Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010
Sjóðurinn veitir tvennskonar styrki
Til rannsóknarverkefna sem tengjast vinnuumhverfi eða
aðbúnaði vélstjóra og vélfræðinga og þróun námsefnis
og kennsluaðferða til vélstjórnarnáms.
Til ýmiss konar brautryðjenda- og þróunarstarfs sem hefur
samfélagslegt gildi, menningarstarfsemi eða listsköpunar.
Einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og menntastofnanir geta sótt
um styrk úr sjóðnum.
Til úthlutunar árið 2010 verða um 3 milljónir króna. Umsóknir
berist Akki, Styrktar og menningarsjóði vélstjóra og vélfræðinga,
eigi síðar en 21. mars 2010.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu VM, www.vm.is,
þar sem nálgast má umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar.
VM Stórhöfða 25 110 Reykjavík sími 575 9800 www.vm.is
Nýjar tölur frá Capacent um aug-lýsingamagn í dagblöðum gefa
ótrúlega mynd af misnotkun á Hög-
um til hagsbóta fyrir fyrrverandi
eigendur fyrirtækisins. Tölurnar
eru frá því í fyrra, sem sagt eftir að
Baugur var fallinn og Hagar komn-
ir í fangið á Nýja Kaupþingi, nú Ar-
ion banka.
Fimm fyrirtækja Haga voru ífyrra látin birta jafngildi yfir
1100 heilsíðuauglýsinga í blaði
fyrrverandi eig-
enda Haga,
Fréttablaðinu. Á
sama tímabili
voru auglýsingar
fyrirtækjanna í
Morgunblaðinu
innan við 50, eða
4% af heildinni.
Hjá öðrum stórum
auglýsendum eru
þessi hlutföll að meðaltali rúmlega
60% hjá Fréttablaðinu og tæplega
40% hjá Morgunblaðinu.
Þessi misnotkun er svo grímulausað engum dettur í hug í alvöru
að verja hana út frá málefnalegum
sjónarmiðum. Aðgerðaleysi bank-
ans sem nú á Haga er hins vegar af-
ar umhugsunarvert.
Ennfremur hljóta menn að stað-næmast við þá ákvörðun bank-
ans að setja mág forstjóra 365, út-
gefanda Fréttablaðsins, í stöðu
stjórnarformanns eignarhalds-
félags Haga, 1998.
Bankinn segist hygla fyrri eig-endum við söluna á Högum í
þeim tilgangi að auka verðmæti
fyrirtækisins. Hvernig kemur það
heim og saman við það að þeir hafi
misnotað fyrirtækið með þessum
hætti í þágu fyrirtækja í sinni eigu?
Verða fjárfestar spenntir fyrir þvíað koma inn í Haga undir
óbreyttri forystu félagsins til að
styrkja fyrrverandi eigendur á öðr-
um vettvangi?
Grímulaus misnotkun
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 0 skýjað Lúxemborg 3 skýjað Algarve 15 léttskýjað
Bolungarvík -2 snjókoma Brussel 3 skýjað Madríd 7 skýjað
Akureyri 0 alskýjað Dublin 4 léttskýjað Barcelona 13 léttskýjað
Egilsstaðir -1 alskýjað Glasgow 3 léttskýjað Mallorca 12 skúrir
Kirkjubæjarkl. 3 alskýjað London 5 léttskýjað Róm 15 skýjað
Nuuk 2 léttskýjað París 7 léttskýjað Aþena 16 skýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað Amsterdam 3 skýjað Winnipeg -10 snjókoma
Ósló -11 skýjað Hamborg 5 skýjað Montreal -5 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 þoka Berlín 5 heiðskírt New York 4 alskýjað
Stokkhólmur -8 snjókoma Vín 4 skýjað Chicago -1 léttskýjað
Helsinki -14 snjókoma Moskva -6 snjókoma Orlando 13 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
20. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.43 0,8 9.47 3,4 16.03 0,9 22.14 3,4 9:06 18:18
ÍSAFJÖRÐUR 5.47 0,5 11.41 1,8 18.12 0,5 9:20 18:14
SIGLUFJÖRÐUR 2.06 1,1 8.08 0,3 14.33 1,1 20.28 0,4 9:03 17:57
DJÚPIVOGUR 0.57 0,4 6.51 1,7 13.06 0,4 19.16 1,7 8:38 17:45
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Norðaustan 8-13 m/s og snjó-
koma með köflum norðan- og
austanlands, en annars létt-
skýjað. Frost 0 til 8 stig, mest í
innsveitum.
Á mánudag, þriðjudag, mið-
vikudag og fimmtudag
Norðan- og norðaustanátt, víða
8-13 m/s él eða dálítil snjó-
koma, en bjart með köflum
sunnan- og vestanlands. Frost
yfirleitt 1 til 10 stig, minnst við
suðurströndina.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustan 5-10 m/s og víða
dálítil él en norðan 10-13 m/s
og snjókoma austanlands.
Frost 0 til 7 stig, minnst syðst.
RANNSÓKNABORANIR í Gjá-
stykki í Þingeyjarsveit munu tíma-
bundið rýra verndargildi svæðisins
en ekki framtíðargildi þess, að sögn
Skipulagsstofnunar. Fram kom í yf-
irlýsingu hennar í gær að allar for-
sendur ættu að verða til þess að
hægt yrði að afmá ummerki fyr-
irhugaðra rannsóknaborana.
Skipulagsstofnun álítur jarð-
fræðilega sérstöðu Gjástykkissvæð-
isins á lands- og heimsvísu óumdeil-
anlega og verndar- og fræðslugildi
þess einnig hátt. Fyrirhugaðar
framkvæmdir við rannsóknaboranir
komi til með að hafa nokkuð nei-
kvæð og varanleg áhrif á Kröflu-
eldahraun en aðeins á afmörkuðu
svæði. Á framkvæmdatíma verði
nokkuð neikvæð áhrif á svæði sem
skilgreina megi sem víðerni. Sjón-
ræn áhrif fyrirhugaðra fram-
kvæmda verði einnig neikvæð fyrir
ferðamenn.
„Skipulagsstofnun vill leggja
áherslu á að í þessu máli er verið að
meta umhverfisáhrif af rann-
sóknaholum á einum skilgreindum
borteig á Gjástykkissvæðinu en ekki
af hugsanlegri orkunýtingu á svæð-
inu með tilheyrandi mannvirkjum.
Ljóst er að neikvæð áhrif virkjunar
á svæðinu yrðu allt annars eðlis og
mun neikvæðari á marga umhverf-
isþætti en fyrirhugaðar fram-
kvæmdir vegna rannsóknaborana,“
segir í tilkynningu frá stofnuninni.
Tímabundin spjöll geta orðið vegna borana
Skipulagsstofnun segir hægt að afmá
rask eftir tilraunaboranir í Gjástykki
Morgunblaðið/BFH
Leit Borað í Gjástykki.