Morgunblaðið - 18.02.2010, Page 16
16 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010
Bónus
Gildir 18.-21. febrúar verð nú áður mælie. verð
Frosinn heill kjúklingur ............... 498 598 498 kr. kg
GV ferskar grísakótilettur ............ 898 998 898 kr. kg
NV ferskt nautahakk ................... 898 998 898 kr. kg
Frosin lambalæri ....................... 1.018 1.198 1.018 kr. kg
Frosin ýsuflök m/ roði og beini .... 593 698 593 kr. kg
ÍF ungnautahamborgarar,
10x100 g..................................
1.298 1.398 1.298 kr. pk.
Myllu heimilisbrauð, 770 g ......... 198 279 257 kr. kg
Heinz tómatsósa, 2x567 g.......... 198 396 174 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 18.-20. febrúar verð nú áður mælie. verð
Svínalundir (kjötborð) ................ 1.498 2.198 1.498 kr. kg
Nautafile (kjötborð) ................... 2.498 2.998 2.498 kr. kg
Hamborgarar, 2 stk., m/brauði ... 298 398 149 kr. stk.
FK kjúklingur 1/1 ferskur............ 599 749 599 kr. kg
Ísfugl kalkúnasn. lausfr., 800 g ... 996 1.383 996 kr. pk.
Ísfugl kalkúnaborg. lausfr., 800 g 996 1.383 996 kr. pk.
Ísfugl kalk.nuggets lausfr., 800 g 996 1.383 996 kr. pk.
Ísfugl kalkúnaboll. lausfr., 800 g . 996 1.383 996 kr. pk.
Hagkaup
Gildir 18.-21. febrúar verð nú áður mælie. verð
Jóa Fel. fyllt læri ........................ 1.949 2.598 1.949 kr. kg
Nautaat, file .............................. 2.099 3.498 2.099 kr. kg
Íslandsnaut, ribeye .................... 2.449 3.498 2.449 kr. kg
Caj P’s lambalundir lt. ................ 3.415 4.878 3.415 kr. kg
Holta kjúklingabringur ................ 1.820 2.595 1.820 kr. kg
Holta kjúklingabollur .................. 903 1.389 903 kr. kg
Hámark próteindrykkur ............... 189 209 189 kr. stk.
Gróf rúnnstykki, 4 stk. ................ 199 299 199 kr. pk.
Kostur
Gildir 18.-22. febrúar verð nú áður mælie. verð
Kostur kryddað lambalæri .......... 1.429 1.905 1.429 kr. kg
Frón freistingar, 2 teg., 150 g ...... 99 159 660 kr. kg
Aro hreinn epla/appelsínusafi .... 105 185 105 kr. ltr
Merlo fiskborgarar með osti ........ 659 823 659 kr. kg
Evergreen maísblanda, frosin ...... 198 299 198 kr. kg
Aro steiktur laukur, 500 g ........... 258 349 516 kr. kg
Krónan
Gildir 18.-21. febrúar verð nú áður mælie. verð
Lambafile með fiturönd .............. 2.998 3.498 2.998 kr. kg
Grísagúllas................................ 998 1.598 998 kr. kg
Grísasnitsel ............................... 998 1.698 998 kr. kg
Grísakótilettur............................ 898 1.498 898 kr. kg
Grísakótilettur kryddaðar ............ 898 1.598 898 kr. kg
Grísahnakki úrb. sneiðar............. 998 1.698 998 kr. kg
Grísahnakkasneiðar úrb. krydd.... 998 1.798 998 kr. kg
Grísaskankar............................. 249 298 249 kr. kg
Grísalundir erlendar, frosnar ....... 1.498 2.598 1.498 kr. kg
Nóatún
Gildir 18.-21. febrúar verð nú áður mælie. verð
Lamba-ribeye ............................ 3.198 3.998 3.198 kr. kg
Lamba-ribeye kryddað................ 3.198 3.998 3.198 kr. kg
Lambalærissneiðar .................... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Lambaframhryggjarsneiðar ......... 1.598 1.998 1.598 kr. stk.
Ungnautafile ............................. 2.898 3.898 2.898 kr. kg
Nóatúns hakkbollur í súrsætri
sósu .........................................
998 1.498 998 kr. kg
Laxaflök beinhreinsuð ................ 1.498 1.798 1.498 kr. kg
Ísl. m. kjúklingabringur ............... 1.798 2.298 1.798 kr. kg
Emmess ísblóm m/daim ............ 339 483 339 kr. pk.
Þín verslun
Gildir 18.-24. febrúar verð nú áður mælie. verð
Úrb. svínahnakki úr kjötborði ...... 898 1.698 898 kr. kg
Svínakótelettur úr kjötborði......... 898 1.598 898 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.398 1.998 1.398 kr. kg
Ísfugls kjúkl.bringur úrbeinaðar ... 2.094 2.992 2.094 kr. kg
Maryland kexkökur, 150 g .......... 110 135 734 kr. kg
Gevalia kaffi rauður, 500 g ......... 645 789 1.290 kr. kg
Ota hafragr., epli/kanill, 330 g ... 525 645 1.591 kr. kg
Lu Bastogne kexkökur, 260 g...... 319 398 1.227 kr. kg
Haust hafrakex, 225 g................ 255 285 1.134 kr. kg
helgartilboð
Kjöt víða á betra verði
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þetta var skemmtilegt í allastaði en auðvitað þurfti aðhafa fyrir þessu, til þessvar nú leikurinn gerður,“
segja þau Bjarney Margrét Jóns-
dóttir og Gísli Örn Arnarson, sem
sigruðu ellefu fjöll í fyrra þegar þau
tóku þátt í fjögurra mánaða æf-
ingaáætlun sem endaði á toppi
Hvannadalshnúks, hæsta fjalli Ís-
lands. „Þetta var samstarfsverkefni
Íslenskra fjallaleiðsögumanna og
66°N sem kallaðist Toppaðu. Það
var mjög stór hópur sem fór af stað
í byrjun febrúar og gekk saman
nokkrum sinnum í mánuði undir
dyggri stjórn fjallaleiðsögumanna.
Þess á milli fengum við fræðslu um
ýmislegt sem viðkemur göngum á
fjöllum. Vissulega gengum við mest
upp á við og tókumst á við mörg
fjöll til að þjálfa okkur fyrir átökin
við Hvannadalshnúk í júní, en við
fórum líka í aðrar göngur, til dæmis
kraftgöngur um Heiðmörkina og
hellaferð í Þrengslin,“ segja þau
Bjarney og Gísli sem þekktust ekki
fyrir átaksverkefnið en urðu ágætis
göngufélagar.
Langaði að reyna meira á sig
Bjarney segir að það hafi verið
mikil áskorun fyrir hana að taka
þátt og frábært að kynnast mörgu
af því góða fólki sem tilheyrði hópn-
um og var á öllum aldri. „Ég skellti
mér einsömul í þetta vegna þess að
ég var hætt að nenna að bíða eftir
því að einhver nennti að fara með
mér. Ég átti líka eftir að klára
Hvannadalshnúkinn, en þremur ár-
um áður komst ég langleiðina upp á
hann. Ég hafði gengið mikið á
sumrin en mig langaði til að ganga
á fjöll á vetrum. Ég var komin í
fantagott gönguform eftir að þessu
verkefni lauk og gat því farið létti-
lega upp á nokkur fleiri fjöll það
sem eftir lifði sumars.“
Gísli hefur ferðast mikið um há-
lendið í jeppaferðum en hann lang-
aði að fara fótgangandi og reyna
meira á sig. „Þegar maður situr
mikið í vinnunni og sér svo töluna á
vigtinni síga hægt og rólega upp á
við, þá er kominn tími til að gera
eitthvað. Ég fór í þetta átak með
Óðni frænda mínum, en mér leist
satt að segja ekkert á það í upphafi
að fara að stunda fjallgöngur um
hávetur, því mér hafði ekki gengið
neitt sérstaklega vel að ganga í snjó
fram að því. En kosturinn við að
ganga í snjó með svona stórum hópi
er sá að þeir fyrstu og vönustu
troða leiðina og búa í raun til tröpp-
ur fyrir okkur sem á eftir komum.“
Baslið var skemmtilegast
Þau segja það hafa verið frábært
að finna hversu fljótt þau komust í
gott gönguform og færðust frá því
að hafa verið fyrir miðju eða aft-
arlega í hópnum í það að vera með
þeim fremstu. Enda voru göng-
urnar ekkert droll heldur kraft-
göngur sem tóku vel í. „Gangan á
Hvannadalshnúk var að mörgu leyti
auðveldari en margt af því sem við
tókumst á við í æfingaferðunum á
undan. Eftirminnilegustu ferðirnar
eru þær sem við lentum í einhverju
basli í. Þegar við fórum á Húsfellið,
var það eitt drullusvað og við lent-
um í svartaþoku svo sá vart handa
skil. Þetta var heilmikið ævintýr og
erfitt. Við fórum líka niður af fjall-
inu annars staðar en til stóð og
þurftum að klöngrast niður þröngt
og ísilagt haft í svartamyrkri. Það
tók tímann sinn að koma öllum þar í
gegn og okkur kólnaði fljótt við að
standa og bíða. Við lentum líka í
óvæntu og snælduvitlausu veðri
þegar við gengum á Skarðsheiðina,
en við vorum vel búin og þá er gam-
an að vera úti í kolvitlausu veðri.“
Heitt hraun á Heklunni
Hekluferðin stendur upp úr hjá
þeim báðum en þá var veðrið ein-
staklega fallegt. „Það var mögnuð
upplifun að leggja lófann á volgt
hraunið efst uppi á þessari drottn-
ingu og finna ylinn sem í henni býr.
Gangan á Hekluna var brött og tók
vel í, en einstaklega skemmtileg,
kannski vegna þess að þegar maður
er kominn í gott gönguform þá er
gaman að takast á við eitthvað erf-
itt.“
Gísli missti aðra höndina við öxl
þegar hann var ungur sjómaður og
lenti í spili. Hann er með gervi-
handlegg sem hann getur þó ekki
beitt. En hann segir það ekkert
hafa hamlað sér að ráði í fjallgöng-
unum. „Ég var alveg ófeiminn við
að láta fólk styðja mig ef þess
þurfti, til dæmis þegar ég datt í
hellinum og þurfti hjálp til að kom-
ast á fætur. Ofan í hellinum var ís
og mjög erfitt að fóta sig en þessi
hellaferð var mjög skemmtileg og
þar lærðum við að ganga á brodd-
um,“ segir Gísli sem á ekki í neinum
vandræðum með að bera bakpoka
þó hann sé einhentur. „Ég sækist
reyndar eftir því að ganga á fjöll
með tíu kílóa bakpoka ef ég er
slæmur í bakinu, því það gerir mér
gott. En stundum þarf ég hjálp við
að smella honum á mig og hún
Bjarney var yfirleitt fús til að
hjálpa mér við það.“
Tvær dagsetningar voru í boði
fyrir lokagönguna á Hvannadals-
hnúk en þau Gísli og Bjarney tókust
ekki á við hann sama daginn. Dag-
inn sem Bjarney fór var veðrið ein-
staklega gott og jökullinn skartaði
sínu fegursta. Aftur á móti var
skyggnið lélegt þegar Gísli fór upp
viku seinna. „Það var þoka nánast
alla leiðina og lítið að sjá, en þegar
á toppinn var komið reif hann af sér
og útsýnið var stórkostlegt.“
Þau eru sammála um að ekki sé
laust við að þau hafi fyllst ákveðinni
tómleikatilfinningu þegar fjöllin öll
voru sigruð. En erfiðið efldi þau til
að takast á við fleiri fjöll og Bjarney
er núna í hópi Fjallafólks Íslenskra
fjallaleiðsögumanna sem gengur
saman einu sinni í viku.
,,Sjáið tindinn, þarna fór ég!“
Sigur Gísli ásamt göngufélögum sínum í línu á leið niður af Hvannadalshnúk, toppurinn í baksýn.
Garpar Bjarney á Eyjafjallajökli, Vilborg Rafnsdóttir kemur á hæla henni.
Sá sem svo mælir í ljóði
Tómasar Guðmunds-
sonar, Fjallgangan, er
ekki einn um að vilja
sigra fjöll. Veturinn er
góður tími til að koma
sér í fjallgönguform.
Eftirminnilegast var þegar
við lentum í basli. Hús-
fellið var eitt drullusvað
og við lentum í svartaþoku
svo sá vart handa skil.
Hengilinn
Húsfell
Skarðsheiði
Vífilsfell
Eyjafjallajökul
Esjuna (Þverfellshorn)
Keili
Heklu
Sveifluháls
Esjuna (Dýjadalshnúk)
Móskarðahnúka
Hvannadalshnúk
Gengið var á
www.fjallaleidsogumenn.is