Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 48
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 43. DAGUR ÁRSINS 2010 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 127,83 199,49 120,78 23,608 21,682 17,656 119,85 1,422 196,97 175,79 Gengisskráning 11. febrúar 2010 128,14 199,97 121,13 23,677 21,746 17,708 120,18 1,4262 197,56 176,28 231,6568 MiðKaup Sala 128,45 200,45 121,48 23,746 21,81 17,76 120,51 1,4304 198,15 176,77 Heitast 7°C | Kaldast 2°C Hæg suðlæg átt og stöku skúrir, en geng- ur í suðaustan 8-13 m/s með rigningu S- og V-lands í kvöld » 10 Jakob Frímann seg- ir sérstaka þriggja manna matsnefnd hjá STEFi meta hvort lag sé stolið eða ekki. »44 TÓNLIST» Stolið eða ekki stolið AF LISTUM» Iben Hjejle var góð í sunnudagsbíóinu. »43 Sigurður Flosason leikur lög við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar úr ljóða- og myndabók- inni Eyðibýli. »39 TÓNLIST» Ljóð um eyðibýli ÍSLENSKUR AÐALL» Oddvar Örn Hjartarson óttast dónalegt fólk. »42 KVIKMYNDIR» Úlfar, ástir og hálfguðir í bíó um helgina. »45 Menning VEÐUR» 1. A. Karlsson gjaldþrota 2. Fíkniefnaleit í Tækniskóla 3. „Makalaust innlegg“ 4.„Þetta var ekkert smá sárt“  Íslenska krónan hélst óbreytt »MEST LESIÐ Á mbl.is  Á sunnudaginn var söng Hrólfur Sæmundsson tit- ilhlutverkið á frumsýningu óp- erunnar Evgení Onegin eftir Tjaí- kovskí í óperunni í Aachen í Þýskalandi. Nú þegar hafa nokkrir dómar birst og eiga þeir það sammerkt að lofa hinn íslenska söngvara og segir þýska rík- isútvarpið m.a. að Hrólfur hafi sung- ið „með hinu fegursta legato“. Nú þegar er næsta ár fullbókað hjá hon- um en hann mun m.a. syngja í Ma- dame Butterfly og Töfraflautunni. TÓNLIST Hrólfur Sæmundsson fær góða dóma í Þýskalandi  Íslensku þekk- ingarverðlaunin voru afhent á hótel Nordica í gær. Var Fjarðarkaup valið fyrirtæki ársins og Magnús Geir Þórðarson borgarleikhússtjóri viðskiptafræð- ingur ársins. Það er Félag viðskipta- og hagfræðinga er stendur að valinu, og er það mat dómnefndar að Magn- ús Geir hafi á eftirtektarverðan máta náð að tengja saman viðskipti, menningu og listir. Hann sé frum- kvöðull á sínu sviði og hafi náð bæði faglegum og rekstrarlegum árangri með leikhúsin sem hann hefur stýrt. VIÐSKIPTI Magnús Þór valinn við- skiptafræðingur ársins  Sjálfur Björg- vin Halldórsson ætlar að æra lýðinn á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi, nú á laugardaginn. Um undirleik sér sauðkrækska hljómsveitin VON en einnig koma þau Einar Ágúst og Ína Valgerður fram. „Við erum að tala um VON með eitt breiðasta og mesta stuð- ball-prógramm norðan Alpafjalla og sjálfan meistara BÓ! Þarf að segja eitthvað meira?“ segir m.a. í kerskn- islegri fréttatilkynningunni. TÓNLIST Það er „gó“ á helgina þegar meistari Bó segir „gó“ Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is NÆR engin úrkoma hefur verið á Akureyri frá áramótum önnur en framleidda mjöllin úr snjóbyssunum á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Við lög- reglustöðina, þar sem laganna verðir skoða mælitæki á þriggja tíma fresti allan sólarhringinn, mældist aðeins 0,8 millimetra úrkoma. Úrkoma hefur aldrei verið jafn lít- il í janúarmánuði á Akureyri frá því samfelldar úrkomumælingar hófust árið 1927, skv. upplýsingum Trausta Jónssonar veðurfræðings. Þurrasti janúar í höfuðstað Norðurlands þar til nú var 1963, þegar úrkoman mældist 4,3 mm. Snjó kyngdi niður í gríðarlegum mæli á Akureyri um jólin en síðan skipaðist veður í lofti. Lögreglu- menn sem Morgunblaðið ræddi við í gær muna eðlilega ekki annað eins og höfðu raunar ekki velt veður- farinu mikið fyrir sér. Sögðu þó bæj- arbraginn allan annan þegar enginn væri snjórinn og starf sitt auðveld- ara á margan hátt. Jóhann Olsen og Geir Baldursson voru á meðal lögreglumanna á vakt í gær. „Það verður hluti af rútínunni að fylgjast með veðrinu og ég hugsa óneitanlega öðruvísi um veðrið eftir að ég byrjaði að vinna hér,“ sagði Jó- hann. „Maður horfir öðruvísi á skýin og hlustar með meiri athygli á veð- urfréttirnar en áður.“ Lögreglumenn fylgjast ekki bara með hita og úrkomu heldur skýja- fari, skrá loftþrýsting og ýmislegt fleira sem kemur veðurfræðingum til góða. Daglega skipta þeir til dæmis um spjald í sólarmæli í bæn- um; í desember jafnt sem öðrum mánuðum, þó svo sólar njóti þá ekki á Akureyri nema rétt neðst á Odd- eyrinni, víðs fjarri sólarmælinum. Jóhann og Geir segja líklega ekki algengt að venjulegt fólk líti til him- ins á þriggja klukkustunda fresti til þess að skoða skýjafarið eins og þeir geri á vaktinni. „Þetta eru til dæmis maríutása og skúraleg netjuský!“ segir Geir og bendir út um glugga lögreglustöðvarinnar. Smávægilegri úrkomu er spáð á Norðurlandi og Vestfjörðum á morgun. Einar Sveinbjörnsson segir að búast megi við einhverri snjó- komu en bendir þó á að oft hafi sýnt sig að loft þeirrar gerðar sem von er á sé ansi þurrt. Úrkoma innan við millimetra Skothríðin í Hlíð- arfjalli eina úr- koman í janúar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hugarfar og veðurfar Hugsa öðruvísi um veðrið eftir að ég byrjaði í lögreglunni, segir Jóhann Olsen á Akureyri. SVERRE Jakobsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska liðsins Grosswallstadt, slasaðist á auga á æfingu liðsins í vikunni. Sverre fékk fast skot í andlitið og lenti boltinn í vinstra auganu. Það blæddi inn á augað og eftir skoðun hjá lækni var honum bannað að æfa þar til afleiðingarnar kæmu í ljós. Sverre fer í aðra rannsókn í dag og verður að að fylgjast með félögum sínum utan vallar en liðið á leik í kvöld. | Íþróttir Morgunblaðið/Kristinn Sverre Varnarjaxlinn meiddist á auga og fer í rannsókn í dag. Sverre má ekki æfa SAFNANÓTT er haldin í dag í fimmta sinn. Undanfarin ár hefur Safnanótt verið hluti af Vetrarhátíð, en þar sem Vetrarhátíð er aflögð í bili fær Safnanótt að njóta sín enn betur. Að sögn Guðríðar Ingu Ing- ólfsdóttur, verkefnisstjóra viðburða hjá Höfuðborgarstofu, spannar Safnanótt nú allt höfuðborg- arsvæðið; Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Hafnarfjörður og Mos- fellsbær taka þátt í henni og söfnin verða þrjátíu og fimm talsins. | 38 Safnanótt í fimmta sinn Morgunblaðið/hag KK Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson leikur á Gljúfrasteini. Hver er úrkoman að meðaltali? Að vetrinum er hún 1-3 millimetrar á dag að jafnaði á Íslandi, að sögn Ein- ars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Skiptir hún miklu máli? Já, fyrir vatnsbúskap landsins skiptir vetrarúrkoman mjög miklu, skv. upp- lýsingum Einars, sérstaklega snjór- inn og fyrningar sem haldast fram á vorið og viðhalda rekju í jarðvegi á árstíma sem oft getur verið þurr. Hver eru áhrifin? Grunnvatnsstaðan lækkar, en ekki fyrr en meðalúrkoma er minni í nokkra mánuði hið skemmsta, líkt og veturinn 1976-77 sem var annálaður fyrir úrkomuþurrð, segir Einar: Í Reykjavík var þá samanlögð úrkoma 110 mm frá desember til mars, innan við 1 mm á dag. Þrátt fyrir þurrðina nú er úrkoma í borginni þegar orðin 150 mm frá áramótum. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.