mátt eiga von á mildri and- stöðu maka þíns og náinna vina við fyr- irætlanir þínar. Hafðu þitt á hreinu ef þú vilt vera tekin/n alvarlega. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það getur reynst þér erfitt að hlýða á aðra rifja upp fortíðina. Hvort sem tilfinningin er góð eða slæm er und- irmeðvitundin að reyna að segja þér eitt- hvað. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Gættu þess að bera virðingu fyrir menningu og trú annarra, sérstaklega ef þú ert á þeirra heimavelli. Mundu að eft- ir frí tekur alvaran við aftur, ekki fara offari. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Bjartsýni ræður ríkjum í dag en það dregur úr henni með kvöldinu. Börn, líkt og ástin, eiga það til að laumast á brott þegar síst varir. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þeim mun meiri orku sem þú setur í samband þeim mun betur tengist þið. Láttu stoltið ekki hindra að svo geti orð- ið. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert fljót/ur að drukkna í verkefnum ef þú setur þér ekki þá vinnureglu að klára eitt áður en þú byrj- ar á öðru. Fylgdu eðlisávísun þinni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þeir sem kenna öðrum um ófarir sínar verða líka að þakka öðrum velgengni sína. Skrifaðu bestu hugmynd- irnar þínar niður og farðu eftir þeim. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Í miðjum klíðum við áskorun ertu nú þegar sigurvegari. Ekki valda ósætti vegna smámuna til þess að sneiða hjá stærri vandamálum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Vertu varkár og reyndu að lesa sem best í samstarfsmenn þína; ein- hverjir vinna gegn þér en fara dult með það. Hentu leiðanum út um gluggann og verkið klárast á hálftíma. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Himintunglin sveipa tilfinningalíf þitt einhverri undarlegri móðu. Breyttu um aðferð, vertu hress og kát/ur og tal- aðu skýrt og skorinort um hlutina. Stjörnuspá 12. febrúar 1940 Staðfest voru lög um friðun Eldeyjar undan Reykjanesi. Bannað er að ganga á hana án leyfis ríkisstjórnarinnar og ekki má granda fuglum eða eggjum. 12. febrúar 1993 Aftakaveður með þrumum og eldingum gekk yfir vestanvert landið. Tíunda hvert hús í Grundarfirði skemmdist. Raf- magnslaust var á stóru svæði í rúma klukkustund og einnig símasambandslaust. 12. febrúar 2005 Valdís Óskarsdóttir hlaut Bafta-verðlaunin fyrir klipp- ingu á kvikmyndinni Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Morgunblaðið sagði þetta virt- ustu verðlaun sem Íslendingur hafði fengið á sviði kvik- myndagerðar. 12. febrúar 2006 Boris Spassky og Bobby Fisc- her hittust í Reykjavík, tæpum 34 árum eftir heimsmeist- araeinvígið í skák. „Afar vel fór á með þeim,“ sagði Frétta- blaðið. Fischer lést tveimur árum síðar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Grétar Vil- mundarson, Drafnarstíg 2a, Reykjavík, verð- ur sextugur á morgun, 13. febr- úar. Hann verður með opið hús á afmælisdaginn kl. 14 til 16.30 í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Blóm og skreytingar afþakk- aðar en þess má geta að Grétar er að safna fyrir „draumaferðinni“ á Old Trafford. 60 ára „FJÖLSKYLDUNNI og nánustu vinum verður boðið upp á eitthvert góðgæti í kvöld bæði í föstu og fljótandi formi,“ segir Ingvar Guðmundsson matreiðslumeistari. Tekur hann fram að hann sjái ekki ástæðu til þess að halda stórveislu þótt hann fagni fimmtugsafmæli. „Ég er svo lífsglaður að ég held upp á hvern einasta dag, því allir dagar eru skemmtilegir,“ segir Ingvar. Hann er kvæntur Bryndísi Huldu Pétursdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau fjögur börn á aldrinum 7-21 árs. Ingv- ar er nýtekinn við starfi matreiðslumeistara í mötuneyti MH og eldar þar daglega ofan í 80 starfsmenn skólans, en sl. tíu ár rak hann Salatbarinn við Faxafen. Segir hann hollt og gott að skipta um starfsvettvang á tíu ára fresti. Inntur eftir eftirminnilegum afmælum í tímans rás segir Ingvar öll afmæli eftirminnileg, en nær undantekningarlaust hafi afmælisdeg- inum verið fagnað í hópi ættingja og allra nánustu vina. „Sem barn man ég að það var alltaf vont verður, norðlensk stórhríð, á þessum tíma árs í sveitinni heima og því var ekki alltaf hægt að halda upp á afmælið á sjálfum afmælisdeginum,“ segir Ingvar sem er fæddur og uppalinn í Miðfirði í Húnavatnssýslu. silja@mbl.is Ingvar Guðmundsson 50 ára Allir dagar eru skemmtilegir Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.