Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 Eftir Árnýju E. Ásgeirsdóttur HÚSIÐ Bankastræti 4 stendur nú autt en það hýsti áður verslun Hans Petersen frá árinu 1907 eða í meira en 100 ár. Versluninni var lokað um síðastu jól. „Það eru breyttir tímar,“ segir Reg- ína Inga Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en hún segir ákvörðunina ekki tengjast beint hruninu. „Það fylgdi því mikill tregi að loka en hægt og rólega hefur dregið úr framköllun og þróunin verið í átt að stafrænni ljósmyndun. Í framtíð- inni ætlum við helst að leggja áherslu á net- lausnir fyrir viðskiptavini okkar. Þar sem leigu- verð er hátt í Bankastræti ákváðum við að einbeita okkur frekar að versluninni í Ármúl- anum. Við munum auðvitað ennþá starfrækja móttökustöðvar á helstu pósthúsum borgar- innar.“ Hans Petersen í Bankastræti hefur verið stór þáttur í lífi Reykvíkinga frá stofnun. Hans P. Petersen heitinn opnaði verslunina með sölu á nýlenduvörum og veiðarfærum en strax frá árinu 1920 breyttist starfsemin þegar hann hóf að framkalla og selja ljósmyndavörur. Í kjölfar- ið fékk hann síðan umboð fyrir Kodak-vörur. Þegar hann lést árið 1938 tók Guðrún M. Pet- ersen eiginkona hans við rekstrinum með að- stoð sona sinna í fjölmörg ár. Fram til ársins 1997 voru hluthafar eingöngu tengdir Petersen- fjölskyldunni en þá var fyrirtækið að stórum hluta selt. Á tímabili störfuðu allt að 100 manns hjá fyrirtækinu en nú eru stöðugildin undir 10. Með nýjum leigjanda breytist húsið verulega en verslunin Aurum sem staðsett er við hliðina hyggst nýta rýmið til stækkunar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lokað Merkri sögu verslunar í Bankastræti er nú lokið. Þjónusta í rúma öld er á enda  Hans Petersen hættir starfsemi í Bankastræti  Ákvörðunin tengist ekki hruninu beint  Dregið hefur úr framköllun vegna stafrænnar tækni BORGARRÁÐ samþykkti einróma á fundi sínum í gær að stofna skóla í Úlfarsárdal sem sameinar undir einu þaki leikskóla og grunnskóla ásamt frístundastarfi fyrir börn frá eins árs aldri til tólf ára. Einn faglegur og rekstrarlegur stjórn- andi verði ráðinn að skólanum, sem skipuleggur innra starf sam- kvæmt lögum, reglugerðum og námskrám fyrir leik- og grunn- skóla og samþykktum um rekstur frístundaheimila, í samstarfi for- eldra. Nýi skólinn mun mæta þörfum margra barna en í dag eru 65 börn úr hverfinu í leik- og grunnskólum í öðrum hverfum, segir í tilkynn- ingu frá borginni. Áhersla verður lögð á að íbúar, fullorðnir jafnt sem börn, hafi aðkomu að und- irbúningi nýja skólans. Skólinn mun taka til starfa haustið 2010 í húsnæði leikskólans í Úlfarsárdal. Þegar grunnskóla- húsnæðið verður tilbúið verður það nýtt fyrir sameinaðan skóla ásamt leikskólahúsnæðinu. Frá hausti 2010 verða í skólanum nemendur frá eins árs til tíu ára og síðan bæt- ist við einn árgangur árlega. Skóli tekur til starfa í Úlfars- árdal í haust Morgunblaðið/hag Úlfarsárdalur Skólastarf mun hefj- ast í þessu nýja hverfi í haust. TVÖ prófkjör verða haldin um næstu helgi fyr- ir komandi sveitarstjórn- arkosningar, bæði hjá Sjálfstæðis- flokknum. Á Ísafirði má búast við mikl- um slag um fyrsta sætið, þar sem Eiríkur Finn- ur Greipsson, Gísli H. Halldórsson og Guðfinna Hreiðarsdóttir sækjast öll eftir fyrsta sætinu í prófkjöri sem fram fer á laugardag. Alls eru þar tíu í framboði. Einnig verður kosið á Akureyri á laugardag, en þar sækist Sigrún Björk Jakobsdóttir eftir fyrsta sæt- inu og Sigurður Guðmundsson eftir fyrsta til öðru sæti. Þrettán gefa kost á sér í prófkjörinu. hlynurorri@mbl.is Prófkjör hjá Sjálf- stæðisflokknum á Akureyri og Ísafirði Tvö prófkjör verða haldin um helgina. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ÁRSÞING Knattspyrnusambands Ís- lands verður á morgun og að því loknu eða klukkan 18.30 verður afhjúpað listaverk framan við höfuðstöðvar sambandsins í Laugardal. Það er til minningar um Albert Guðmundsson, fyrsta íslenska atvinnumanninn í knattspyrnu, og er eftir Helga Gísla- son myndhöggvara. Einstaklingurinn í heildinni „Það er eitthvað við fótboltann sem lokkar milljónir á völlinn og ég hafði það í huga við gerð verksins,“ segir Helgi. Hann byrjaði á verkinu 2007, mótaði styttuna í leir og steypti hana síðan í brons. Styttan í fullri stærð stendur á boga sem Helgi hugsar sem hluta leikvangsins og á honum er fót- bolti sem jafnframt vísar til jarð- arkringlunnar. „Ég stóð frammi fyrir tveimur möguleikum,“ segir hann. „Annars vegar að gera portrett af manninum, mannlýsingu, en samtím- inn gerir það alltaf best og því valdi ég að fara í íþróttina sem slíka, ein- staklinginn í keppninni með vísan til alheimsins. Höfuðið vísar til Alberts en annars er þetta anatómísk skír- skotun til íþróttamannsins, ein- staklingsframtakið í heildinni. Með öðrum orðum set ég Albert í stærra samhengi. Myndin er tileinkuð honum en er um leið óður til fótboltans í heiminum.“ Myndgerðin mikilvæg Helgi segir mikilvægt að þessi myndgerð sitji ekki eftir, að samtím- inn sinni henni enda sé þörf fyrir hana. Hefðbundna túlkunin sé að gerð sé stytta af viðkomandi einstaklingi, í þessu tilfelli af Alberti Guðmundssyni. Verkið sé enda tileinkað honum en það sé líka víkkað út frá honum. „Ég vildi staðsetja þennan tiltekna ein- stakling í þessu samhengi, í þessari íþrótt sem dregur að sér milljónir. Er það einstaklingurinn, hans full- komnun, sem hefur þetta aðdrátt- arafl? Allt þetta hafði ég í huga við gerð verksins.“ Íþróttafataframleiðandinn Halldór Einarsson í Henson Sports hf. átti hugmyndina að gerð styttunnar. Hann hefur unnið að málinu í meira en áratug og sér nú árangur erfiðisins. Albert og styttan óður til fótboltans ÓSKAÐ hefur ver- ið eftir því að stytta af Jóni Páli Sigmarssyni kraft- lyftingamanni verði reist nálægt gömlu þvottalaug- unum í Laugardal. Í umsögn safn- stjóra Listasafns Reykjavíkur 21. janúar sl. segir að engar upplýs- ingar um verkið fylgi beiðninni og því sé ekki hægt að meta formleg tengsl þess við umhverfið auk þess sem æskilegt sé að fá umsögn ÍSÍ um beiðnina. Bent er á að listræn sköp- un hafi þróast í átt að nánari tengslum listaverka við umhverfið og mikilvægt sé að tekið sé mið af þeirri þróun í sambandi við ný lista- verk í almenningsrými borgarinnar. Málinu var frestað á fundi menning- ar- og ferðamálaráðs. Vill styttu af Jóni Páli  Listaverkið afhjúpað annað kvöld Morgunblaðið/RAX Listamaðurinn og verkið Helgi Gíslason myndhöggvari hefur haft í nógu að snúast undanfarin ár en féll strax fyrir hugmyndinni um að gera styttu af Alberti Guðmundssyni. Hann útfærði hugmyndina á sinn hátt og er ánægður með hvernig til hefur tekist. „Höfuðið vísar til Alberts en annars er þetta anatómísk skírskotun til íþróttamannsins, einstaklingsframtakið í heildinni. Með öðrum orðum set ég Albert í stærra samhengi. Myndin er tileinkuð honum en er um leið óður til fótboltans í heiminum,“ segir hann. Hver var Albert Guðmundsson? Hann fæddist 5. október 1923 og ruddi brautina fyrir íslenska atvinnu- mennsku í íþróttum, en fyrsti samn- ingur hans var við FC Nancy í Frakk- landi, undirritaður 29. júlí 1947. Hann var stórkaupmaður í Reykjavík frá 1965, borgarfulltrúi 1970 til 1986 og lengst af í borgarráði. Forseti borgarstjórnar 1982 og 1983. Hann var þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1974 til 1987 og Borg- araflokksins 1987 til 1989. Hann var fjármálaráðherra 1983 til 1985, iðn- aðarráðherra 1985 til 1987 og sendi- herra í Frakklandi 1989 til 1993, en hann var ræðismaður Frakka 1962 til 1989. Albert féll frá 7. apríl 1994. Með hvaða erlendum liðum lék Albert? Eftir að hafa verið fjórfaldur Íslands- meistari með Val í Reykjavík hélt Al- bert til náms í Skotlandi 1945. Hann lék með Glasgow Rangers og Arsenal áður en hann gerðist atvinnumaður hjá Nancy. Þaðan lá leið hans til AC Milan á Ítalíu, síðan var hann liðs- maður Racing Club Paris og lauk ferlinum hjá Nice 1955. Hann var for- maður KSÍ 1968 til 1973. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.