Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Minnum á prófkjör sjálfstæ›ismanna í Kópavogi, Hlí›asmára 19 í dag frá kl. 10.00-18.00. fia› er gott a› búa í Kópavogi! Gunnar by›ur í kaffi a› Dalvegi 6-8.´ www.gunnarbirgisson.is Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is BLIKUR kunna að vera á lofti hvað varðar þá þver- pólitísku samstöðu sem varað hefur um nokkurra daga skeið um viðræður við Breta og Hollendinga um Icesave. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins hafa fulltrúar stjórnarandstöðunnar, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, sem koma beint að borðinu með forystumönnum ríkisstjórnarinnar um sameigin- lega afstöðu í Icesave-málum, undirbúning við- ræðna og málatilbúnað, haft grunsemdir um það undanfarna daga, að Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra og Indriði H. Þorláksson, aðstoðar- maður hans, hafi átt samtöl við breska ráðamenn, án samráðs við þau og án þeirra vitneskju, um að leggja drög að annars konar samningum, en þeim sem viðræðunefndin, undir forystu bandaríska sér- fræðingsins Lee Buchheit, fór með þverpólitískt umboð til Lundúna til þess að kynna. Fyrr í vikunni munu grunsemdir í þessa veru hafa vaknað hjá stjórnarandstöðunni, eftir að upp- lýst var að fyrsti fundurinn í Lundúnum með Bret- um og Hollendingum hefði meira eða minna farið í að skýra fyrir Bretum og Hollendingum að hin nýja viðræðunefnd væri ekki komin til þess að semja um breytingar á þeim samningi sem gerður var í júní í fyrra. Bretar og Hollendingar hefðu verið harla þykkjuþungir og haldið því fram að þau drög sem væru til kynningar á fyrsta fundi væru afar rýr í roðinu miðað við það sem fjármálaráðherra Íslands hefði gefið í skyn að Íslendingar væru reiðubúnir til þess að semja um. Í þeim efnum mun hafa verið ýj- að að samtölum fjármálaráðherra við breska ráða- menn og aðstoðarmanns hans, Indriða, við aðra. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar munu hafa spurt fjármálaráðherra út í þessi samtöl við fulltrúa Breta og talið að svör hans hafi verið ófullnægjandi. Það munu hafa verið tímafrekar umræður á þess- um fyrsta fundi, áður en Buchheit tókst að gera Bretum og Hollendingum ljóst að Íslendingum væri full alvara, nefndin væri ekki komin til þess að endursemja um gamla samninginn. Honum hefði við svo búið verið ýtt út af borðinu, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins. Því þótti fulltrúum stjórnarandstöðunnar skjóta skökku við í gær, þegar fréttir bárust frá Reuters- fréttastofunni í þá veru, að Bretar og Hollendingar myndu gera Íslendingum nýtt tilboð í dag, laug- ardag, og í því fælist að Íslendingum yrði boðið upp á breytilega vexti í stað föstu vaxtanna sem samið var um í fyrra. Tilboðið lakara en Darling léði máls á Fulltrúar stjórnarandstöðu sem rætt var við í gær sögðu einfaldlega að þetta kæmi aldrei til greina. Bentu þeir á að væri þessi Reuters-frétt rétt, þá væri tilboðið til Íslendinga mun lakara en það sem Alistair Darling fjármálaráðherra Breta, hefði léð máls á fyrr í vikunni, þ.e. að lánið yrði vaxtalaust í einhvern tíma (ótilgreindan), eins og Financial Times greindi frá í vikunni. „Þetta er ekki til þess fallið að liðka til fyrir far- sælli niðurstöðu. Það verður aldrei samið á þessum nótum með aðkomu stjórnarandstöðunnar. Ég held að menn ættu bara að vera klárir í þjóðaratkvæða- greiðslu 6. mars nk,“ sagði einn viðmælandi Morg- unblaðsins í gærkvöldi. Vantreysta Steingrími  Innan stjórnarandstöðunnar ríkir vantraust í garð ríkisstjórnarinnar  Grunsemdir eru um að fjármálaráðherra sé í baktjaldamakki með Bretum » Reiknað er með svörum í dag » Ekki nóg að breyta vöxtum » Atkvæði greidd um Icesave BILUN kom upp í heitavatnsæð á gatnamótum Laugalækjar og Sundlaugavegar í Reykjavík um miðjan dag í gær. Þetta olli því að þrýstingur á heitu vatni um Laugarneshverfið í gær var lítill. Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur unnu að við- gerð allan daginn í gær og síðdegis var þess vænst að mál yrðu komin í lag fyrir kvöldið. Fregnir bárust um að heitt vatn hefði komið upp úr göturæsum og víst er að heldur meiri jarðhiti var í hverfinu en vani er til. Erfitt var að komast að biluninni, eins og sést á myndinni, og við- gerðin var langt frá því að vera fyrirhafnarlaus. LEIÐSLUR Í SUNDUR Í LAUGARDAL Morgunblaðið/Kristinn HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur um að framlengja beri gæslu- varðhald yfir manni sem var handtekinn í Leifsstöð í desember með 3.736 g af svonefndu 4-flúoróamfetam- íni er líkist mjög amfetamíni. Efnið er hins vegar ekki á skrá yfir ávana- og fíkniefni sem eru bönnuð hér. Hæstiréttur segir að rannsókn lögreglu sé lokið og almannahagsmunir krefjist þess ekki að hann sæti áfram gæsluvarðhaldi. Athygli vekur að þótt rannsóknastofa Háskóla Ís- lands segi að umrætt efni sé afleiða af amfetamíni og mjög líkt því er það ekki enn á skrá yfir ólögleg efni hérlendis. Flest ólögleg efni, sem nú er smyglað milli landa, eru framleidd á leynilegum efnafræðistofum og þar eru víða gerðar ýmsar tilraunir með ný af- brigði. Er um að ræða stöðugan eltingarleik lögreglu við afbrotamenn sem notfæra sér gloppur í lögum og reglum. Mjög misjafnt er hvaða efni eru skráð ólög- leg í Evrópulöndum, að sögn Gunnars Schram, yf- irlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurnesjum. „Þetta efni er á lista yfir ólögleg fíkniefni í a.m.k. tveimur Evrópuríkjum, held ég. En í t.d. Þýskalandi myndi það sennilega falla undir hefðbundna lyfjalög- gjöf vegna þess að þar er ekki neitt svigrúm, þar verður efnið að vera nákvæmlega tilgreint á listan- um, ekkert svigrúm fyrir afleiður eins og hér.“ kjon@mbl.is Hægt að nota smugur í fíkni- efnalöggjöfinni til að smygla? JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis- ráðherra segir ólíklegt að þjóð- aratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin verði frestað, jafnvel þótt skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði ekki komin út 6. mars þegar at- kvæðagreiðslan er fyrirhuguð. Jóhanna sagði óljóst hvenær skýrslan kæmi út. Í skýrslunni yrði fjallað um aðdraganda að stofnun Icesave-reikninganna, en engu að síður væri ólíklegt að atkvæða- greiðslunni yrði frestað fram yfir út- komu hennar. Hins vegar sagði Jóhanna að það hvernig viðræður við Breta og Hol- lendinga þróast á næstu dögum, gæti haft áhrif á þjóðaratkvæða- greiðsluna. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði að ástæða þess að samninganefnd Íslands kom heim í gær, vera að ekki hefðu verið taldar forsendur fyrir frekari fundum á næstu dögum. Aftur á móti hefðu Bretar og Hollendingar lýst yfir vilja til að halda viðræðum áfram. Búist er við að Bretar og Hollend- ingar bregðist við tillögum Íslands í dag. Steingrímur sagði málið í raun vera í biðstöðu, og að rétt væri að Bretar og Hollendingar hefðu frum- kvæði að næstu samskiptum, enda hefðu síðustu tillögur komið frá Ís- lendingum. „Það verður spennandi að heyra hvað þeir hafa fram að færa.“ hlynurorri@mbl.is Þjóðarat- kvæða- greiðslu ekki frestað Steingrímur J. Sigfússon Jóhanna Sigurðardóttir TOLLGÆSLAN á Keflavíkur- flugvelli stöðvaði í síðustu viku tæplega sjötugan Íslending sem reyndist vera með um eitt kíló af kókaíni í ferða- tösku sinni. Mað- urinn var stöðvaður við komuna frá Kaupmannahöfn. Málið er rannsakað af lögreglunni á Suðurnesjum en embættið varðist frekari fregna af málinu í gær. Tekinn með kíló af kókaíni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.