Morgunblaðið - 20.02.2010, Síða 39
Minningar 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010
✝ Jóna Einarsdóttirfæddist í Reykja-
vík 4. apríl 1927. Hún
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi við
Hringbraut í Reykja-
vík 10. febrúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Einar
Jónsson í Túni á Eyr-
arbakka, f. 1887, d.
1929, og Halldóra
Bjarnadóttir, f. 1900,
d. 1932. Albróðir
Jónu er Bjarni, f.
1920, d. 1996, sam-
feðra Sólborg Einarsdóttir, f. 1910,
d. 1980, Guðmundur Einarsson, f.
1911, d. 1999, og Jón Einarsson, f.
1932, d. 1992.
Jóna giftist 13. maí 1948 Gunnari
Sigurðssyni, f. 7. október 1915, d.
27. mars 2005. Foreldrar hans voru
Sigurður Otúelsson, bóndi, f. 31.
ágúst 1869, d. 3. nóvember 1954, og
Erlendína Erlendsdóttir, f. 13. júlí
1870, d. 3. desember 1967. Börn
Jónu áður en hún giftist Gunnari
eru 1) Einar Guðbjörn, f. 11. októ-
ber 1944, var kvæntur Ingibjörgu
Bjarnadóttur og eiga þau þrjú
börn. 2) Herbert, f. 21. febrúar
1946, sambýliskona hans er Sess-
elja Jónsdóttir og á hann fjögur
börn.
Jóna dvaldi fram undir tvítugt í
Reykjavík. Eftir það fór hún með
tvo unga syni sína vestur á Mýrar
og gerðist kaupakona árið 1946 á
Leirulæk í Álftaneshreppi. Fljót-
lega eftir það kynntist hún verð-
andi eiginmanni sínum. Jóna bjó
eftir það í Leirulækjarseli í Álfta-
neshreppi þangað til hún og Gunn-
ar fluttu búferlum í Borgarnes
haustið 2004.
Jóna var alla tíð húsmóðir með
stórt heimili og mörg börn en í
nokkur ár fór hún þó að vinna í slát-
urhúsinu í Borgarnesi á haustin til
að drýgja tekjurnar. Hún var fyrir-
myndarhúsmóðir en lét eiginmanni
sínum og börnum eftir að sjá um
búskapinn og jörðina.
Jóna verður jarðsungin frá Borg-
arneskirkju í dag, 20. febrúar 2010,
og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett
verður á Borg á Mýrum.
Jónu og Gunnars eru
1) Sigurður, f. 3. nóv-
ember 1948, sam-
býliskona hans er
Dómhildur Jóns-
dóttir. 2) Reynir, f. 9.
desember 1949, d. 9.
október 2008, kvænt-
ur Eddu Björk Hauks-
dóttur og eiga þau
þrjú börn. 3) Margrét,
f. 2. maí 1951, gift
Guðmundi Þór Hann-
essyni og eiga þau
fjögur börn. 4) Hall-
dór, f. 20. júní 1953, d.
22. janúar 2006, kvæntur Ragnheiði
Guðnadóttur og eiga þau fjögur
börn. 5) Svala, f. 14. maí 1955, gift
Pétri Vigfússyni og eiga þau þrjú
börn. 6) Gunnar Erlendur, f. 24.
nóvember 1961, sambýliskona hans
er Guðný Margrét Ingvadóttir og
eiga þau fjögur börn. 7) Hafliði
Ólafur, f. 30. apríl 1963, sambýlis-
kona hans er Kolbrún Alma Rafns-
dóttir og eiga þau fimm börn. Synir
Elsku besta amma mín nú ert þú
horfin frá okkur og komið að kveðju-
stund. Ég bjóst ekki við að hún kæmi
alveg strax því þú varst svo hress
þegar þú varst hjá mömmu og pabba
yfir áramótin. Ég man síðasta daginn
sem ég hitti þig þar, þá varstu að
fylgjast með mynd sem heitir Christ-
mas Vacation í sjónvarpinu og þú
varst alveg að springa úr hlátri, ég
fylgdist með þér úr eldhúsinu og
brátt var ég farin að hlæja líka því þú
skemmtir þér svo vel, það var ynd-
islegt enda varst þú mikill húmoristi.
Síðustu ár hefur samband okkar
verið afar gott og minnist ég sérstak-
lega ferða minna til þín á sumrin og
sögustundanna sem ég fékk fyrir
svefninn þegar við töluðum saman
um heima og geima langt fram eftir
nóttu. Ég á eftir að sakna þín rosa-
lega mikið, þú varst skemmtileg
amma og alltaf góð við mig og ég
hlakka til að segja börnunum mínum
frá þér. Núna get ég huggað mig við
það að vita af þér í faðmi afa og strák-
anna þinna. Ég mun aldrei gleyma
þér, megir þú hvíla í friði amma mín.
Telma Guðmundsdóttir.
Ég var einstaklega heppin að fá að
alast upp í bara 10 km fjarlægð frá
ömmu og afa, það brást ekki að þegar
við komum í heimsókn var dekrað við
mann eins og þau gátu. Stundum á
sumrin fórum við systurnar hjólandi
eða á hestum til þeirra og þá stóð
amma oft úti á tröppum og tók á móti
okkur eins og höfðingjar væru að
koma í heimsókn.
Amma var mikið fyrir sjónvarp og
kom manni inn í helstu sápuóperur
landsins og var hæstánægð ef maður
spurði hvað væri að gerast.
Mér er það minnisstætt þegar við
systurnar gistum hjá henni eitt skipt-
ið og hún leyfði okkur að horfa á
bannaða mynd og mér fannst það al-
veg frábært.
Þegar ég kláraði grunnskólann fór
ég í fjölbraut, ég vildi ekki fara á
heimavist þannig ég fékk að búa hjá
ömmu. Við áttum dásamlega tíma,
mér fannst ótrúlegt að amma notaði
ekki vekjaraklukku en vaknaði samt
alltaf með mér, ég fékk alltaf gott að
borða og nokkrum sinnum eldaði ég
fyrir hana nýmóðins mat eins og hún
kallaði það.
Dvöl mín var því miður ekki löng
því pabbi féll frá í janúar og ég þráði
að vera heima hjá mömmu, en þótt
tíminn hafi ekki verið langur saman
þá gerði það okkur mjög nánar.
Elsku amma, takk fyrir dásamleg-
ar stundir saman.
Þín
Guðrún Halldórs.
Elsku amma mín og nafna. Nú ertu
farin til afa og sona þinna tveggja
Halldórs og Reynis sem dóu langt
fyrir aldur fram. Ég finn fyrir sorg
en jafnframt hefði ég ekki viljað sjá
þig kveljast og fjara út á löngum
tíma. En dauða þinn bar frekar brátt
og óvænt að. Mér fannst þú svo falleg
og skemmtileg kona. Þú gast talað og
talað um allt og ekkert en samt
varstu frekar lokuð og sýndir ekki
alltaf hvernig þér leið. Ég á góðar
minningar úr sveitinni þegar ég byrj-
aði ung að árum að koma til þín og
afa. Þú varst alltaf að baka, elda eða
þrífa. Enda fannst mér þú hafa mikið
fegurðarskyn og vildir alltaf hafa allt
hreint og fallegt í kringum þig. Þú
varst glæsileg kona og hugaðir vel að
útliti þínu og vildir vera fallega til
fara. Ein minning er mér ofarlega í
huga, þegar afi datt fyrir utan
sjúkrahúsið á Akranesi í ljósu bux-
unum sínum, þá hafðir þú nú ekki
áhuga á að vita hvort hann hefði
meitt sig heldur voru buxurnar aðal-
áhyggjuefnið. Síðan hlóguð þið bæði
dátt. Mér fannst þið samrýnd hjón en
mjög ólík og þótt ólík væruð var ótrú-
leg virðing og væntumþykja gagn-
vart hvort öðru. Ég get ekki ímyndað
mér að líf þitt hafi alltaf verið auðvelt,
að flytja yfir í sveitina og ala upp níu
börn og búa í litlu gömlu húsi. En
þetta gerðir þú og ég held að ég hafi
aldrei heyrt þig kvarta yfir því. Þú
sagðir einu sinni við mig að þig lang-
aði oft í marga fallega hluti en þú
bæðir aldrei afa um þá því þú vissir
að það væru ekki til peningar fyrir
þeim. Ein minning er mér líka mjög
kær en það var eftir að ég átti Mar-
gréti mína, þá fann ég fyrir einhverri
vanlíðan og var sívælandi. Þá komstu
og tókst mig inn í herbergi og sagðir
við mig með hárri röddu að ég væri
heppin að eiga heilbrigða stúlku og
það hefðu margir haft það verra en
ég. Eftir það hætti ég þessu væli. Ég
held að það sé það besta sem ég hef
gert fyrir þig hafi verið þegar ég kom
í Borganes með kettling án þess að
spyrja þig hvort þú vildir hann eða
ekki. Og það sem þessi köttur og af-
komendur hans veittu þér mikla gleði
og ánægju kom mér mér líka
skemmtilega á óvart.
Jæja, amma mín, ég vil þakka þér
fyrir að hafa alltaf verið mér góð, tek-
ið mér eins og ég er og þannig ætla ég
að minnast þín. Mér þykir óendan-
lega vænt um þig og votta ég börn-
unum og barnabörnunum og öðrum
aðstandendum mína dýpstu samúð.
Þín,
Jóna Guðrún.
Jóna Einarsdóttir
• Kransar
• Krossar
• KistuskreytingarHverafold 1-3 • Sími 567 0760
Fallegar útfararskreytingar
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn
16. febrúar.
Birna Björnsdóttir, Bragi Gíslason,
Rannveig Björnsdóttir, Þórarinn Flosi Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
STEINDÓR JÓNSSON
bifvélavirki,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópa-
vogi þriðjudaginn 16. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Grímur Marinó Steindórsson,
Dóra Steindórsdóttir, Þorvaldur Ingólfsson,
Hrafn Steindórsson, Margrét Johnsen,
barnabörn og aðrir afkomendur.
✝
Okkar ástkæra
ÁSDÍS KARLSDÓTTIR,
Klapparstíg 13,
Njarðvík,
áður til heimilis
Álfaskeiði 81, Hafnarfirði,
andaðist á Sjúkrahúsi Keflavíkur miðvikudaginn
10. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Grímur Karlsson,
Áslaug Karlsdóttir,
Hulda Karen og Sigríður Dúa.
✝
Ástkær frændi okkar,
GUÐMUNDUR E. JÓHANNSSON,
Hátúni 12,
áður Kleppsvegi 90,
Reykjavík,
lést á heimili sínu aðfaranótt miðvikudagsins
17. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hörður Óskarsson,
Steinn Ragnarsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
frá Seljalandi,
Eyjafjöllum,
Rang.,
andaðist á Lundi þriðjudaginn 9. febrúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Lundar Hellu.
Hulda Kragh, Steinar Ragnarsson,
Kristín Kragh,
Kristján Ólafsson, Halldóra Hjartardóttir,
Olga Ólafsdóttir, Valgarður Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG JÓNATANSDÓTTIR,
Bröttugötu 2,
Borgarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn
18. febrúar.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn
26. febrúar kl. 14.00.
Jón S. Pétursson,
Jakobína S. Stefánsdóttir, Sverrir Hjaltason,
Pétur V. Hannesson, María E. Guðmundsdóttir,
Friðþjófur Th. Ruiz, Birna R. Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
STEFÁN VEIGAR STEINSSON,
Arnarhvoli,
Dalvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 16. febrúar.
Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn
27. febrúar kl. 13.30.
Símon Páll Steinsson, Sigurlaug Stefánsdóttir,
Sigurlína Steinsdóttir, Samúel M. Karlsson
og systkinabörn.