Morgunblaðið - 18.02.2010, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 18.02.2010, Qupperneq 43
Menning 43FÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010 LEONARDO DiCaprio segist skilja af hverju sumir leikarar verði hálfklikkaðir. Hann segir að það sé mikilvægt að halda sér niðri á jörðinni þegar frægðin og farsældin banki upp á því hvort tveggja geti horfið mjög snöggt. „Þótt þú hafir staðið þig vel einu sinni þýðir það ekki að þú verðir alltaf góður. Þess vegna hafa sumir bestu leikarar í heimi orðið smáklikk. Þeir skilja ekki hvað gerist þegar þeir hætta að fá alla þessa at- hygli. Maður verður að skilja að þegar maður er heitur er maður heitur en þegar maður er það ekki er maður það ekki,“ segir DiCaprio. Hinn 35 ára hjartaknúsari segir að vinir hans hjálpi honum að halda sér á jörðinni og leyfi honum ekki að haga sér eins og stjarna. Reuters Jarðbundinn Leo DiCaprio. Á jörðinni BENNI 8.990 A3 OUTLET · AUSTURHRAUNI 3 210 GAR-DABÆ · SÍMI 533 3811 ELvA 5.990 JÚLÍUS 6.990 CASALL 4.990 DÓRA 4.990 ASICS 14.990 Klassísk flíspeysa. Tveir vasar og rennilás sem hægt er að renna í báðar áttir. Tecno- pile® flísefni frá Pontetorto®. Frábær flís- peysa sem hentar við flest tækifæri. Fæst í rauðu og svörtu. Verð áður: 14.990 kr. Júlíus og Júlíana, herra- og dömubuxur. Hægt að nota bæði sem kvartbuxur og stuttbuxur. Teygjanlegt efni sem þornar hratt. Hentugar í gönguferðina. Verð áður: 12.990 kr. Heilrennd peysa fyrir stelpur og stráka. Tecnostretch® efni frá Pontetorto®. Flatlock saumar og YKK® rennilásar. Létt, þægileg og hlý flík. Verð áður: 10.990 kr. Léttar og þægilegar buxur fyrir stelpur og stráka úr Tecnostretch® efni frá Ponte- torto®. Rennilás á skálmum víkkar buxurnar út að neðan og þá passa þær fullkomlega yfir göngu- eða skíðaskó. Teygja í mitti. Henta vel sem innsta lag, utan yfir ullar- nærfatnað eða einar og sér. Verð áður: 6.990 kr. Asics Gel-Trail Attack. Frábærir hlaupa- skór með góðu gripi og stuðningi við ökkla og henta því sérstaklega vel utan venjulegra hlaupastíga. Skórnir henta að sjálfsögðu líka til götuhlaupa og hlaupurum með mismunandi hlaupalag. Verð áður: 21.990 kr. Klassískur og kvenlegur hlýrabolur fyrir leikfimina. Einstök gæði og ending. Fæst í svörtu og hvítu. Verð áður: 7.990 kr. GERÐU FRÁBÆR kAUP Á NÝJUM vÖRUM Á LÆkkuðu VERÐI 70% ALLT AÐ AFSLÁTTUR HLJÓMSVEITIN Bandið bak við eyrað er ofan úr Borgarfirði og hefur helgað sig Bítlaarfinum með góðum árangri. Sveitin er ekki ýkja gefin fyrir að koma fram, en lætur sig þó hafa það öðru hvoru og verður þannig á Rósenberg í kvöld. Aðal Bandsins bak við eyrað er að spila Bítlalög í sérstökum út- setningum Sigurðar Rúnars Jóns- sonar fiðlu- og bassaleikara, sem þjóðin þekkir sem Didda fiðlu, en aðrir í sveitinni með honum eru þau Ása Hlín Svavarsdóttir söng- kona, Gunnar Ringsted gítarleik- ari, Ólafur Flosason óbó- og klar- ínettuleikari og Zsuzsanna Budai píanóleikari. Sögumaður á tón- leikum sveitarinnar er Ingólfur Margeirsson rithöfundur og Bítla- fræðingur. Hljómsveitin er upprunnin hjá tónlistar- og leiklistarkennurum úr Borgarnesi og hélt sína fyrstu tónleika í maí á síðasta ári. Tón- leikarnir á Rósenberg í kvöld hefj- ast kl. 21. Bandið bak við eyrað Ólafur Flosason, Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi fiðla, Gunnar Ringsted, Ása Hlín Svav- arsdóttir, Zsuzsanna Budai og Ingólfur Margeirsson skipa Bandið bak við eyrað sem heldur tónleika í kvöld. Bítlalög í sérstök- um útsetningum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.