Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 VaraforsetiEvrópu-þingsins, Diana Wallis, hélt fyrirlestur í Há- skóla Íslands í fyrradag. Þar kom fram sú skoðun Wallis að á Evrópuþinginu fengju fulltrúar Íslands dýr- mætt tækifæri til að móta framtíðarstefnu Evrópusam- bandsins, hafa áhrif á löggjöf þess og berjast fyrir hags- munum Íslands. Þetta sjónarmið er þekkt og því er mjög haldið fram af þeim sem ákafast vilja selja Ísland inn í Evrópusambandið. Ís- lendingar fengju að vísu ekki nema innan við eitt prósent af þingsætunum og hefðu því vita- skuld engin áhrif, en þegar á þetta er bent halda sumir því fram, þar með talin Diana Wallis, að fámennar þjóðir geti náð saman um tiltekin hags- munamál og þannig haft til- tölulega meiri áhrif á brýnustu hagsmunamál sín. Wallis segir einnig að það hve sterkt rödd Íslands hljómaði á Evr- ópuþinginu, gengi landið í ESB, færi að miklu leyti eftir því hve öfluga fulltrúa landið myndi senda til Brussel. Nú á Ísland vitaskuld margt hæfileikafólk, en við getum hvorki gengið út frá því að þessu fólki takist hið ómögulega né að eingöngu þetta fólk veldist á Evr- ópuþingið fyrir Ís- lands hönd. Engin ástæða er til að gleyma því strax að Ísland hefur um hríð staðið frammi fyrir einu brýnu úr- lausnarefni, Icesave-deilunni, og þar hefur ekki betur tekist til en svo í mannvalinu að enn er hætta á að Ísland taki á sig stórfelldar skuldbindingar sem því ber engin skylda til að gera. Er einhver tilbúinn að taka þá áhættu að íslenskum stjórn- völdum, til að mynda ef svipuð stjórn og nú situr héldi um taumana, tækist að verja hags- muni Íslands í sjávarútvegs- málum, þar sem Íslendingar væru í miklu veikari stöðu en í Icesave-málinu? Vitaskuld væri hreint glapræði að taka slíka áhættu. Ef marka má kannanir er reyndar mikill minnihluti Ís- lendinga tilbúinn í þennan von- lausa leiðangur. Reynslan af Icesave-málinu hefur enn auk- ið staðfestu þjóðarinnar í þessu efni, en þá reynslu þurfti ekki til. Öllum mátti ljóst vera að Ís- land yrði áhrifalaus þiggjandi innan ESB, þó að útsendarar sambandsins reyni að sann- færa þá um annað. Útsendarar ESB reyna að sannfæra Íslendinga um að þeir hefðu áhrif inn- an sambandsins } Engin áhrif innan ESB Franz Árnason,formaður Samorku, samtaka orku- og veitufyr- irtækja, var gagn- rýninn í garð stjórnvalda á aðal- fundi samtakanna í gær. Franz benti á að fjármögnun framkvæmda væri oft mjög erfið fyrir Íslendinga nú um stundir og því nauðsynlegt að fá að erlenda fjárfesta. „Slíkir fjárfestar eru til en ég óttast að þeim fari fækkandi vegna þess að þær móttökur sem þeir fá á æðstu stöðum eru oft- ar en ekki til þess fallnar að fæla fjárfesta frá landinu,“ sagði hann. Rétt er að athuga að hér tal- ar maður sem þekkir vel til og ætla verður að hann mundi ekki tala með þessum hætti nema rík ástæða væri til. Grafalvarlegt er ef móttökur stjórnvalda eru „oftar en ekki“ með þeim hætti að þær fæli er- lenda fjárfesta frá landinu. Ís- lensk stjórnvöld ættu að róa að því öllum árum að fá inn er- lent fjármagn, en því miður fjölgar stöðugt vísbending- unum um að aðgerðir stjórn- valda á sviði orkumála séu frekar til þess fallnar að hrekja fjárfesta frá land- inu. Formaður Sam- orku ræddi skatta- mál orkugeirans stuttlega og taldi að með því að skattleggja raforkunotkun með beinum hætti væri einnig verið að fæla fjárfesta frá þessum geira, sem út af fyrir sig gefur augaleið. Aukin skattheimta á atvinnu- starfsemi hefur jafnan nei- kvæð áhrif og orkugeirinn er þar engin undantekning. Með nýrri skattlagningu hafa stjórnvöld vegið að hags- munum þessa geira. „Við hljótum að gera þá kröfu til stjórnvalda að þau vinni með atvinnulífinu á þessu sviði, en ekki gegn því,“ sagði Franz Árnason og undir þau orð má taka. Raunar er það svo að brýningin á ekki að- eins við um orkugeirann, held- ur atvinnulífið í heild sinni. At- vinnulífið, og þar með allur almenningur í landinu því að hagsmunir almennings og at- vinnulífs falla saman, þarf á því að halda að stjórnvöld vinni með því en ekki á móti. Erlendir fjárfestar mæta ekki jákvæðu viðmóti íslenskra stjórnvalda } Móttökur fæla frá fjárfesta P appírsfésbókin er fín. Aldrei að vita nema ég opni líka þá stafrænu við tækifæri en þessi miðill hentar sumum miðaldra karlmönnum bet- ur. Eða er þetta kannski blogg? Hér koma engin komment. Og þó, sjáum til. – Lausn á fjárhagsvanda Íslendinga er fundin. Tala bara við sendiherrann og hann reddar málinu. Eða ekki. – Fór í bíó. Loftkastalinn sem hrundi eftir þriðju bók Stiegs Larssons er komin, loksins. – Fyrir tveimur mínútum: Hvernig var? – Það var hálfeinkennilegt að sjá myndina eftir að hafa lesið bókina, allar 700 og eitthvað síð- urnar, á mettíma og ímyndað sér hvert atriðið á fætur öðru. Það er auðvelt því bókin er afar myndræn. En ég sakna margs úr pappírsútgáfunni og fátt á tjaldinu kom á óvart. Nema auðvitað hve mikið „vantar“ en leikstjórinn þarf að velja og hafna; hefur væntanlega ekki treyst áhorf- andanum til þess að sitja í bíósal miklu lengur en í tvo og hálfan tíma. Ég hefði þó verið til að í halda kyrru fyrir í sætinu tvöfalt lengur. – Fyrir einni mínútu: Á ég að sjá hana? – Já, að sjálfsögðu. Áhugafólk um bíó og Svíþjóð er ein- dregið hvatt til þess að upplifa Salander, Mikka og öll hin í bíósal. Þeir sem ekki eru búnir að lesa bókina ættu að drífa í því en ég átta mig reyndar ekki alveg á því hvort ég á að mæla með því að fólk renni sér í gegnum doðr- antinn áður en farið er á myndina eða á eftir. Kannski bæði, eins og unga fólkið segir. – Íþróttir eru (illu heilli) viðskipti og stjórn- mál eru (illu heilli) íþróttir og viðskipti eru (illu heilli) stjórnmál. Það virðist eðli mannsins, al- veg sama hvað keppnisgreinin heitir, að öllu máli skiptir að sigra. Að andstæðingurinn tapi að minnsta kosti, sem virðist reyndar mik- ilvægara. Það er líka alveg sama hver keppn- isgreinin er; sá sem vill sigra (eða sjá til þess með öllum ráðum að andstæðingurinn tapi) gengur eins langt og dómarinn leyfir. Keppn- ismaðurinn þekkir reglurnar en honum finnst allt í lagi að taka of mörg skref eða stíga á línuna bara ef dómarinn tekur ekki eftir því. Það er líka allt í lagi að ýta mótherj- anum, jafnvel kýla hann í magann, ef enginn sér. – Einhver þarf að skila því til skilanefndar að hún þarf að skilja eitthvað eftir til að standa skil á því þarf að borga, annað en laun. – Jæja, best að drífa sig á skíði. Veit einhver um skíða- skála til leigu gegn vægu gjaldi? Ljósmyndari má fylgja. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Forfallinn – III FRÉTTASKÝRING Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is MÖRG hundruð manns söfnuðust saman til að taka á móti Mohamed ElBaradei, fyrrverandi yfirmanni Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar, IAEA, þegar hann kom til Egypta- lands í gær. Yfirvöld höfðu lagt bann við fjöldafundum, en mannfjöldinn hafði það að engu og tók á móti El- Baradei á flugvellinum í Kairó með myndir af honum á lofti og borða, sem á var letrað „Já, ElBaradei for- seti Egyptalands“ og „ElBaradei í forsetann 2011“. „Hann mun láta þjófana standa reikningsskil,“ mátti heyra hrópað. Æltaði ElBaradei vart að komast af flugvellinum. ElBaradei, sem er 67 ára, kvaðst í gær vilja leggja allt af mörkum til að efla lýðræði í Egyptalandi og ýta undir efnhagslegar og félagslegar framfarir. „Ég vonast til þess að geta orðið aflvaki breytinga,“ sagði ElBaradei í samtali við egypska sjónvarpsstöð í gær. „Ég er tilbúinn til að kasta mér út í pólitískt líf í Egyptalandi með því skilyrði að fram fari frjálsar kosn- ingar og fyrsta skrefið til þess væri stjórnarskrárbreyting, sem gerði mér kleift að fara í framboð.“ ElBaradei hætti störfum sem yf- irmaður Alþjóða kjarnorkustofn- unarinnar, IAEA, í fyrra. Hosni Mubarak hefur verið forseti frá árinu 1981 og lýkur fimmta kjör- tímabili hans á næsta ári. Hann er orðinn 81 árs og hefur enn ekki gefið upp hvað hann hyggst fyrir, en margt þykir benda til þess að hann sé að búa yngri son sinn, Gamal, und- ir að taka við af sér. Framboð ElBar- adeis myndi setja strik í reikninginn hjá Mubarak. ElBaradei kveðst aðeins munu gefa kost á sér sem óháður frambjóð- andi. Það gæti reynst þrautin þyngri því að reglur kveða á um að óháðir frambjóðendur þurfi stuðning 250 kjörinna einstaklinga, þar af 65 þing- menn þjóðþingsins, 25 öldungadeild- arþingmenn og 10 bæjar- og sveit- arstjórnarmanna. Á öllum þessum vígstöðvum ræður flokkur Mub- araks, Lýðræðislegi þjóðarflokk- urinn, lögum og lofum. Að auki kveður stjórnarskrá landsins á um að frambjóðendur verði í eitt ár að hafa verið leiðtogar flokks, sem hefur verið til í minnst fimm ár. ElBaradei uppfyllir ekki það skilyrði. ElBaradei er hins vegar ekki brenndur marki spillingar eins og stjórn Mubaraks og litið er á hann sem þjóðhetju í Egyptalandi. Þess vegna var mikill viðbúnaður hjá yf- irvöldum í Egyptalandi í gær til að koma í veg fyrir að Elbaradei yrði fagnað við komuna heim í fyrsta skipti frá því að hann lét af störfum hjá IAEA og samkundur bannaðar. ElBaradei stýrði kjarnorkustofn- uninni í 12 ár. Í aðdraganda innrásar Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra í mars árið 2003 hélt hann því fram að ekkert væri hæft í því að Saddam Hussein, leiðtogi Íraks, væri með leynilega kjarnorkuvopnaáætl- un. Yfirlýsingar ElBaradeis vöktu mikla reiði Bandaríkjastjórnar, en engin kjarnorkuvopn fundust í Írak og hann reyndist hafa haft rétt fyrir sér. Árið 2005 voru honum og IAEA veitt friðarverðlaun Nóbels. Egyptar fagna El- Baradei sem hetju Reuters Fagnað Stuðningsmenn ElBaradeis höfðu að engu fyrirmæli stjórnvalda um að safnast ekki saman og biðu komu hans á flugvellinum í Kairó í gær. Fyrir fjórum árum var Mohamed ElBaradei sæmdur æðstu við- urkenningu Egypta, en nú þykir hann ógna veldi Hosnis Mub- araks. Er hann kom til Kairó í gær var honum fagnað sem hetju. Faðir Mohameds ElBaradeis, Mustafa, var lögfræðingur og var um tíma formaður lög- mannafélagsins í Egyptalandi. Hann var málsvari lýðræðis, mannréttinda, málfrelsis og sjálfstæðra dómstóla og var fyrir vikið iðulega á öndverðum meiði við Gamal Abdel Nasser, forseta Egyptalands. Sonurinn fetaði í fótspor föð- ur síns og lærði lögfræði. Árið 1962 útskrifaðist hann frá Kaíró-háskóla og síðar lauk hann doktorsprófi í þjóðarétti frá New York-háskóla og kenndi við skólann. Líkt og faðirinn hefur ElBaradei einnig getið sér orð fyrir að segja hug sinn. „Faðir minn kenndi mér að maður verður að standa við sín grundvallarsjónarmið,“ segir El- Baradei. „Hann var forseti lög- mannafélagsins og talaði fyrir borgaralegu frelsi og mannrétt- indum á þeim árum sem kúg- unin var mest í stjórnartíð Nas- sers. Ég held að það hafi ég lært af honum, að standa við það sem maður trúir á.“ Nú íhugar sonurinn að bjóða forseta Egyptalands birginn. Í fótspor föðurins Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.