Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010 Sudoku Frumstig 4 9 4 7 8 3 1 7 2 8 3 4 6 2 1 9 2 9 9 7 3 2 1 6 2 4 8 7 7 6 7 9 4 5 1 9 3 1 7 2 6 3 2 4 7 5 1 2 6 1 4 7 9 6 1 2 8 4 8 6 7 3 2 4 1 4 6 4 2 6 7 3 8 2 1 9 3 6 1 5 6 4 1 2 8 7 9 3 2 1 9 3 6 7 4 5 8 3 7 8 9 4 5 6 2 1 8 3 6 4 1 2 5 7 9 9 4 2 7 5 3 8 1 6 7 5 1 6 8 9 3 4 2 6 2 7 8 9 4 1 3 5 4 8 5 2 3 1 9 6 7 1 9 3 5 7 6 2 8 4 5 4 9 1 6 8 3 2 7 7 1 8 3 2 5 6 9 4 6 2 3 4 7 9 8 5 1 2 9 5 8 4 3 7 1 6 4 3 6 7 9 1 5 8 2 1 8 7 6 5 2 9 4 3 8 6 2 5 3 4 1 7 9 9 7 1 2 8 6 4 3 5 3 5 4 9 1 7 2 6 8 7 9 1 4 2 5 6 3 8 3 8 4 6 1 9 2 5 7 2 5 6 8 7 3 4 9 1 5 6 3 2 4 1 7 8 9 8 4 9 5 3 7 1 2 6 1 2 7 9 6 8 3 4 5 6 3 8 1 9 4 5 7 2 4 1 5 7 8 2 9 6 3 9 7 2 3 5 6 8 1 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 18. febrúar, 49. dagur ársins 2010 Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I. Kor. 8, 3.) Ekki er langt síðan hitinn íReykjavík nálgaðist tveggja stafa tölu á meðan fólk barðist við fannfergi og fimbulkulda beggja vegna Atlantsála. Nú hefur hins veg- ar kólnað á suðvesturhorninu, hita- stigið komið niður fyrir frostmark, himinn heiður og svifryk á lofti. Ólík- legt er hins vegar að búast megi við miklum vetrarhörkum úr þessu enda sól farin að hækka mikið á lofti og farið að grýja af degi um eða upp úr níu að morgni. Víða gægjast blóm- laukar upp úr moldinni, ótímabærir vorboðar, sem þurfa meira en örlítið frost til að hörfa undan kuldabola. x x x Þótt veður séu mild um þessarmundir er ekki þar með sagt að hægt sé að bóka veðurleysi á Íslandi. Fyrir því fengu ferðalangar á Lang- jökli að finna um helgina. Víkverji er ekki mikil fjallageit og myndi eiga í vandræðum með að bera kennsl á vélsleða innan um önnur undratæki samtímans. Segja má að umhverf- isverndarstefna Víkverja sé í því fólgin að hann heldur sig heima hjá sér í stað þess að þvælast upp um fjöll og firnindi og traðka á móður náttúru í tíma og ótíma. x x x Hann botnar hins vegar ekki í þvíað þeir, sem efna til fjallaferða á vélsleðum, skuli ekki gæta þess að einhver úr þeirra röðum reki lestina þegar óvant fólk er með í för, ekki síst þegar fárviðri er í aðsigi. Auk þess var Víkverji hvumsa að lesa að ferðalöngum hefði ekki verið fenginn hlýr fatnaður áður en haldið var á fjöll. x x x Víkverji er slík kuldaskræfa aðhann fer ekki milli húsa þegar kalt er í veðri nema dúðaður og er reyndar þvílíkt stöngulmenni að það að hin genetíska forritun að holda- fari hans skuli hafa lifað af kynslóð fram af kynslóð á hinu harðbýla Ís- landi ætti beinlínis að teljast afsanna kenningu Darwins um framgang tegundanna og að aðeins hinir hæf- ustu lifi af í óbilgjarnri náttúrunni. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 allhvassan vind, 8 falleg, 9 róleg, 10 elska, 11 sorp, 13 pen- ingar, 15 tími, 18 slagi, 21 eldstæði, 22 nirfill, 23 þjálfun, 24 skrýtlur. Lóðrétt | 2 glefsa af grasi, 3 flatarmálsein- ingin, 4 þekkja, 5 talar illa um, 6 krafts, 7 guð, 12 gyðja, 14 dveljast, 15 bráðum, 16 alda, 17 ílát- ið, 18 borða, 19 húsdýra, 20 kvennafn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 þerna, 4 klasi, 7 rómað, 8 ósómi, 9 afl, 11 aðan, 13 ýsan, 14 áfall, 15 garð, 17 anga, 20 æki, 22 ætlar, 23 lyfta, 24 akarn, 25 trana. Lóðrétt: 1 þerna, 2 remma, 3 agða, 4 kjól, 5 atóms, 6 ið- inn, 10 flakk, 12 náð, 13 ýla, 15 glæta, 16 rolla, 18 nefna, 19 apana, 20 æran, 21 illt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 c6 2. d4 d5 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6 5. b3 Be7 6. Bb2 0-0 7. Bd3 Rbd7 8. Rbd2 b6 9. 0-0 Bb7 10. De2 Hc8 11. Hac1 He8 12. Re5 Rxe5 13. dxe5 dxc4 14. Rxc4 Rd5 15. Hfd1 Hc7 16. Bb1 Hd7 17. Dd3 g6 18. e4 b5 19. Rd6 Rf4 20. De3 Bxd6 21. Hxd6 Hxd6 22. exd6 Dg5 23. g3 e5 24. Kf1 Re6 25. Dxg5 Rxg5 26. f4 exf4 Staðan kom upp á Kornax- mótinu, Skákþingi Reykjavíkur, sem lauk fyrir skömmu í húsakynn- um Taflfélags Reykjavíkur. Sig- urvegari mótsins, Hjörvar Steinn Grétarsson (2.358) hafði hvítt gegn Bjarna Jens Kristinssyni (2.033). 27. Bf6! Re6 28. d7 Ha8 29. gxf4 b4 30. Kf2 c5 31. f5 og svartur gafst upp enda staða hans ófögur á að líta. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Þrjár eyður. Norður ♠G974 ♥– ♦ÁKD982 ♣G63 Vestur Austur ♠KD103 ♠Á8652 ♥G3 ♥ÁKD754 ♦G1054 ♦76 ♣Á75 ♣– Suður ♠– ♥109862 ♦3 ♣KD109842 Suður spilar 6♣. Þegar þrjár eyður koma saman í einni gjöf er erfitt að finna hina einu réttu sagnröð. Margar eru þó rök- réttar. Spilið er frá tvímenningi Bridshátíðar. Á einu borðinu voru Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson í N-S gegn Norðmönnunum Per Austberg og Erik Sælensminde. Allir á hættu. Per vakti í austur á 1♥, Jón stökk í 4♣, Erik doblaði neikvætt, Þorlákur sagði 4♦ og Per 4♠. Passað til Þorláks, sem meldaði 5♣. Per sagði 5♥ og Erik breytti í 5♠. Þorlákur sá nú fyrir sér spaðaeyðu hjá makker og reyndi 6♣. Vestur doblaði og kom út með ♠K. Jón las spilið vel: tók strax ♦Á-K-D og víxl- trompaði síðan upp í 12 slagi: 1540 og 99% skor. Aðeins ♣Á og meira lauf hnekkir slemmunni, en margir sagn- hafar fóru niður með öðru útspili – þeir tóku ekki hátíglana strax. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir sem þig dreymir um. Sýndu öldruðum nærgætni. Einhver biður þig um greiða. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú átt ekki að hika við að láta vinnu- félaga þína standa við sín orð. Vinur er í vanda, réttu honum hjálparhönd. Þú færð það margfalt launað. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er vandi að velja og því meiri þeim mun fleira sem í boði er. Segðu hvað þér finnst en ekki reyna að þröngva skoð- unum þínum upp á aðra. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Láttu ekki hugfallast þótt á móti blási. Hvíldu þig ef þú ert þreytt/ur, þótt þú sért önnum kafin/n. Farðu að huga að sumarfríinu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú finnur til glaðværðar og bjartsýni með hækkandi sól. Allir þurfa að byrja smátt en þú þarft að gera samninga sem þú getur staðið við. Eyddu ekki um efni fram, það kemur í bakið á þér. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd í tengslum við ferðalög eða skólamál í dag. Láttu það eftir þér að dreyma um gott frí. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er alltaf best að horfast í augu við raunveruleikann og haga orðum og gerð- um í samræmi við hann. Einhver kemur með skemmtilega tillögu varðandi ætt- armót. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Valdamiklir einstaklingar munu hugsanlega setja sig upp á móti fyr- irætlunum þínum. Ekki trúa öllu sem þér er sagt varðandi heilsu þína. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú átt ekki að hika við að segja þína meiningu, hver sem í hlut á. Reikn- aðu með að þurfa að blanda þér í deilur. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Alveg upp úr þurru færðu óvenjulega hugmynd um hvernig þú getir skemmt þér og öðrum. Eitthvað sem þér fannst þá frumlegt er það ekki lengur. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú veist nákvæmlega hvernig líf þitt á að vera út mánuðinn. Með lagni og léttri lund hefst þetta allt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Tunglið beinir augum þínum að heimili, fjölskyldu og málefnum þeim tengdum. Þolinmæði þrautir vinnur allar. Þú hefur dýran smekk, haltu fast um budduna. Stjörnuspá 18. febrúar 1910 Tuttugu manns fórust er snjó- flóð féll úr Búðarhyrnu á byggðina í Hnífsdal, margir slösuðust og eignatjón varð mikið. „Eldsnöggt eins og byssuskot dundi það yfir, eng- inn fékk minnsta svigrúm til þess að forða sér,“ sagði í vikublaðinu Vestra. 18. febrúar 1959 Vitaskipið Hermóður fórst í stormi og stórsjó undan Höfn- um á Reykjanesi með allri áhöfn, tólf manns. Skipið var á leið frá Vestmannaeyjum þar sem það hafði verið við störf á vegum Landhelgisgæslunnar. 18. febrúar 2000 Kvikmyndahúsin í Reykjavík fóru að sýna kl. 16, 18, 20, 22 og 24 í staðinn fyrir að hefja sýningar klukkustund fyrr, eins og tíðkast hafði um ára- bil. 18. febrúar 2001 Einar Karl Hjartarson setti Ís- landsmet í hástökki innanhúss á móti í Laugardalshöll, stökk 2,28 metra. Metið stendur enn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Reynir Þór Hafdal Sigurjónsson, Gunnar Freyr Ragnarsson og Adríana Margrét Jónsdóttir söfn- uðu flöskum og fengu fyrir þær 4.297 krónur sem þau færðu Rauða krossi Íslands til styrktar fólki á Haítí. Söfnun „Ég er alltaf ánægð þegar ég fæ börnin og barna- börnin til mín,“ segir Helga Sigurgeirsdóttir hjúkr- unarfræðingur, spurð hvernig sjötugsafmælið legg- ist í hana. Helga segir afmælisdagana hafa verið ágæta í gegnum tíðina. Hún muni sérstaklega eftir tíu ára afmælisdeginum sínum sem lenti á bollu- degi. Þá hafi allir fengið eina bollu en hún hafi feng- ið tvær því að hún átti afmæli! Að þessu sinni ætlar hún að halda upp á daginn með því að bjóða fjöl- skyldunni heim til sín í mat. Á laugardaginn verður haldið kaffiboð í Oddfellowsalnum á Ísafirði milli klukkan 15 og 19 og eru allir velkomnir. Helga byrjaði fimmtán ára að vinna á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísa- firði. Hún lærði svo hjúkrun, fór aftur að vinna á sjúkrahúsinu eftir það og vann þar í 55 ár. Helga segir að sér hafi fundist bæði gott og gaman að vinna á sjúkrahúsinu og þar hafi hún alltaf unnið með afskaplega góðu fólki. Áhugamál Helgu eru margvísleg og má þar nefna golf, prjónaskap, félagsstarf Zonta og Félag sjálfstæðiskvenna á Ísafirði. Einnig hefur hún sungið mikið, ýmist með Sunnukórnum eða Sjúkra- húskórnum. Hún ætlar þó ekki að taka lagið í veislunni en vonar að ein- hver taki það fyrir sig. Helga Sigurgeirsdóttir er sjötug í dag Vonar að einhver taki lagið Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.