Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 20
20 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 ÖSSUR Skarp- héðinsson, utan- ríkisráðherra, segir breytt við- horf forsvars- manna íslenskra fyrirtækja til Evrópusam- bandsins, ekki hafa áhrif á það inngönguferli sem íslensk stjórnvöld hafa hafið. „Alþingi hefur tekið sína ákvörðun og [fram- kvæmdavaldinu] ber skylda til að framfylgja henni.“ Í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Viðskiptaráð, og kynnt var á Viðskiptaþingi sl. miðvikudag, kom fram að 60% forsvarsmanna fyrirtækja telja hagsmunum ís- lensks viðskiptalífs betur borgið ut- an ESB. Um viðsnúning er að ræða frá könnun sem Viðskiptaráð lét gera fyrir ári. Össur bendir á að niðurstöður um- ræddrar könnunar bendi einnig til að meirihluti atvinnurekenda vilji skipta um gjaldmiðil. Vilji menn taka upp annan gjaldmiðil eru að sögn Össurar þrír kostir í stöðunni: dollar, norsk króna, eða evra. Fáir vilji taka einhliða upp dollar, og Norðmenn hafi lýsti því yfir að þeir séu því mótfallnir að Íslendingar taki upp norska krónu. „Þá standa menn frammi fyrir þessum valkosti [þ.e. evrunni], og þurfa auðvitað í fyllingu tímans að vega hann og meta,“ segir Össur. hlynurorri@mbl.is Ekki áhrif á inngöngu í ESB Össur Skarphéðinsson Breytt viðhorf í at- vinnulífi breytir litlu Eftir Andra Karl andri@mbl.is DÓMSMÁLARÁÐHERRA er mjög fylgjandi stofnun millidóm- stóls og lagði það til að mynda til við þáverandi ráðherra í október 2008, þá sem formaður álitsnefndar um milliliðalausa sönnunarfærslu. Skortur á fjárheimildum hamlar því hins vegar að millidómsstig verði að veruleika. Líkt og fram kom í ávarpi Ingi- bjargar Benediktsdóttur, forseta Hæstaréttar, á málþingi fyrr í vik- unni er álag á Hæstarétt gífurlegt og á eftir að aukast. Ragna Árna- dóttir, dómsmálaráðherra, við- urkennir fúslega að álagið sé mikið og telur að áhrifin af fjölgun mála komi vísast fram í lengri málsmeðferðartíma. Hún telur hins vegar ekki, að fjölgun mála hjá Hæstarétti hafi komið niður á gæð- um dómanna eða málsmeðferðinni. Jafnframt bendir Ragna á að Hæstiréttur hafi farið fram á það við fjárlaganefnd að fjárveitingar til réttarins yrðu hækkaðar frá því sem gert var ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010. Fór svo að fallist var á tillögur Hæsta- réttar. Hún segir af því tilefni þó mega velta fyrir sér í hvaða stöðu dómsvaldið er. Því er ætlað að hafa eftirlit með löggjafarvaldi og fram- kvæmdarvaldi á sama tíma og það er háð þessum sömu þáttum ríkis- valdsins um nægar fjárveit- ingar. Ingibjörg mælti í ávarpi sínu með stofnun millidómstóls sem bæði myndi létta á Hæsta- rétti og tryggja milliliðalausa sönnunarfærslu í meðferð sakamála. Þessu er Ragna sammála. Árið 2008 var Ragna formaður nefndar sem lagði til við þáverandi dómsmálaráðherra, að stofnað yrði millidómstig í sakamálum er bæri nafnið Landsyfirréttur. Árlegur rekstrarkostnaður var áætlaður um 160 milljónir króna en að auki myndi fylgja töluverður stofnkostn- aður. Gert var ráð fyrir sex dóm- urum og sérstöku húsnæði. „Fyrir liggur nauðsynlegur und- irbúningur til að leggja fram laga- frumvarp. Hins vegar er kostnaður við þetta umtalsverður,“ segir Ragna. „Þegar hefur verið frestað að setja á fót nýtt stjórnsýslustig í ákæruvaldinu, þ.e. frestun á stofn- setningu embættis héraðssaksókn- ara, og var þá vísað til skorts á fjárheimildum. Að því sögðu tel ég líkur til þess að áformum um stofn- setningu millidómstigs verði frestað enn um sinn – þangað til að ríkis- kassinn réttir úr kútnum.“ Fjármagnsleysi hindrun  Dómsmálaráðherra mælti með því við forvera sinn að stofna ætti millidómstól  Viðurkennir fúslega mikið álag á Hæstarétti en telur gæðum dóma ekki hraka Ragna Árnadóttir Með einfaldri leit á vefsvæði Hæstaréttar má sjá í hversu mörgum málum hver hæsta- réttardómari dæmdi á síðasta ári. Á meðfylgjandi lista má sjá að tveir hæstaréttardóm- arar dæmdu í yfir þrjú hundr- uð málum á árinu.  Árni Kolbeinsson 193  Garðar Gíslason 180  Gunnlaugur Claessen 165  Hjördís Hákonardóttir 278  Ingibjörg Benediktsd. 156  Jón St. Gunnlaugsson 310  Markús Sigurbjörnsson 169  Ólafur B. Þorvaldsson 317 Ragna Árnadóttir, dóms- málaráðherra, segir tölurnar þó ekki segja alla söguna, enda málin misumfangsmikil, allt frá því að vera skriflega flutt kærumál yfir í munnlega flutt einkamál, sum hver býsna flókin. Málafjöldi á dómara BROT 19 ökumanna voru mynd- uð í Gullengi í Reykjavík á mið- vikudag. Fylgst var með öku- tækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, við Laufengi. Á einni klukkustund, eftir há- degi, fóru 34 ökutæki þessa akst- ursleið og því ók meirihluti öku- manna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58 km/klst. Eftirlit lögreglunnar í Gullengi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þess- um stað. Gripnir fyrir hrað- akstur á Gullengi Umsóknarfrestur um stöðu skóla- meistara við Fjölbrautaskól- ann í Garðabæ rann út mánu- daginn 15. febr- úar sl. Mennta- og menningar- málaráðuneyti bárust tíu um- sóknir um stöðuna. Umsækjendur eru: Alda Baldursdóttir, kennari og lýðheilusfræðingur, Aðalheiður Dröfn Eggertsdóttir framhalds- skólakennari, Ársæll Guðmundsson, skólameistari Menntaskóla Borg- arfjarðar, Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla í Kópavogi, Jóhannes Ágústsson framhaldsskólakennari, Kristinn Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Garðabæjar, Krist- ján Bjarni Halldórsson framhalds- skólakennari, Magnús Ingólfsson framhaldsskólakennari, Magnús Ingvason kennslustjóri og Þór Steinsson Steinarsson framhalds- skólakennari. Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar. Þorsteinn Þorsteinsson, sem hef- ur verið skólameistari FG frá stofnun skólans, lætur nú af störf- um fyrir aldurs sakir. Tíu sækja um stöðu skóla- meistara Þorsteinn Þorsteinsson „KANÍNURNAR hér í skóginum hafa dafnað vel í vetur og stofninn stækkað talsvert. Fyrsta got hjá þeim er væntanlega núna í apríl og síðan koma tvö önnur yfir sumarið. Í sumarlok fara fyrstu ungar vorsins að eign- ast sín eigin afkvæmi,“ segir Ólafur Erling Ólafsson, skógarvörður í Heiðmörk. Stór kanínustofn heldur sig í þessu fallega skóglendi í borgarjarðrinum og hefur stofninn stækkað jafnt og þétt á síðustu árum. Nú í vetur hafa raunar verið kjör- skilyrði fyrir kanínurnar, enda þurrviðrasamt. „Kuldi bítur ekkert á kanínur, loðinn feldurinn er öruggt skjól. Rigning er verri, þá drepast þær þar sem þær hafa gert sér holur hér í skóginum. Þá virðast þessar skepnur hafa nægt æti hér þar sem þær geta nagað og étið trjábörk af ársgömlum víði,“ segir Ólafur Erling sem bætir því við að mest sjáist af kanínum í ná- grenni Elliðavatnsbæjarins gamla. Landnámið verði þó stöðugt víðfeðmara, í sumar hafi sést til kanína bæði í Rauðhólunum og eins innar í Heiðmörkinni. Afföll úr stofninum eru lítil að sögn skógarvarðarins. Vargdýr drepi nokkrar kanínur á ári hverju og eins fálki sem haldi sig í Henglinum og á Nesjavallasvæðinu. Slíkt sé þó fátítt og þessar kanínur sem spókuðu sig í Heið- mörkinni í gær virtust áhyggjulausar. sbs@mbl.is Dýraríkið dafnar í mildri veðráttunni Morgunblaðið/Ómar Heiðmerkurkanínum fjölgar stöðugt á úrkomulitlum vetri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.