Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 24

Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 ✝ Stefanía Sig-urjónsdótttir fæddist 11.5. 1918 í Geirshlíð í Miðdölum. Foreldrar hennar voru Kristín Ásgeirs- dóttir, f. 1878, og Sig- urjón Jónsson, f. 1875. Þau bjuggu fyrst á Glæsisvöllum síðar í Kirkjuskógi í Miðdölum. Börn Kristínar og Sigurjóns í aldursröð: Guðrún, f. 1901, Ágúst, f. 1902, Ásgeir, f. 1904, Jóhanna, f. 1911, Þuríður, f. 1912, Margrét, f. 1916, Stefanía, f. 1918, og Víglundur, f. 1920, en hann er einn eftirlifandi af þeim systkinum. Stefanía giftist hinn 4.11. 1950 Jóni Guðnasyni, múrara og mæling- arfulltrúa, f. 31.10. 1920, frá Jaðri í Hrunamannahreppi. Hann er sonur Guðna Jónssonar, f. 1895, og Krist- ínar Jónsdóttur konu hans, f. 1892. Börn Stefaníu og Jóns eru: 1) Guðni viðskiptafræðingur, f. 1950, maki Guðbjörg Gylfadóttir, tækni- teiknari og leikskólakennari, f. Kristinssyni íslenskufræðingi og kennara, f. 1916, d. 1994, Kolbrúnu þjónustufulltrúa, f. 1944, börn hennar eru: a) Óskar, f. 1964, faðir Haraldur Þorsteinsson flugvirki, f. 1944. Dóttir Óskars og Elfu Báru Bjarnadóttur, f. 1966, er Þórunn Sylvía, f. 1988. Kolbrún ólst upp hjá Guðrúnu systur Stefaníu b) Kol- brún eignaðist með fyrrv. eig- inmanni Bjarna Þorsteinssyni verslunarmanni, f. 1942, d. 2001, Guðrúnu, f. 1967, maki Karl Helgi Jónsson, f. 1965. Börn þeirra: 1) Diljá Tara, f. 1989, dóttir hennar og Sigurðar Þórs Jónssonar, f. 1986, er Anita Mjöll, f. 2009. 2) Aldís Mjöll, f. 1990, unnusti hennar er Jökull Júl- íusson, f. 1990. c) Þorsteinn, f. 1971, maki Fjóla Aronsdóttir, f . 1977, börn þeirra: 1) Bjarni, f. 2001, 2) Helga Björg, f. 2002, 3) Guðrún María, f. 2008. 5) Kristinn versl- unarmaður, f. 1946, d. 1991. Stefanía lauk sveinsprófi í klæð- skerasaumi hinn 8.2. 1945 hjá Guð- mundi Guðmundssyni klæðskera þar sem hún vann í nokkur ár. Eftir að hún giftist Jóni helgaði hún heimilinu krafta sína að mestu leyti. Hún var húsmóðir af lífi og sál og hélt fyrirmyndarheimili. Lengst af bjuggu þau hjónin í Goðheimum 11 og síðar í Árskógum 8 í Reykja- vík. Útför Stefaníu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 12. febrúar 2010, og hefst athöfnin kl. 15. 1954. Börn Guðna með fyrrv. eiginkonu, Guðrúnu Antonsdótt- ur leikskólastjóra, f. 1950, eru a) Jar- þrúður, f. 1970, maki Einar Sigurðsson, f. 1971. Börn þeirra eru Hugrún Líf, f. 2000, Kjartan Pétur, f . 2006, og Anton Guðni, f. 2006. b) Jón Líndal, f. 1976. C) Barn Guðna með Sigrúnu E. Sveinsdóttur, f. 1963, er Hekla Brá, fædd 2000. 2) Kristín, bókari og einkaþjálfari, f. 1955, maki Gísli Vilhjálmsson tannréttingasérfræð- ingur, f. 1954. Þeirra börn: a) Vil- hjálmur, f. 1983, d. 1999. b) Anna Ýr, f. 1986, sambýlismaður Bene- dikt Arason, f. 1979. c) Sindri Freyr, f. 1993. 3) Gunnar bifvéla- virki, f. 1965. Börn hans með fyrrv. eiginkonu, Guðfinnu Kristjáns- dóttur stjórnmálafræðingi, f. 1968: a) Kristinn, f. 1992, d. sama ár. b) Kristján Andri, f. 1994, c) Stefán, f . 1996. 4) Stefanía eignaðist tvö börn með fyrrv. sambýlismanni Eiríki Mamma – ég vild’ að ég gæti ort um þig ódauðleg ljóð, boðið þér tignustu sæti, gefið þér dýrastan sjóð … Þú gafst mér lífið – og ævi þín fór í að vera mér góð. Mamma þú varst mér verndarengill æsku minnar. Mamma, hvern dag ég hugsa enn til gæsku þinnar. Þú hafðir á mér gætur hvern dag – og andvökunætur. Sérhverjum vanda þú komst í lag; það er mín hamingj’ í dag. Mamma þú átt það best’ í því sem núna ég er. Ég er alltaf barnið þitt og enn í dag minn hugur dvelur með þér. Mamma – með þér (Þorsteinn Eggertsson.) Hinsta kveðja frá börnum þínum Kolbrúnu, Guðna, Kristínu og Gunnari. Í dag fer fram útför Stefaníu Sig- urjónsdóttur, tengdamóður minnar. Það væri hægt að skrifa langt mál um þá frábæru, yndislegu og jákvæðu konu en ég læt nægja að minnast hennar í fáum orðum. Hún var ekta tengdamóðir sem tók mér opnum örmum þegar Guðni, sonur hennar, kynnti mig fyrir henni. Frá þeim degi átti hún mig alla, þessi frábæra vel gefna og víðlesna bónda- dóttir úr Dölunum. Sorgin er ekki minni þótt aldurinn hafi verið hár, minningarnar koma hver af annarri og allar eru þær góðar og skemmti- legar. Ég var heppin að fá að kynnast þessari yndislegu konu á þessum stutta tíma sem við áttum saman. Það var hlegið og spjallað og sagði hún mér margar skemmtilegar sögur frá liðinni tíð og um börnin sín, sem hún dáði af einlægni. Hún vildi gera allt fyrir alla og mátti ekkert aumt sjá. Er ég hugsa til Stebbu koma upp í hugann mannkostir hennar svo sem vandvirkni, rík kímnigáfa, trú- mennska og heiðarleiki. Aldrei heyrði ég hana tala illa um nokkra manneskju. Mikið erum við Guðni glöð að hafa eytt síðustu jólum með ykkur Nonna, en þau verða okkur ógleymanleg. Hvað við hlógum og skemmtum okk- ur. Þegar leiðir skilur er mér efst í huga ómælt þakklæti fyrir vináttu og fyrir að hafa fengið að kynnast þess- ari stórbrotnu góðu konu og þakka fyrir allar ljúfu minningarnar. Guð blessi minningu Stefaníu Sigurjóns- dóttur. Guðbjörg Gylfadóttir. Elsku amma. Það er komið að kveðjustund. Þeg- ar ég hugsa til þín dettur mér fyrst í hug dugnaður. Þú varst duglegasta manneskja sem ég hef þekkt. Heim- ilið alltaf óaðfinnanlegt, góður matur og þú kunnir bókstaflega allt. Prjón- aðir betur en nokkur prjónavél, hekl- aðir, saumaðir flottustu flíkurnar og ég er svo heppin að eiga nokkrar eftir þig sem ég varðveiti vel. Alltaf var slátur tekið, farið í berjamó, sultað, bakað o.fl. Það var aðdáunarvert að horfa á þig sinna þessum verkefnum og þú ert flott fyrirmynd. Það var ómetanlegt að eiga ömmu sem vakn- aði kl. fjögur að nóttu til að taka á móti Verzlunarskólamey og klæða í upphlut í tilefni peysufatadagsins. Þú kræktir öllu á réttan stað og settir höfuðfatið á. Ég var örugglega sú eina sem var rétt klædd í þetta allt saman. Minningarnar eru margar á svona löngum tíma og flestar úr Goðheim- unum. Þú eldaðir alltaf uppáhalds- matinn minn þegar ég kom, kjötboll- ur í brúnni sósu eða brauðsúpu. Ég vona að Stína frænka sé með upp- skriftina að bestu brauðsúpu í heim- inum. Þegar við löbbuðum niður í Álf- heima fórum við oft í Sigga sjoppu að kaupa súkkulaðikalla. Á mennta- skólaárunum bjó ég einmitt í Álf- heimunum hjá pabba. Þá var nú ekki slæmt að hafa ömmu í næstu götu. Alltaf opið hús ef maður þurfti aðstoð eða næringu í kroppinn. Ég á líka margar góðar minningar úr bústaðn- um fyrir austan. Þið afi hélduð oft ykkar síðustu jól og fóruð í margar síðustu utanlands- ferðirnar. Ein af þeim var siglingin um Karíbahafið árið 1999. Við ókum þér um eins og drottningu og þú vaktir athygli hvert sem við fórum, ég var hrædd um að þessi á Jamaica ætlaði með þig heim, hann var alveg dolfallinn. Þú hafðir ekki mikið út- hald í að labba, enda „rúmlega“ tví- tug, nema þegar kom að því að skella sér í spilakassana. Þá var eins og þú fengir aukaorku, æddir af stað og afi átti fullt í fangi með að fylgja þér. Svo komstu með fulla fötu af klinki til baka, alsæl, enda varstu alltaf hag- sýn. Hagsýnin fólst einmitt líka í sauma- og prjónaskapnum. Það eru líklega ekki margir sem hafa átt ömmu og afa sem sátu fyrir framan sjónvarpið, bæði prjónandi, þegar maður kom í heimsókn. Þið voruð fyrirmyndarhjón. Þó að maður kom- ist ekki með tærnar þar sem þið höfð- uð hælana, þá er það hellingur að ná ykkur bara hálfa leið. Við Hugrún komum til þín á spít- alann fyrir stuttu og það gladdi þig mjög. Varst að dást að henni eins og þú gerðir alltaf. Þú fylgdist alltaf vel með öllum gullmolunum þínum. Þú sagðir við okkur á spítalanum að þú ætlaðir heim í vikunni, „ég get ekki orðið eins og mosi á steini hér“, sagð- irðu. En nú var komið að því að halda í aðra heima. Mér dettur í hug setn- ing Sindra frænda: „Þegar mamma mín og pabbi eru dáin flyt ég til ömmu og afa.“ Þá væri lífið einfalt, ef maður gæti flutt til þín og afa sem yrðuð „alltaf“ til staðar. Ég kveð þig með söknuði og vona að ég geti fetað í flest þín fótspor. Þú verður fallegasti mosinn, ekki bara á steininum heldur í öllum dalnum. Elsku afi, megi Guð gefa þér styrk í sorginni. Þín sonardóttir, Jarþrúður Guðnadóttir (Jara). Að hún amma mín sé dáin og eigi ekki eftir að vera með okkur lengur, er erfitt að sætta sig við. Það eina sem hægt er að gera er að ylja sér við allar minningar sem ég á um hana. Það sem er efst í huga mér núna, er ég hugsa um ömmu er: Hvað var alltaf gott að koma til ömmu og afa, maður gleymdi erli hversdagsleikans og leið svo vel hjá þeim. Að þú máttir sko ekki vera svangur hjá ömmu og afa … nei, það var bannað! og þó að þú værir orðinn saddur … nei, nei, borða meir og hana nú! Ameríkuferðin sem við mamma fórum með þeim og Gunnari að heim- sækja Stínu frænku og Gísla. Í St. Louis. Veiðiferðirnar með þeim. Ferðirnar í bústaðinn þeirra. Jólaboðin hjá ömmu og afa í Goð- heimunum þegar ég var lítil. Sláturgerðin með þeim. Jólahreingerningar með ömmu, það voru sko teknir allir veggir og loft. Allt sem amma saumaði og prjón- aði á mig og mína. „Rauður“ bíllinn þeirra, sem þau gáfu mér er afi hætti að keyra fyrir tveimur árum, það er góð tilfinning að keyra um á Rauð og hugsa um þau. Já, það er margt sem kemur upp í hugann, ég á svo margar dýrmætar minningar sem ég mun geyma um ókomna tíð. Amma var svo spennt að fá 5. ætt- liðinn í kvenlegg og fékk hún þá ósk uppfyllta í nóvember sl. er Diljá Tara, dóttir mín, eignaðist Anítu Mjöll. Þær eru ómetanlegar mynd- irnar sem voru teknar af okkur fimm ættliðunum í skírn Anítu. Það er mjög erfitt að hugsa sér lífið án ömmu, það er eitthvað svo tóm- legt. Hún var einhvern veginn mið- punkturinn í fjölskyldunni. Amma var glæsileg kona, dugleg, hress og yndisleg og vildi allt fyrir alla gera. Hún var að verða 92 ára, en það var ekki hægt að sjá það, hún var fal- leg og hress fram á síðasta dag. Ég er svo þakklát fyrir að hafa get- ið verið hjá henni síðustu stundirnar og haldið í höndina á henni. Ég veit að hún fann það. Elsku afi! hugur minn er hjá þér. Þið amma voruð svo samrýnd og hefðuð átt 60 ára brúðkaupsafmæli á þessu ári. Amma mín, ég kveð þig með sökn- uði og virðingu og vil þakka þér fyrir allar stundirnar og allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku amma mín. Kveðja frá Óskari, Dinna og fjölsk. okkar. Moldin er þín. Moldin er trygg við börnin sín, sefar allan söknuð og harm og svæfir þig við sinn móðurbarm. Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð á leiðinu þínu. Moldin er hljóð og hvíldin góð … (Davíð Stefánsson.) Guð geymi þig. Þín, Guðrún. Stefanía Sigurjónsdóttir ✝ Gunnþórunn Ein-arsdóttur, kaup- maður og húsmóðir, fæddist 24. febrúar 1920 í Vík í Mýrdal, V- Skaftafellssýslu. Gunnþórunn lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli hinn 31. janúar 2010. Foreldrar hennar voru Einar Einarsson, búfræðingur, formað- ur og verslunarmaður hjá Kaupfélagi Vest- ur-Skaftfellinga, f. 18. janúar 1892 að Reyni í Mýrdal, d. 25. ágúst 1927, og Kristín Ingileifs- dóttir, ljósmóðir í Vík og rjómabús- stýra og síðar starfsmaður Alþingis, f. 2. apríl 1889, d. 27. desember 1988. stöðvarstjóri Pósts og síma, búsett í Reykjavík, f. 20. nóvember 1939. Hennar sonur er Matthías Birgisson, starfsmaður rafverktaka, f. 15. ágúst 1974. Börn hans eru Victor Máni og Hlynur Andri. 2) Guð- mundur hagfræðingur, búsettur í Uppsölum í Svíþjóð, f. 15. maí 1944, kona hans er Ingrid Matthíasson uppeldisfræðingur, f. 13. ágúst 1948. Börn þeirra eru: a) Björn, veit- ingamaður, f. 30. júlí 1967, sambýlis- kona hans er Ullrika Pernler, kenn- ari. Börn þeirra eru Max og Rasmus. b) Markus, atvinnumaður í íshokkíi, f. 16. nóvember 1975, maki Helen Matthíasson. Börn þeirra eru Ella og Leon. 3) Einar, framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 27. ágúst 1950, kona hans er Guðbjörg Guðbergsdóttir yf- irhjúkrunarfræðingur, f. 17. júlí 1951. Börn þeirra eru: a) Gunnþór- unn matvælafræðingur, f. 16. nóv- ember 1974, maki Guðjón Gunn- arsson matvælafræðingur. Börn þeirra eru Einar Gunnar og Ísey Björg. b) Karl iðnaðartæknifræð- ingur, f. 18. febrúar 1977, sambýlis- kona hans er Brynja Magnúsdóttir mannfræðingur. Gunnþórunn ólst upp í Vík í Mýr- dal, hjá móður sinni, en hún missti föður sinn þegar hún var 7 ára göm- ul. Gunnþórunn fluttist til Reykja- víkur árið 1935 og fór þá að vinna á elliheimilinu Grund en síðar vann hún við verksmiðjustörf hjá máln- ingarverksmiðjunni Litur og lökk. Eftir að hún og Matthías hófu bú- skap 1939 og börnin voru að alast upp sinnti hún húsmóðurstarfinu en jafnframt eggjabúi sem þau starf- ræktu um nokkurra ára skeið sam- hliða starfi og síðar saumaskap á kvenfatnaði. Þegar börnin voru komin á legg hóf hún að starfa utan heimilis í kvenfataverslun Ásbjarnar Ólafssonar og eignaðist síðan Hatta- búð Reykjavíkur og Kvenfatabúðina sem hún rak um árabil allt þar til hún varð 79 ára gömul. Lengst af bjó Gunnþórunn með fjölskyldu sinni í Sólheimum 1 í Reykjavík. Útförin fer fram frá Bústaða- kirkju í dag, 12. febrúar 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Gunnþórunn giftist 20. maí 1939 Matthíasi Guðmundssyni, póst- meistara í Reykjavík, f. 15. júlí 1913 í Reykjavík, d. 15. jan- úar 1998. Foreldrar hans voru Guðmundur Kristmundsson sjó- maður, f. 9. september 1875, d. 30. desember 1935 og Guðríður Davíðsdóttir, f. 15. febrúar 1867, d. 18. apríl 1954. Systkini Gunnþórunnar: Brynj- ólfur Einarsson, Sigríður Ein- arsdóttir, Einar Jón Einarsson og Leifur Einarsson. Á lífi er Sigríður. Gunnþórunn og Matthías eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Kristín, fv. Elsku amma, nú ertu farin frá okk- ur og eftir stendur minning um tign- arlega og litríka konu sem jafnframt var ljúf og elskuleg. Við systkinin fæddumst í Svíþjóð og voru ferðir okkar til Íslands ávallt mikið tilhlökkunarefni, þó einkum yfir jólahátíðirnar þar sem við gist- um hjá ömmu og afa í Sólheimum. Húsið þeirra breyttist þá í mikinn leikvöll. Fyrir stelpu var fataskápur- inn hennar ömmu algjör drauma- heimur. Það var varla tími til að heilsa ömmu og afa því mikið lá á að stökkva inn í fataskápinn og máta alla fínu skóna, hattana og auðvitað pelsinn. Fyrir stráka var það að laumast niður í kjallara og smakka á jólabakstrinum. Á aðfangadags- kvöld, eftir að pakkarnir höfðu verið teknir upp, komu allir saman við ar- ininn og allur umbúðarpappír var brenndur ásamt fleiru lauslegu sem mátti missa sín. Amma hafði mikla unun af því að spila og var bridge í miklu uppáhaldi hjá henni. Sinnti hún þessu áhuga- máli sínu fram á sín síðustu ár. Við vorum svo lánsöm að hún var iðin við að spila við okkur og kenndi hún okk- ur ófá spilin og þýddi ekkert fyrir okkur að vera tapsár þar sem hún gaf ekki þumlung eftir. Spila- mennskan fór oft fram í sumarbú- staðnum sem amma og afi áttu á Laugarvatni en þaðan eigum við margar góðar minningar. Okkur systkinunum þótti ákaflega gaman að aðstoða og fylgjast með ömmu í Hattabúð Reykjavíkur og Kvenfatabúðinni sem hún rak til margra ára. Búðin var nokkurs kon- ar stoppistöð fyrir ættingja og vini og naut hún þess að spjalla yfir ein- um kaffibolla. Amma var mjög fróð kona enda las hún alla tíð mjög mikið og sjaldan eins mikið og á efri árum. Hún amma var kát og ræðin kona og hafði gaman af því að vera innan um fólk og nú á seinni árum naut hún þess að eyða tíma með langömmu- börnunum. Elsku amma, takk fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Þær munu lifa með okkur um ókomna tíð. Blessuð sé minning þín. Þín Gunnþórunn og Karl. Hún var ung, ljóshærð, glaðleg og falleg hún Gunnþórunn er hún giftist Matthíasi, föðurbróður mínum. Og hún bar aldurinn með reisn þó að að- Gunnþórunn Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.