Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 36
36 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 KANNASTU við þá tilfinningu að langa í göngutúr vitandi það hversu gott það er fyr- ir heilsuna og hversu dásamlega þér líður eftir á, en verja kvöld- inu í staðinn í að glápa á sjónvarpið? Eða að vera meðvitaður um að þurfa að vinna í loka- ritgerðinni eða taka mataræðið í gegn en skorta innri kjark og úthald til að breyta venjum þínum? Við könnumst líklega öll við þá til- finningu að hugsa: „Ég vildi að ég hefði viljastyrk og sjálfsaga.“ Við er- um öll með venjur sem við vildum gjarnan hætta, eins og t.d. að reykja, borða óhollan mat eða of mikinn, leti, frestunaráráttu eða skort á áræði. Til að vinna bug á þessum ósiðum þurfum við að búa yfir sjálfsstyrk og sjálfsaga. Viljastyrk má skilgreina sem hæfnina til að sigrast á leti og frest- unaráráttu ásamt hæfninni til að stjórna eða hafna ónauðsynlegum eða skaðlegum hvötum. Viljastyrkur er að taka ákvörðun og fylgja henni eftir af þrautseigju þangað til skil- greindum ætluðum árangri hefur verið náð. Um er að ræða innri styrk sem sigrar löngunina til að tapa sér í ónauðsynlegum og tilgangslausum venjum. Innri styrk sem vinnur bug á tilfinningalegri og andlegri and- stöðu okkar við að gera eitthvað í málinu. Viljastyrkur er einn af horn- steinum árangurs. Hægt er að auka hann með því að æfa sig í að halda aftur af sér og leyfa ekki léttvægum, ónauðsynlegum og óheilbrigðum hugsunum, tilfinningum, aðgerðum og viðbrögðum að koma fram. Hægt er að þjálfa viljastyrk á sama hátt og við þjálfum og styrkjum vöðvana okkar í líkamsræktinni. Sjálfsagi er förunautur vilja- styrks. Sjálfsagi gefur þol til að þrauka, sama hvað gengur á. Um er að ræða hæfnina til að standast þrautir og erf- iðleika, hvort sem um er að ræða líkamlega, tilfinningalega eða andlega erfiðleika. Sjálfsagi veitir hæfnina til að fresta um- svifalausri ánægju, í þeim tilgangi að kom- ast enn lengra. Við erum öll með innri, ómeðvitaða eða meðvitaða hvata sem fá okkur til að segja eða gera eitthvað sem við sjáum eftir síðar. Oft hugsum við ekki áður en við tölum eða fram- kvæmum. Með því að þróa viljastyrk okkar og sjálfsaga verðum við með- vituð um þessa innri hvata og öðl- umst hæfnina til að hafna því sem er okkur ekki fyrir bestu. Viljastyrkur og sjálfsagi hjálpar okkur við að velja hegðun okkar og viðbrögð, í stað þess að láta þau stjórna okkur. Góð leið til að auka viljastyrk og sjálfsaga er að framkvæma hluti sem þú myndir helst forðast vegna leti, frestunaráráttu, breyskleika, feimni o.fl. Með því að framkvæma eitthvað sem þú hefur ekki gaman af eða hefur ekki nennu til er hægt að sigra andstöðu þína, þjálfa hugann til að hlýða þér, styrkja þinn innri kraft og öðlast innri styrk. Hér fyrir neðan eru nokkrar æfingar og að- ferðir til að þróa viljastyrk og sjálfs- aga. Þær er hægt að framkvæma hvar og hvenær sem er: 1) Þú situr í strætó og gamall maður eða ólétt kona gengur inn. Stattu upp og bjóddu viðkomandi sætið þitt, jafnvel þó að þú myndir frekar sitja áfram. Ekki gera það til að vera kurteis heldur vegna þess að þú ert að gera eitthvað sem þú ert tregur til að gera. Þannig sigrar þú andstöðu líkama, huga og tilfinn- inga. 2) Það eru diskar í vaskinum sem þarf að þvo og þú átt það til að fresta þessu verkefni þangað til síðar. Stattu upp og gakktu frá uppvask- inu núna. Láttu ekki bugast af leti. 3) Þú kemur heim úr vinnunni og sest fyrir framan sjónvarpið af því að þú ert of latur og þreyttur til að fara í sturtu. Hlýddu ekki löng- uninni til að sitja áfram heldur skelltu þér í sturtu. 4) Líkar þér að drekka kaffið þitt með sykri? Drekktu það sykurlaust í heila viku. Drekkurðu yfirleitt fjóra bolla af kaffi á dag? Minnkaðu það niður í tvo í heila viku. 5) Þú færð löngun til að borða sælgæti sem þú átt til uppi í skáp. Vertu sterkur og neitaðu löng- uninni. 6) Sigrastu á leti í ritgerðarsmíði með því að sannfæra þig um mik- ilvægi þess að klára ritgerðina. Sannfærðu hugann um að þú öðlist innri styrk þegar þú gerir hluti þrátt fyrir leti, tregðu eða innri and- stöðu. Sýndu þrautseigju og veittu þér hvatningu með því að hugsa um út- komuna. Best er að þjálfa sig með einföldum æfingum til að byrja með og þyngja þær svo. Æfingarnar munu auka styrk þinn og veita þér ánægju, innri frið og hamingju. Ytri atburðir munu ekki lengur hafa áhrif á þig og aðstæðurnar stjórna ekki lengur hugarró þinni. Vilja- styrkur og sjálfsagi gefa okkur stjórn á daglegu lífi, hjálpa okkur að breyta venjum okkar og hegðun, og eru lykillinn að árangri. Að byggja upp viljastyrk og sjálfsaga Eftir Ingrid Kuhlman » Viljastyrkur og sjálfsagi gefa okkur stjórn á daglegu lífi, hjálpa okkur að breyta venjum okkar og hegð- un, og eru lykillinn að árangri. Ingrid Kuhlman Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. ÞRÓUN þjónustu við langveika einstaklinga er tiltölulega ný af nál- inni og fylgir í kjölfar lengingar á ævilíkum ásamt með bættri heil- brigðisþjónustu. Banvænir bráðir sjúkdómar hafa breyst í meðhöndl- anlega langvinna sjúkdóma. Þörf er fyrir mikla breidd í þjónustu við langveika og aldraða einstaklinga vegna hins mikla breytileika í fram- vindu sjúkdóma og færni. Hefð hef- ur þróast fyrir því á Íslandi að ein- blína á hjúkrunarrými þegar lang- veikur eða aldraður einstaklingur getur ekki lengur búið óstuddur á eigin heimili. Tvennt kann þar að koma til, annars vegar ákveðnar hindranir í þjónustukeðjunni og hins vegar takmörkuð þróun úrræða á samfélagsstigi. Fjármál Nú eru um 70 einstaklingar á bið- lista eftir hjúkrunarrými á höfuð- borgarsvæðinu, en voru um 350 fyrir breytingu á framkvæmd vistunar- matsins í ársbyrjun 2008. Ljóst er að ef hverfa ætti til fyrra fyrirkomu- lags, og mæta þörf fyrir vistun 300 einstaklinga, þyrfti að koma til veru- lega aukið fjármagn til nýbygginga og rekstrar, þar sem slíkur fjöldi hjúkrunarrýma er ekki til. Árlegur rekstrarkostnaður hvers rýmis á hjúkrunarheimili er um 7,5 milljónir króna og árleg aukning hlypi því á milljörðum. Eins og fram hefur komið í fyrri greinum vistunarmats- nefndarinnar er lögð áhersla á að veikustu einstaklingarnir njóti for- gangs. Einstaklingar sem fá höfnun á vistunarmati geta engu að síður verið í þörf fyrir þjónustu sem mik- ilvægt er að mæta. Þjónustu sem ef til vill er ekki fyrir hendi eða er að- gengileg í takmörkuðum mæli. Það er því eðlilegt að biðlisti myndist fyrir önnur úrræði en hjúkrunar- rými og við því þarf að bregðast. Hindranir Margir aðilar koma að umönnun langveikra, má þar nefna heilsu- gæslu, félagsþjónustu og sjúkrahús. Ábyrgð þeirra aðila sem að þjónust- unni koma er oft óljós, samþættingu einstakra þjónustuþátta skortir, samvinna fagaðila er á köflum ófull- komin og togstreita ríkir gjarnan um fjármögnun þjónustunnar. Slíkir annmarkar draga úr gæðum og hag- kvæmni þjónustunnar. Nauðsyn er á heildstæðri stefnumótun í málefnum langveikra einstaklinga þar sem há- mörkun gæða og hagkvæmni eru í forgrunni. Tækifæri Margvísleg tækifæri eru til þró- unar samfélagsúrræða. Einnig má bæta og efla þá þjónustu sem þegar er fyrir hendi. Í starfi sínu hefur nefndin greint þrjá hópa sem ekki uppfylla viðmið fyrir hjúkrunarrými, en bæta mætti þjónustu við á sam- félagsstigi. Í fyrsta lagi má nefna einstaklinga með heilabilun á fyrri stigum. Færniskerðing þeirra er lít- il, þeir búa einir og kvíði hrjáir þá. Þörfum þessara einstaklinga mætti mæta með fjölgun sambýla, þjón- ustuíbúða á vegum sveitarfélags, svo sem þekkt er í Seljahlíð í Reykjavík eða í öryggisíbúðum Eirar í Mos- fellsbæ. Í öðru lagi má nefna ein- staklinga með líkamlega sjúkdóma og kvíðaröskun sem þó hafa góða færni. Þessir einstaklingar gætu nýtt sér sambýli á samfélagsstigi. Í þriðja og síðasta lagi má nefna mik- ilvægi þess að þróa úrræði fyrir þá sem haldnir eru geðsjúkdómi sam- hliða líkamlegum sjúkdómi. Margir þessara einstaklinga eru ófærir um að búa í sjálfstæðri búsetu en gætu nýtt sér samfélagsúrræði sem væru betur sniðin að þörfum þeirra en hjúkrunarrými gera nú. Auk þess að þróa ný þjónustu- úrræði eru ýmis tækifæri til styrk- ingar þeirra úrræða sem fyrir eru. Í því sambandi má benda á mikilvægi þess að læknar vitji reglulega ein- staklinga sem ekki eru færir um að sækja þjónustu þeirra á stofu. Með auknu samstarfi lækna og hjúkr- unarfræðinga, þar sem sami læknir fylgir eftir sjúklingi, í stað þess að kallað sé til þjónustu bæjarvaktar sem þekkir ekki til einstaklingsins, má stuðla að markvissari þjónustu og betri umönnun hans. Slíkt sam- starf gæti aukið samfellu í þjónustu sjúkrahúss og heilsugæslu þegar til útskriftar kæmi og væri liður í því að styrkja heildræna umönnun og sam- fellu í meðferð langveikra. Þróun skilmerkja eða viðmiða fyrir alla þætti þjónustukeðjunnar gæti verið liður í því að hámarka gæði og nýt- ingu þjónustunnar í þágu einstakl- ingsins. Þannig nyti einstakling- urinn þjónustu mismunandi aðila í samræmi við heilsu sína og færni hverju sinni. Með þróun upplýsinga- tækni skapast mikilvægt tækifæri til þess að skilgreina þarfir, útfæra þjónustu og efla samvinnu hinna fjölmörgu þjónustuaðila sem þurfa að koma að hverjum og einum lang- veikum einstaklingi. Hún er einnig mikilvæg þegar meta skal árangur og gæði þjónustunnar sem liðar í stefnumótun. Gagnagrunnar fyrir slíka heildræna upplýsingatækni eru þegar fyrir hendi og má þar nefna rafræna sjúkraskrá, Söguna, og svo- kallað RAI-mat fyrir langveika ein- staklinga á ýmsum þjónustustigum. Þennan þátt þjónustunnar þarf að efla og gera aðgengilegan fyrir alla þá fjölmörgu sem sinna hverjum og einum einstaklingi með langvinna sjúkdóma. Heildstæð stefnumótun og stýring á þjónustu við langveika einstaklinga getur bætt þjónustuna auk þess að stuðla að hagkvæmni. Nýting þekkingar og upplýsinga- tækni við þá vinnu stuðlar að vand- aðri vinnubrögðum í dag og til fram- tíðar. Við þurfum að grípa það tækifæri. Eftir Pálma V. Jónsson, Ingu V. Kristinsdóttur og Unni V. Ingólfsdóttur »Einblínt er á hjúkr- unarrými þegar langveikur einstakling- ur getur ekki lengur bú- ið óstuddur á eigin heimili. Tækifæri er til þróunar samfélags- úrræða. Pálmi V. Jónsson Höfundar eru í nefnd um framkvæmd vistunarmats fyrir hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu. Inga V. Kristinsdóttir Unnur V. Ingólfsdóttir Valkostir við vistun í hjúkrunarrými: fjármál, hindranir og tækifæri TAÍVAN (Lýðveldið Kína) er enn útilokað frá ýmsum al- þjóðastofnunum sem Ísland til að mynda á fulla aðild að. Með góðra manna hjálp tókst nýverið að tryggja Taívan áheyrnaraðild að Al- þjóðaheilbrigðisstofn- uninni (WHO). Næsta verkefni er að tryggja Taívan sams konar aðild að Alþjóðaflugmálastofn- uninni (ICAO). Hvers vegna? Einfaldlega vegna þess að við teljum það nauðsynlegt fyrir flugöryggi í Austur-Asíu. Um- sókn Taívans ætti að falla vel að stefnu Bandaríkjanna, Evrópusam- bandsins og Íslands sem öll hafa lýst þeim vilja sínum að Taívan fái ein- hvers konar viðunandi stöðu innan stofnana á vegum Sameinuðu þjóð- anna. Aðild að ICAO þýddi m.a. að Taívan gæti sent fulltrúa á tæknilegar ráðstefnur á vegum stofnunarinnar og hefði bein samskipti um öll atriði er varða flugöryggi í sínum heims- hluta. Til að skilja stöðu Taívans á sviði flugsamgangna má minna á nokkrar staðreyndir: Taívan er helsta miðstöð flug- samgangna milli Norðaustur- og Suð- austur-Asíu með 2.600 flugferðir á viku. Flugumsjónarsvæði Taipei spann- ar 12 alþjóða- og fjórar innanlands- flugleiðir. 1,35 milljónir farþega ferðast ár- lega um þetta flugsvæði. Árið 2008 höfðu 174.000 alþjóðaflug viðkomu á Taívan með 35 milljónir farþega. Alþjóðaflugvöllurinn í Taipei er sá fimmtándi annasamasti í heiminum. Af þessu sést hvers vegna ICAO myndi hagnast á aðild Taívans, þó að ekki væri nema á sviði flugöryggis. Taívan hefur hins vegar verið útilokað frá allri starfsemi stofn- unarinnar frá árinu 1971 og hefur engan aðgang að upplýsingum þaðan. Þótt flugyfirvöld á Taív- an reyni að nálgast þær upplýsingar eftir öðrum leiðum eru það króka- leiðir sem bjaga eðlilegt og öruggt upplýs- ingaflæði. Þessi þörf er enn brýnni eftir að reglu- legar flugsamgöngur hófust yfir Taívanssund: nú 270 flugferðir á viku. Eru einhverjar gildar lagaástæður fyrir því að útiloka Taívan? Aug- ljóslega ekki þar sem reglugerð ICAO gerir beinlínis ráð fyrir þeim mögu- leika að bjóða utanaðkomandi „að- ilum“ að taka þátt í einstökum verk- efnum á vegum stofnunarinnar, þar á meðal starfsemi viðeigandi undir- nefnda. Meðal aðila sem fengið hafa slíkan rétt eru Palestína og banda- rískt félag (Aeronautical Radio). Taív- an sækist sérstaklega eftir aðkomu að samhæfðu upplýsingakerfi ICAO sem kallast PKD. Þeir sem gefa út tölvu- tæk ferðaskilríki eiga að geta orðið aðilar að PKD og Taívan hóf útgáfu slíka skilríkja í desember 2008. Ég vona að þessi rök og dæmi sannfærandi viðeigandi yfirvöld á Ís- landi um að þeim beri að styðja um- sókn Taívans um áheyrnaraðild að Al- þjóðaflugmálastofnuninni. Umsókn Taívans um aðild að Alþjóða- flugmálastofnuninni Eftir Arthur Cheng » Alþjóðaflugvöllurinn í Taipei er sá fimm- tándi annasamasti í heiminum. Af þessu sést hvers vegna ICAO myndi hagnast á aðild Taívans, þó ekki væri nema á sviði flugöryggis. Arthur Cheng Höfundur er forstöðumaður á full- trúaskrifstofu Taívans í Danmörku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.