Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 ✝ Sigsteinn Páls-son fæddist í Tungu í Fáskrúðs- firði 16. febrúar 1905. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 4. febrúar sl. og vantaði þá 12 daga til að ná 105 ára aldri. Um skeið var Sigsteinn elsti karlmaður á Ís- landi. Sigsteinn var sonur hjónanna El- ínborgar Stef- ánsdóttur og Páls Þorsteinssonar bónda og hreppstjóra í Tungu, einn af tólf systkinum sem upp komust en eru nú öll látin. El- ínborg Stefánsdóttir var fædd að Þóreyjarnúpi í Húnaþingi vestra 18. desember 1867, d. 2. júní 1951. Páll Þorsteinsson var fædd- ur 22. október 1863 í Víðivalla- gerði í Fljótsdal, d. 9. desember 1959, 96 ára að aldri. Sigsteinn ólst upp í föð- urhúsum, gekk í unglingaskóla og stundaði búfræðinám einn vet- ur við bændaskólann á Hólum í Hjaltadal. Árið 1936 réðst hann sem bústjóri að Reykjum í Mos- fellssveit til þeirra mága Guð- mundar Jónssonar og Bjarna Ás- geirssonar sem þar ráku Hermannsdóttir; fyrri maki Elín Kristín Guðmundsdóttir, börn Sigsteins og Elínar eru Jónína Ósk og Magnús Yngvi, c) Magnús Þór, f. 15.6. 1978, kvæntur Guð- línu Steinsdóttur, þeirra börn eru Þorlákur og Marta Guðrún, d) Helga Krístín, f. 8.12. 1981, maki Brynjólfur Bjarki Jensson, sonur þeirra er Jens Ólafur. 2) Kristín, f. 26.8. 1945, gift Grétari Hans- syni, f. 14.4. 1944. Börn þeirra: a) Sigsteinn Páll, f. 8.11. 1966, kvæntur Stellu Stefánsdóttur, þeirra dætur eru Sara Líf, Kristín Sif, Sonja Lind og Eva Sóley, b) Ólafur Hans, f. 10.8. 1968, kvænt- ur Signýju Ingadóttur, börn þeirra eru Dagur Ingi, Alma Kristín, Katrín María og Helga Hrund, c) Grétar Ingi, f. 24.2. 1974, kvæntur Erlu Björk Atla- dóttur. Sigsteinn var alla tíð sjálfstæð- ismaður. Hann tók virkan þátt í félagsmálum, bæði félagsmálum bænda og í Mosfellssveit. Hann var hreppstjóri Mosfellshrepps í tvo áratugi og um skeið formaður sóknarnefndar Lágafellssóknar. Formaður Veiðifélags Úlfarsár í mörg ár. Hann var einn af stofn- félögum Lionsklúbbs Mosfells- bæjar 1965 og talinn elsti starf- andi Lionsfélagi í heimi síðustu árin. Hann var heiðursfélagi karlakórsins Stefnis. Útför Sigsteins fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 12. febr- úar 2010, og hefst athöfnin kl. 13. myndarlegt bú. 18. nóvember 1939 kvæntist Sig- steinn Helgu, f. 18.9. 1906, dóttur Magnúsar Þorláks- sonar, bónda á Blikastöðum í Mos- fellssveit og árið 1940 hófu þau bú- skap að Melavöllum í Reykjavík. Tveim- ur árum síðar tóku þau við búskap á stórbýlinu Blika- stöðum þegar Magnús faðir Helgu lést. Þar ráku þau eitt stærsta og glæsileg- asta kúabú landsins í þrjá ára- tugi. Árið 1973 hættu þau kúabú- skap en bjuggu áfram á Blikastöðum til ársins 1992 er þau fluttu á dvalarheimili aldr- aðra í Mosfellsbæ. Helga lést 24. febrúar 1999. Síðustu 6 mánuði ævinnar dvaldi Sigsteinn á hjúkr- unarheimilinu Eir í Grafarvogi. Afkomendur Sigsteins og Helgu eru: 1) Magnús, f. 16.4. 1944, kvæntur Mörtu G. Sigurð- ardóttur, f. 18.4. 1948. Börn þeirra: a) Sigurður, f. 18.4. 1970, kvæntur Bjarnheiði Jónsdóttur, synir þeirra eru Heiðar Snær og Fannar Þór, b) Sigsteinn Helgi, f. 15.4. 1973, maki Sigríður Lára Afi var einstakur maður. Hann var stór þáttur í uppvexti mínum þar sem þau amma áttu heima í þar- næsta húsi við okkur á Blikastöðum. Ég var oft tekinn með í að smala, í girðingarvinnu eða annað sem til féll við búskapinn. Á unglingsárunum var ég nú ekki alltaf til í þetta – hafði nóg annað að gera. Í dag kann ég vel að meta þessi störf og þessar samverustundir sem í raun voru góður undirbúningur fyrir lífið. Afi fylgdist alltaf vel með okkur barnabörnunum. Hann vildi vita hvernig gengi í skólanum og hvert við stefndum í lífinu. Hann vildi að ég lærði til prests, fannst ég svo „góður“. Ég fór reyndar ekki alveg þá leið en er stundum í hálfgerðri sálgæslu, starfandi sem tannlæknir. Að loknu námi fluttum við fjöl- skyldan austur á Egilsstaði. Afi var býsna ánægður með það – nú ætti hann nátengda ættingja á Austur- landinu, en þaðan var hann ættaður. Hann var stoltur af uppruna sínum og Tunguættinni og kunni næstum því utanbókar a.m.k. 3 ættliði. Afi var í heimsókn hjá okkur í nokkra daga sumarið 1997. Þá var farið um sveitir og fjöll og sagðar sögur frá bernsku hans og uppvexti. Seinustu árin var afi orðinn svolít- ið latur eins og hann orðaði það. Honum var því mikils virði þegar einhver leit inn hjá honum og spjall- aði svolítið. Mánudagskvöld voru kvöldin okkar afa. Ég kíkti alltaf til hans áður en ég fór í fótbolta. Þessi tími var mér ekki síður mikils virði. Við spjölluðum um þjóðfélagsmálin, um langafabörnin sem hann var svo stoltur af, um bernskuna í Tungu og fleira skemmtilegt. Þetta voru góðar stundir. Við fjölskyldan minnumst afa með söknuði og vonum að honum líði vel á nýjum stað með ömmu Helgu sér við hlið. Ólafur Hans Grétarsson. Það voru mikil forréttindi fyrir ungan dreng að alast upp með afa sinn í næsta húsi heima á Blikastöð- um. Dagarnir byrjuðu oftast þannig að ég kom til afa og spurði: „Hvað eigum við að gera í dag?“ Nóg var af verkefnum, það þurfti að fylgjast með æðarkollunni í Blikastaðarnesi, dytta að heima á Gömlu, mála og halda öllu hreinu og snyrtilegu. Já, afi vildi hafa snyrtilegt í kringum sig, svo voru það uppgræðsluverk- efnin, það voru ófáar ferðirnar sem við fórum saman upp í Börð til að sinna landbótum. Heyskapurinn var nú samt það sem var skemmtilegast. Þegar pabbi og eldri bræður mínir voru að raka saman og binda bagg- ana komum við afi á Subaru með hrífuna á toppnum og tókum til við að veiða upp úr skurðunum þær heytuggur sem höfðu lent í þeim, pabba til lítillar ánægju að fá blaut- ar tuggur í þurran flekkinn. Svona var afi, það mátti ekkert fara til spillis og það skyldi ná ÖLLU heyinu inn í hús. Þegar kom að því að raka dreif þá var nú gaman, afi á hrífunni og ég á Ferguson með rakstrarvélina. Þenn- an mikla áhuga á dreifarrakstri ásamt slóðadrætti og völtun túna má útskýra þannig að afi taldi það ekk- ert tiltökumál þótt maður væri nú ekkert sérstaklega gamall en ef maður náði niður á kúplinguna og hafði stjórn á handolíugjöfinni fékk maður akstursleyfi. Þeir sem til þekkja vita það að ég þótti mjög stór eftir aldri og Ferguson 135 er eins og sniðinn fyrir smávaxna. Afi gleymdi því stundum að hann var með hrífuna á toppnum á Subaru, það mátti nefnilega finna för eftir hrífutinda bæði á vélarhlífinni og toppnum. Undir það síðasta, þá á ég við ökumannsferilinn, en honum lauk fyrir 14 árum, var hann farinn að stinga hrífunni inn í bílinn. Það er mér mjög minnisstætt þegar ég var 10 ára og við afi vorum að líta eftir æðarkollunni fram á Blikastaðanesi, sagði afi: „Heyrðu frændi, vilt þú ekki keyra heim?“ Það þurfti nú ekki að segja þetta tvisvar enda ég „hokinn“ af reynslu við akstur dráttarvéla. Við afi höfð- um þetta svona fyrir okkur til að byrja með, sögðum bara ef amma spurði að afi hefði keyrt, það þurfti enginn að vita um sætaskipan í Sub- aru. Að lokum vil ég þakka þér, afi, fyrir alla þolinmæðina sem þú sýnd- ir mér og öll verkefnin sem þú hafðir fyrir mig, þú gafst þér alltaf nægan tíma til útskýringa. Lífsgildin sem þú lagðir mér til hafa nýst mér vel í lífinu og munu áfram vera mér gott veganesti. Hvíldu í friði. Magnús Þór Magnússon. Ég vil með nokkrum orðum minn- ast afa míns og nafna Sigsteins Páls- sonar. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera elsta barnabarn og nafni Sigsteins frá Blikastöðum. Þegar ég var að alast upp var enn rekið stórbýli á Blikastöðum með um 100 gripi í fjósi. Afi var því sann- arlega stórbóndi þó að hann vildi á efri árum ekki gera mikið úr því. Hann talaði alltaf um að það væri ekki síst ömmu Helgu að þakka hversu vel tókst til með búskapinn á Blikastöðum. Þegar við ræddum saman um búskapinn á Blikastöðum lauk hann alltaf samræðunum á því að segja að amma Helga hefði verið svo fjölhæf. „Það var sama á hverju hún snerti, það lék allt í höndunum á henni,“ sagði hann. Amma Helga lést árið 1999 þá 92 ára gömul. Það sama átti svo sannarlega við afa og lék allt í höndunum á honum. Það voru forréttindi að alast upp í sömu sveit og afi. Ég naut þess að vera með afa og læra til verka hjá honum. Á meðan við sinntum skepnunum eða ræktun á Blikastöðum spjölluð- um við um allt milli himins og jarð- ar. Afi kenndi mér vinnusemi og mörg þau góðu gildi sem reynst hafa mér vel í lífinu. Það eru forréttindi að hafa átt afa sem var fæddur árið 1905 sem samferðamann í öll þessi ár. Þær voru ófáar stundirnar á síð- ust árum sem við ræddum um mál- efni samtímans, tækni, pólitík og auðvitað hlutabréfamarkaðinn sem hann fylgdist náið með. Allt fram á síðasta dag hélt hann tiltölulega góðri heilsu þrátt fyrir háan aldur og ótrúlegt hversu vel hann mundi nöfn, ártöl og atburði, líkt og þeir hefðu gerst í gær. Dætrum mínum fjórum sem eru 12, 10, 6 og 3 ára þótti alltaf jafn gaman að fara með í heimsókn til afa gamla Sigsteins eins og þær kölluðu hann. Að eiga afa sem var jafn gamall og fyrsti bílinn á Ísland var ansi merkilegt í þeirra augum. Þær hlustuðu dolfallnar á sögur frá upp- vaxtarárum hans í Tungu í Fá- skrúðsfirði. En þar ólst hann upp með þrettán systkinum en tólf náðu fullorðinsaldri. Fyrir nokkrum mán- uðum spurði yngsta dóttir mín afa Sigstein hvernig dót hann hefði leik- ið sér með. Dætur mínar hlustuðu síðan með athygli á langafa sinn út- skýra hvernig kindabein hefðu verið eina dótið þar sem kjálkabein tákn- uðu kýr, leggir voru hestar og horn voru kindur. Þeim þótti þó merki- legast að afi hefði fyrir 100 árum líka leikið sér með bolta í leiknum „yfir“ alveg eins og þær gera í dag. Ég kveð í dag góða fyrirmynd, vin og afa. Sigsteinn Páll Grétarsson. Okkur þótti alltaf vænt um að heimsækja afa gamla Sigstein, eins og við systurnar fjórar kölluðum alltaf langafa okkar. Hann bauð okkur alltaf upp á sælgæti þegar við komum í heimsókn. Oft bauð hann okkur niður í íþróttasalinn á Hlaðhömrum, en hann bjó í íbúð á Hlaðhömrum í Mosfellsbæ þangað til í fyrra. Hann lék við okkur í boltaleik og sýndi okkur hvernig á að hanga í riml- unum. Oftast töluðum við um það sem við höfðum gert síðan við hitt- um hann síðast. Hann spurði okkur um skólann og tómstundirnar. Hon- um þótti gaman að fylgjast með öllu og öllum. Okkur þótti gaman að heyra hann segja frá því þegar hann var lítill. Það hefur margt breyst mikið síðan þá, enda um 100 ár liðin. Við munum sakna heimsóknanna til afa gamla Sigsteins, en erum þakklátar fyrir allar ljúfu samverustundirnar með honum. Sara Líf Sigsteinsdóttir, Kristín Sif Sigsteinsdóttir. Í örfáum orðum ætla ég að minn- ast hans Sigsteins, afa míns, hér. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að hlaupa á milli húsa á Blikastöðum, mínum heimaslóðum, og yfirleitt varð fyrir valinu hús ömmu og afa. Amma var yfirleitt að stússast eitt- hvað í eldhúsinu og afi annaðhvort að leggja sig eftir matinn eða inni á kontór. Og það er sko herbergi sem er mér minnisstætt. Að vera kall- aður inn á kontór gat nefnilega þýtt tvennt. Annaðhvort fékk maður ör- lítinn aur í vasann eða, og það sem mér þótti öllu verra, þurfti maður að fara með margföldunartöfluna. Það var honum afa mínum hjartans mál að okkur krökkunum gengi vel í skóla. Eftir hver einustu próf bað hann um að fá að sjá einkunna- spjaldið og það kom fyrir að maður var ekki alveg tilbúinn til þess, en það gerðist sem betur fer sjaldan. Eftir að hún mamma fór að vinna var ég hjá ömmu og afa fram til há- degis en þá hófst minn skóladagur. Afi keyrði mig upp í rútuskýli og eins og kunnugir vita var það um kílómetri í þá daga. Afi keyrði svo sem ekkert óskaplega hratt þessa leið og sá til þess að öll heimadæmin væru rétt og stærðfræðin upp á 10. Þann góða hæfileika að baka pönnukökur fékk ég ekki í vöggu- gjöf. Og það er nefnilega þannig að þegar ég og sambýlismaðurinn minn, Bjarki, hófum okkar búskap buðum við afa í kaffi. Og nú voru góð ráð dýr. Hvað ætti að hafa með kaffinu? Allir sem þekktu afa vita að honum fundust pönnukökur mjög svo góðar, en þar sem ég get alls ekki bakað þær ákvað Bjarki að spreyta sig í því. Og viti menn. Afi fékk góðar pönnukökur og Bjarki var lofaður í bak og fyrir. Þarna voru tvær flugur slegnar í einu höggi. Afi minn, núna ertu loksins kom- inn til hennar ömmu Helgu eins og þú hefur þráð svo lengi. Ég bið að heilsa. Helga Kristín Magnúsdóttir. Sigsteinn frændi hefur kvatt, nærri 105 ára. Hann var síðastur í 12 systkina hópi 6 systra og 6 bræðra sem ólust upp í Tungu. Það var samheldinn hópur og fengum við bróðurbörn þeirra að njóta þess að eiga svo frábæran frændgarð. Afi og amma – Páll og Elínborg fluttu að Tungu árið 1898 ofan úr Skriðdal. Þá var pabbi okkar tveggja ára. Hann gerðist síðar bóndi í Tungu. Afi og amma voru þar lengst af og nutum við þess systkinin að alast upp undir áhrifum þeirra og leið- sögn. En auk þess höfðum við okkar besta frænda Sigstein, hjá okkur. Hann fór ekki alfarinn að heiman fyrr en við vorum flest orðin nokk- urra ára. Hann var nærri því að vera okkar annar pabbi, umhyggjusamur og sífellt að hjálpa. Sunnudags- morgnar uppi á kvisti, þegar hann spilaði fyrir okkur á „grammófón- inn“ gleymast ekki. Hjálpsemi þessa stóra frændgarðs var látin í té af hinum systkinum pabba. Þegar við fórum að heiman í skóla voru heimili föðursystra tilbúin að bæta okkur við fjölskylduna og hlynna að bróð- urbörnunum. Þá var sjálfsagt mál að skreppa í Blikastaði hvenær sem færi gafst og vera þar í jóla- og páskafríum. Frændi var alltaf sá sami og Helga konan hans yndisleg, hlý og skemmtileg. Það var líka ánægjulegt að geta heimsótt þau að Hlaðhömrum, þar sem þau bjuggu í góðri íbúð meðan þau gátu notið þess. Síðustu árin hafa heimsóknir til frænda verið á dagskrá, þegar farið er suður, hann var alltaf indæll að hitta. Hann var skýr í hugsun til hinstu stundar og minni hans frá- bært. Hann fylgdist einnig vel með þeim málefnum sem efst voru á baugi hverju sinni. Við þökkum elskulegum frænda okkar allt frá fyrstu stundum með okkur heima í Tungu til lokadags. Börnum hans og fjölskyldum þeirra vottum við samúð og óskum þeim alls góðs. Guð blessi minningu Sig- steins, okkar góða frænda. Ragnhildur, Elínborg og Friðmar. Fallinn er frá Sigsteinn Pálsson, fyrrum bóndi á Blikastöðum í Mos- fellsbæ og hreppstjóri, 104 ára að aldri. Sigsteinn var atkvæðamikill í mosfellsku samfélagi alla tíð og er með honum horfinn á brott merkur Mosfellingur. Sigsteinn fæddist á bænum Tungu á Fáskrúðsfirði 16. febrúar 1905, foreldrar hans voru Páll Þor- steinsson bóndi og hreppstjóri þar og Elínborg Stefánsdóttir. Sigsteinn flutti í Mosfellssveit árið 1936 er hann réð sig sem ráðsmann að Suð- ur-Reykjum þar sem hann starfaði í fjögur ár. Árið 1939 kvæntist hann Helgu Magnúsdóttur frá Blikastöðum og hófu þau búskap á Blikastöðum árið 1942. Jörðin Blikastaðir bar vitni stórhug og myndarskap. Sigsteinn og Helga tóku við jörðinni af föður Helgu og héldu áfram uppbyggingu. Það gerðu þau svo eftir var tekið og nutu þau virðingar innan sveitar sem utan fyrir myndarskap og dugnað við búreksturinn. Til marks um það má nefna að þegar varafor- seti Bandaríkjanna, Lyndon B. Johnson og eiginkona hans Lady Bird, komu í opinbera heimsókn til Íslands árið 1963, óskaði Lady Bird eftir að fá að sækja heim íslenskan bóndabæ. Var leitað til þeirra hjóna, Sigsteinn Pálsson HINSTA KVEÐJA Elsku langafi, okkur finnst leiðinlegt að við sjáum þig ekki aftur. Þú varst alltaf svo góður. Það var alltaf gaman að heim- sækja þig og heyra sögur frá því í gamla daga. Sonja Lind, 6 ára, og Eva Sóley, 3 ára. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIGERÐUR ODDSDÓTTIR frá Hróarslæk, lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu sunnudaginn 31. janúar. Útförin fer fram frá Keldnakirkju laugardaginn 13. febrúar kl. 11.30. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á minningarsjóð dvalarheimilisins Lundar á Hellu eða líknarfélög. Helgi Skúlason, Fríða Proppé, Guðmundur Skúlason, Erna Sigurðardóttir, Ragnheiður Skúladóttir, Þröstur Jónsson, Sólveig Jóna Skúladóttir, Bjarni Sveinsson, Þóroddur Skúlason, Fanney Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.