Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 31
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er not-
að er nóg að slá inn netfang og lyk-
ilorð og er þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt en boðið er upp á birtingu
lengri greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010
HINN 9. febrúar
sl. var alþjóðlegi net-
öryggisdagurinn
haldinn hátíðlegur af
SAFT. Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu
er einn af svoköll-
uðum bakhjörlum
SAFT. Yfirskrift
málþings sem haldið
var af þessu tilefni
var „Hugsaðu áður
en þú sendir“ sem er þörf áminn-
ing í því netvædda samfélagi sem
börnin okkar alast upp í. Þó að
netið hafi marga kosti er ljóst að
með tilkomu þess opnast nýir
möguleikar fyrir þá sem hafa illt í
hyggju. Netið er hins vegar ekki
hættulegt í sjálfu sér. Það er
hvernig það er notað sem skiptir
máli.
Einstaklingur er barn til 18 ára
aldurs. Þar til að þeim aldri er
náð ber foreldrum að vernda barn
sitt og leiðbeina því. Mörgum
finnst það þrautinni þyngri, sér-
staklega þegar barninu finnst það
löngu orðið „fullorðið“. Í almenn-
um hegningarlögum eru ákvæði
sem miða að því að vernda börn.
Brot fullorðinna gegn börnum
þykja sérstaklega vítaverð enda
er aðstöðumunurinn þá augljós.
Það ákvæði almennra hegning-
arlaga sem ástæða þykir að vekja
sérstaka athygli á er 1. mgr. 202.
gr. almennra hegningarlaga: Hver
sem hefur samræði eða önnur
kynferðismök við barn, yngra en
15 ára, skal sæta fangelsi ekki
skemur en 1 ár og allt að 16 ár-
um. Lækka má refsingu eða láta
hana falla niður ef gerandi og þol-
andi eru á svipuðum aldri og
þroskastigi. Þetta er eitt þeirra
ákvæða sem varðar þyngstri refs-
ingu samkvæmt lögunum. Sam-
þykki í þessu sambandi skiptir
engu máli því að ákvæðið er for-
takslaust hvað varðar aldurinn.
Sönnun lýtur hins vegar að því
hvort að sá sem borinn er sökum
hafi vitað eða mátt vita um aldur
barnsins. Það eru þó engin laga-
ákvæði sem geta ein og sér varið
barnið þitt. Viðbrögð þess við
áreiti geta hins vegar skipt sköp-
um.
Lögreglan hefur í auknum mæli
orðið vör við þátt netsins og þá
sérstaklega notkun msn og fé-
lagssíðna í tengslum við kynferð-
isbrot. Afar algengt er að stofnað
sé til persónulegra kynna á net-
inu en almennt séð er hinn nýi
samskiptamáti ungmenna í gegn-
um netið. Eins og fram kom í er-
indi mínu búa ungmenni í dag yfir
miklu sjálfstrausti og eru óhrædd
við að láta skoðanir sínar í ljós.
Reyndin virðist hins vegar vera
önnur þegar kemur að kynferðis-
málum. Augljóst er að stúlkur
skortir hæfni til að láta í ljós
raunverulegan vilja sinn og að
setja mörk. Þær ganga langt til
þess að þóknast piltum ekki síst
ef þær hafa gefið eitthvað sterk-
lega í skyn í netsamskiptum. Pilt-
arnir á hinn bóginn hafa ekki fyr-
ir því að velta þessu fyrir sér og
liggi skýr afstaða stúlkunnar ekki
fyrir túlka þeir þögn hennar sem
samþykki. Börn á Ís-
landi byrja snemma
að stunda kynlíf. Upp
úr 12 ára aldri vakn-
ar fyrir alvöru for-
vitni hjá þeim um hitt
kynið. Þau kynferð-
isbrotamál sem valda
vaxandi áhyggjum
eru mál þar sem ger-
andinn er ekki mikið
eldri en þolandinn.
Þau eru jafnan svolít-
ið öðruvísi en þau
mál þar sem misneyt-
ingin er augljós. Ungmennum á
aldrinum 15-17 ára finnst sjálfum
þau vera ákaflega reynd á kyn-
ferðissviðinu. Miðast það þá við
að þau hafi „prófað svo mikið“.
Hins vegar eru hugmyndir þeirra
um kynlíf oft afskræmdar og það
sem þau hafa reynt á þessu sviði
því í samræmi við það. Það má
því spyrja sig hvort að hinn nýi
samskiptamáti, þ.e. í gegnum net-
ið, hafi brenglað getu og færni
barna til að senda og móttaka
skilaboð þegar staðið er upp frá
tölvunni. Það er nauðsynlegt að
kenna börnum snemma að bera
ábyrgð og að gera kröfur til
þeirra. Hvort sem stúlkur eða
piltar eiga í hlut þá þarf að leggja
áherslu á að þau beri virðingu
fyrir sjálfum sér og öðrum. Það
er mikill skaði skeður ef börn fá
skakka mynd af því sem er eðli-
legt.
Almenn vitundarvakning um
málefni ungmenna er nauðsynleg.
Öll fræðsla þarf hins vegar að
byrja á heimilinu. Í eðlilegum
samskiptum og hefðbundinni um-
ræðu á heimilum á að vera heil-
mikil leiðsögn fólgin. Foreldrar
þurfa að vera í stakk búnir til að
ræða við börn sín um kynferð-
ismál og svara spurningum
þeirra. Það hefur sýnt sig að það
er ekki sjálfgefið að börn leiti til
foreldra sinna ef þau telja að
brotið hafi verið gegn þeim.
Ástæðan getur verið sjálfsásökun,
skömm, tangarhald sem gerand-
inn hefur á barninu eða algjört
úrræðaleysi. Kynfræðingar benda
á að þau börn sem hlotið hafa
fræðslu hjá foreldrum sínum séu
mun betur í stakk búin til þess að
taka skynsamlegar ákvarðanir í
sambandi við kynferðismál.
Kynfræðsla í skólum landsins
ætti að vera fyrr á ferðinni og
markvissari. Kenna þarf börnum
merkingu hugtaka mjög snemma
og stuðla þannig að því að þau
geti greint mörkin á milli þess
sem er eðlilegt og þess sem er
það ekki. Enn er á brattann að
sækja þegar við skoðum hinar
svokölluðu fyrirmyndir í dag þar
sem kynþokkinn er allsráðandi,
stúlkurnar fáklæddar og viljugar
og piltarnir drottna yfir þeim.
Þetta sjáum við í blöðunum, í tón-
listarmyndböndum, kvikmyndum
og í lagatextum. Þá er klámefni
aðgengilegra en nokkru sinni
fyrr. Þetta vekur mann til um-
hugsunar um þann heim sem við
lifum og hrærumst í í dag. Allt tal
um að kreppan eigi eftir að
þjappa fjölskyldunni saman og
rifja upp hin góðu gildi held ég að
sé að engu hafandi ef menn velta
þessu ekki fyrir sér.
Kynferðisbrot
og unga fólkið
Eftir Sigríði
Hjaltested
»Einstaklingur er
barn til 18 ára ald-
urs. Þar til að þeim aldri
er náð ber foreldrum að
vernda barn sitt og leið-
beina því.
Sigríður Hjaltested
Höfundur er aðstoðarsaksóknari í
kynferðisbrotamálum hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu.
Gospelkirkja sunnudag
kl. 20
Kafteinarnir Rannvá Olsen og
Sigurður H. Ingimarsson ásamt
fleirum syngja og spila.
Heimilasamband fyrir konur
mánudag kl. 15.
Samkoma fimmtudag kl. 20
«Orðið í öndvegi».
Ræðumenn: Kommandörarnir
Guðrún og Carl Lydholm.
Auglýsing frá barnamenningarsjóði
Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á
sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast
verkefni á sviði lista og menningar sem unnin
eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.
Umsóknir skulu berast mennta- og menningar-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
síðasta lagi 22. mars 2010. Umsóknareyðublöð
fást hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu
og á vef ráðuneytisins, menntamalaradu-
neyti.is.
Stjórn Barnamenningarsjóðs,
19. febrúar 2010.
Á morgun verður sunnu-
dagaskóli frá kl. 11-12 með
söng, kennslu og léttu snarli.
Kl. 14 verður almenn samkoma
þar sem verða vitnis-
burðir, lofgjörð, barnastarf
og brauðsbrotning.
Kaffi og samvera að samkomu
lokinni og verslun kirkjunn-
ar opin. Allir velkomnir!
Styrkir
Til sölu
Til sölu Gerður 1125
Stærð 169,67 brl. með öllum búnaði, sem í
skipinu er, þ.m.t. beitingarvél. Skipið selst
þar sem það er í skipasmíðastöð Njarðvíkur
og ,,as is and where is”.
Upplýsingar veitir ÓlafurThóroddsen hrl.,
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík, bláu
húsin. Sími: 847 4678.
olafurthoroddsen@simnet.is
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð
Sunnudag 21. febrúar.
Samkoma kl. 17.00.
,,Að fyrirgefa sjálfum sér”.
Ræðumaður Margrét Jóhannes-
dóttir. Lofgjörð, fyrirbæn og
barnastarf.
Allir velkomnir.
Samkomur í Hvítasunnu-
kirkjunni Fíladelfíu sunnudaginn
21. febrúar:
Kl. 11.00 Samkoma með starfi
fyrir alla aldurshópa. Brauðs-
brotning. Ræðumaður er Vörður
LevíTraustason. Verslunin Jata
er opin eftir samkomu.
Kl. 13.00 Alþjóðakirkjan. Sam-
koma á ensku. Helgi Guðnason
prédikar.
Kl. 16.30 Alfasamkoma. Mikil
lofgjörð og vitsnisburðir. Vörður
LevíTraustason prédikar.
21.2. Stokkseyri - Rjómabúið
á Baugsstöðum
Brottför frá BSÍ kl. 09:30.
V. 4400/5600 kr.
Vegalengd 8 km. Hækkun engin.
Göngutími 3-4 klst. Fararstjóri
Bjarki Sveinbjörnsson.
27. - 28.2. Bláfjöll - Kleifar-
vatn - Kaldársel
Nr. 1002H02
Úr Bláfjöllum liggur leiðin um
Brennisteinsfjöll að skátaskála
Hraunbúa í Hverahlíð við Kleifar-
vatn.
26. - 28.2. Strútur - jeppaferð
Brottför: kl. 19:00.
V. 11.000/13.000 kr.
Nr. 1002J03
Þátttaka háð samþykki
fararstjóra. Fararstjóri Benedikt
Hálfdánarson.
www.utivist.is / utivist@utivist.is
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
Forritari
- spennandi framtíðarstarf
Keldan leitar að hugmyndaríkum og metnaðarfullum forritara
sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun á vefnum www.keldan.is
og tengdum verkefnum sem snúa að viðskiptum og
fjármálaþjónustu.
Hæfniskröfur eru:
• Amk 3ja ára reynsla af forritun
• Góð reynsla af Java, MySQL, PHP, HTML, JavaScript, CSS,
auk helstu vefþjóna, þ.e. Apache og Tomcat
• Þekking á Spring/Hibernate og Maven mikill kostur
• Reynsla af vefþjónustum og samþættingu hugbúnaðarkerfa
• Þekking og reynsla af Linux og Windows
Í boði er fjölbreytt og skapandi starf í krefjandi vinnuumhverfi.
Ekki spillir fyrir ef umsækjandi kann á hljóðfæri eða er lærður
sushi-kokkur.
Nánari upplýsingar veita Óskar Sturluson (oskar@keldan.is) í
síma 585 1712/860 2848 eða Guðmundur Birgisson
(gudmundur@keldan.is) í síma 510 1053/897 3787.
Keldan er upplýsinga- og viðskiptavefur fyrir íslenska fjármála-
markaðinn. Markmið Keldunnar er að veita á einum stað aðgang
að öllum upplýsingum sem nauðsynlegar eru í viðskiptum og
fjármálastarfsemi og tryggja þannig gegnsæi og stuðla að
samkeppni á markaði.
Keldan ehf., kt. 491009-0200, Skólavörðustíg 11, 101 Reykjavík, annast þróun og
rekstur www.keldan.is Keldan er skrásett vörumerki. Hægt er að hafa samband við
Kelduna með því að senda tölvupóst á info@keldan.is eða í síma 510 1050.
Kelda þýðir m.a. fen, uppspretta eða veita. Til forna fólu menn fé sitt og fjársjóði í
keldum sbr. frásagnir af Geirmundi heljarskinni í Landnámu og Skallagrími Kveld-
Úlfssyni í Egils sögu.
Þekking veit á verðmæti
www.keldan.is