Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 52
Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridur@mbl.is UM helgina verða haldnar áheyrnarprufur fyrir hlutverk í nýrri íslenskri fjölskyldumynd. Myndin hefur hlotið nafnið L7: Hrafnar, Sóleyjar og Myrra og stefnt er að því að hefja tökur í sumar, en þá mun líka koma út bók eftir Helga Sverrisson og Eyrúnu Ósk Jónsdóttur sem myndin er byggð á. Framleið- andi myndarinnar er Kristján Hans Óskarsson en hann segir að Helgi hafi upphaflega átt hugmynd- ina að sögunni og auglýst eftir samstarfsfólki. „Helgi er kvikmyndagerðamaður og Eyrún Ósk er leikkona, leiklistarkennari og skáld. Upprunalega fór Helgi af stað með fræ að þessari sögu og hann auglýsti eftir handritshöfundum, ungu hæfi- leikafólki, og Eyrún var ein af þeim sem svaraði þessu kalli hans. Þau bjuggu söguna til og það stóð í raun alltaf til að skrifa bæði bók og handrit,“ segir Kristján en hann, Eyrún, Helgi og Arndís, kona Helga, mynda hópinn sem fór af stað með verk- efnið. Mynd um klára stelpu Kristján lýsir myndinni sem skemmtilegri barna- og fjölskyldumynd. „Aðalpersónan er táningsstelpa sem samkvæmt bókinni er þrettán ára þegar sagan á sér stað og er svona sterk kvenpersóna. Sagan byrjar á því að hún er nýbúin að upplifa það áfall að missa pabba sinn og litla bróður í hræðilegu slysi og í kjölfarið fer hún að leita sér leiða til að takast á við þetta, þá kynnist hún hópi af sérvitringum, skrýtnu gömlu fólki sem heldur saman og stendur saman að leikfélagi í Hafnarfirði. Það er svo í gegnum þetta fólk sem hún er dregin inn í hringiðu æv- intýra,“ segir Kristján. Hann segir áætlanir gera ráð fyrir að myndin verði frumsýnd snemma á næsta ári en segir dagsetninguna þó enn geta breyst. „Við erum samt sem áður kom- in það langt í ferlinu að við stefnum á febrúar.“ Að- spurður hvort það hafi ekki reynst erfitt að fá fjármagn í verkefnið á þessum síðustu og verstu, segir Kristján að það hafi komið sér vel hversu vel á veg verkefnið var komið þegar erfiðleikarnir hófust. Íslensk kvikmyndagerð mun sigrast á þessum erfiðleikum „Myndin er náttúrlega búin að vera í vinnslu í þrjú ár og við komin ansi langt með þetta verkefni þegar þessir erfiðleikar sem kvikmyndastéttin í dag er að takast á við komu upp. Við vorum til dæmis komin með samstarfsaðila í fimm löndum. Auðvitað verða allar svona breytingar á aðstæðum til þess að maður fer að spyrja sig og setja fyrirvara. En málið er bara hreinlega það að kvikmyndastéttin er stað- ráðin í því að yfirstíga þessa erfiðleika af miklum krafti. Kvikmyndamiðstöð, sem er náttúrlega helsti bakhjarl kvikmyndagerðarmanna og kvikmynda- iðnaðarins á Íslandi, er að leita að leiðum til þess, í samstarfi við kvikmyndagerðarfólk, að þetta hafi sem minnstar afleiðingar. Þannig að það er verið að vinna svo skipulega og sterklega að því, að þó að maður setji einhverja fyrirvara, sérstaklega með verkefni sem eru skemur á veg komin, þá er það mikil bjartsýni í gangi að þetta verður yf- irstigið smám saman. Það er það mikil pressa í gangi, ekki bara frá kvikmyndagerðarfólki heldur almenningi, að við viðhöldum íslenskri kvikmynda- og dagskrárgerð. Þannig að auðvitað kom sjokk en það eru engin hjól stopp, það eru allir á fullu og eru bara svolítið að endurskoða það sem þeir eru að gera út frá breyttum aðstæðum,“ segir hann. Erlendir samstarfsaðilar verkefnisins eru fjár- magnsaðilar og framleiðslufyrirtæki í Svíþjóð, Ung- verjalandi, Finnlandi, Hollandi og Bretlandi. Í öll- um tilfellum eru samningar uppi um að dreifing í hverju landi verði tryggð. „Það stendur til að mynd- in fari í góða dreifingu,“ segir Kristján, „í Evrópu og við erum að leita leiða til þess að íslenskar mynd- ir fái dreifingu í Bandaríkjunum líka. En eins og er er Evrópa okkar stóra vígi.“ Ljósmynd/Gúndi Bjartsýnn Kristján Hans Óskarsson er bjartsýnn á framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar. Auglýsa eftir leikurum  L7: Hrafnar, Sóleyjar og Myrra er ný íslensk mynd sem tekin verður upp í sum- ar  Undirbúningur gengur vel og búið að semja við aðila í 5 löndum um dreifingu 52 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010  Tónlistarbloggið offtheradio.com kemst að sérkennilegri niðurstöðu, það er að stórgóða lag Diktu, „Thank You“, sé hið fullkomna Ól- ympíulag. Sá sem ritar færsluna er nafnlaus en hann er gjörsamlega að missa sig yfir laginu og segir að það myndi fara inn í óteljandi Ólympíu- leikaauglýsingar ef færið gæfist. Hann klykkir svo út með orðunum „takk Dikta, takk heimur.“ Gaman að þessu! Samdi Dikta hið full- komna Ólympíulag? Fólk HÖNNUNARSÝNINGIN Íslensk samtímahönnun – húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr verður í sviðs- ljósinu næstu tvo mánuði í Kaupmannahöfn, en sýn- ingin verður opnuð föstudaginn 26. febrúar nk. í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana, Danmarks De- sign Center. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk hönn- unarsýning er sett upp í DDC og býður upp á tæki- færi fyrir íslenska hönnuði og arkitekta að mynda samstarfsvettvang með norrænum kollegum. „Hönnunarmiðstöð setti sig í samband við Dan- marks Design Center og í kjölfarið var okkur boðið að koma með sýninguna til Danmerkur og sýna í þeirra húsnæði. Þetta er sama sýning og var sett upp á Listahátíð í Reykjavík í fyrra en það er búið að gefa út bók sem er byggð á þeirri sýningu,“ segir Gréta Hlöðversdóttir, verkefnisstjóri sýning- arinnar. „Það er mikilvægt að vera í samstarfi við hönn- unarmiðstöðina í Danmörku, því hún er mjög rótgróin og það skiptir miklu máli fyrir okkur að komast inn í tengslanetið þeirra. Hönnunarsafnið hefur verið að vinna í því und- anfarna mánuði að byggja upp tengsl við hönn- unarmiðstöðvarnar á Norðurlöndunum og þetta er liður í því, með það að markmiði að íslensk hönnun verði sjálfkrafa hluti af norrænni hönnun. Skand- inavísk hönnun er mjög þekkt alþjóðlega og nýtur mikillar virðingar og við erum að vinna í því að verða sjálfsagður hluti af því samfélagi. Við sjáum með þessari sýningu að við höfum ým- islegt fram að færa og að hún opnar ýmsar dyr, fólk sér hvað það eru flottir hlutir að gerast hér. Þessi innkoma þarna getur haft mjög góð áhrif, þetta er virðing, athygli og viðurkenning,“ segir Gréta. Sýningin er farandsýning og hefur að geyma verk um tuttugu hönnuða og hönnunarteyma sem eru valin með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu. Sýning verður í Danmörku í tvo mánuði og fer þaðan beint á EXPO-sýninguna í Shanghai, síðan er stefnt á að hún fari til fleiri Norðurlandaþjóða. Nánari upplýsingar um starfsemi Hönnunar- miðstöðvar Íslands og Danmarks Design Center er að finna á slóðunum www.honnunarmidstod.is og www.ddc.dk . ingveldur@mbl.is Íslensk hönnun og arkitektúr í Danmörku Kaupmannahöfn Stór auglýsingaborði um sýninguna blasir við á Ráðhústorginu í Köben.  Nýjasta lína hönnunarverkefn- isins Vík Prjónsdóttir, kroppatepp- in, voru frumsýnd á hönnunarvik- unni í Stokkhólmi á dögunum og eru þegar farin að vekja athygli á málsmetandi tískubloggum og –miðlum. Trendhunter Magazine eys lofsorðum yfir teppin og einn bloggarinn talar um að nú séu „snuggies“ eða „slanket“ eins og þetta heitir víst á útlensku orðin svöl. Í auglýsingum vegna línunnar voru kunnir Íslendingar fengnir til að sitja fyrir með teppi, þar á meðal Högni Egilsson úr Hjaltalín. Kroppateppin vekja at- hygli um víðan völl  Hönnuðir, hljómsveitir og lista- menn sem vilja koma fram á LungA 2010 gefst hér með tækifæri á að sækja um. LungA verður haldin á Seyðisfirði dagana 12. - 18. júlí 2010. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2010. Allar umsóknir sendist á á lunga@lunga.is. Frekari upplýsingar á www.lunga.is. LungA 2010 auglýsir eftir umsóknum  Ekki gagnaðist hún nú vel við rit- un Gettu betur greinar, Gettu bet- ur síðan sem vistuð er undir hatti ruv.is. Síðasta uppfærsla þar er frá 15. febrúar, upplýsingar um keppn- islið kvöldsins engar og undir myn- daflipa voru myndir úr útvarps- keppninni. Það er rúmenskt yfirbragð yfir sniði síðunnar, sem og vefnum í heild sinni og von um gangskör í þessum efnum er hverf- andi, í ljósi „ástandsins“. Uss … Handónýt Gettu betur síða á RÚV-vefnum Opnar prufur fyrir hlutverk í myndinni verða haldnar í Menntasetrinu við Lækinn í Hafn- arfriði, 20. og 21. febrúar. Menntasetrið er í húsnæði gamla Lækjarskóla en prufurnar fara fram á jarðhæðinni í aðstöðu Leikfélags Hafn- arfjarðar. Leitað er eftir stúlku á aldrinum 12-15 ára til að leika aðalhlutverkið, hina 13 ára gömlu Láru Sjöfn, en til gamans má geta að L7 er einmitt skammstöfun á nafninu hennar. Einnig er leitað eftir dreng á aldrinum 13-16 ára. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvu- póst á netfangið L7themovie@L7themovie.com. Prufurnar hefjast kl. 9 og standa fram eftir degi og segir Kristján að opið verði fyrir skrán- ingu yfir helgina. Opnar prufur laugardag og sunnudag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.