Morgunblaðið - 20.02.2010, Page 45

Morgunblaðið - 20.02.2010, Page 45
Minningar 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 Stella frænka eins og ég kallaði hana var partur af lífi mínu eins lengi og ég man eftir. Alltaf þeg- ar ég kom sem barn til Keflavíkur til að heimsækja afa og ömmu á Túngötunni kom Stella frænka færandi hendi til að gleðja litlu frænku sína frá Hellissandi. Það voru margar dúkkulísurnar, lita- bækurnar og litir sem fóru með litlu frænkunni í gegnum árin á Sand. Tími okkar saman tekur yfir mörg ár. Ég man eftir því þegar Stella og Biggi, eins og ég kallaði þau alltaf, eignuðust Telmu og Snorra. Fáa foreldra þekki ég sem voru eins stolt af börnum sínum og þau. En einhvern veginn var það svo að þótt Stella hefði mikið að gera í gegnum tíðina hafði hún alltaf tíma fyrir ættingjana, hún gaf alltaf mikið af sér og alltaf fannst mér að ég skipti hana máli. Hún hafði þann eiginleika að láta fólki finnast það skipta einhverju máli og hún gaf því tíma, hlýju og áhuga sem fáir hafa tíma fyrir í dag. Þegar ég var að eiga börnin mín tvö fluttum við tvisvar inn á Stellu og Bigga, börnin létu bæði bíða eftir sér í tvær vikur og var tíminn í bæði skiptin nýttur vel með þeim hjónum og ættingjum, sérstaklega í fyrra skiptið áttum við góðan tíma með ömmu minni Þóru, móð- ur Stellu, sem lést skömmu síðar. Allan þennan tíma leið manni eins og einni af fjölskyldunni og aldrei fannst manni maður vera fyrir eða trufla. Við Stella skemmtum okkur vel yfir matargerðinni og prófuð- um hina ýmsu rétti. Verð ég þeim hjónum ævinlega þakklát fyrir þessa gestrisni og þær góðu stund- ir sem við áttum saman. Ég á ekkert nema góðar minn- ingar um Stellu frænku. Hún var ótrúlega lífsglöð kona og það virk- aði eins og henni fyndist lífið vera ótrúlega spennandi ferðalag, alltaf eitthvað spennandi handan við hornið, og það má segja með sanni að þar var kona sem lifði lífinu lif- andi. Tók þátt í lífinu, hafði mikinn Stella Olsen ✝ Stella Olsen fædd-ist í Keflavík 21. febrúar 1946. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 9. febrúar 2010. Stella var jarð- sungin frá Keflavík- urkirkju 18. febrúar sl. áhuga á samferða- fólki sínu og hélt vel utan um fjölskyldu, vini og ættingja. Ég mun alltaf muna hláturinn og kraftinn sem fylgdu henni ætíð. Ég fylltist auðmýkt þegar ég var með henni og fjölskyld- unni síðustu dagana á líknardeildinni. Þarna lá þessi lífs- glaða frænka mín og þrátt fyrir hræðilega erfitt ár fyrir hana og fjölskylduna var hún ekki brotin, aðeins beygð. Þótt þetta væru hennar síðustu dagar hafði hún enn áhuga á með- bræðrum sínum, vildi vita hvað Karen ætlaði að skíra stúlkuna sem hún á að eiga í apríl. Aldrei heyrði ég Stellu vorkenna sér þetta ótrúlega erfiða ár. Hún hélt upp á 43 ára brúðkaupsafmæl- ið sitt á líknardeildinni og ég hugs- aði með mér þegar ég horfði á Bigga hjúkra henni, að hjónaband er ekki úrelt stofnun. Þarna var þessi yndislegi maður, sem verið hafði henni samferða í gegnum líf- ið í gegnum skin og skúrir, og hjúkraði henni af slíkri alúð. En það sem snart mig mest var ást- úðin og virðingin sem skein úr augum hans þegar hann horfði á hana. Elsku Biggi, Telma og fjölskylda og Snorri og fjölskylda, missir ykkar er mikill, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Þóra og fjölskylda. Hún Stella er gengin á brott langt um aldur fram. Skammdegið er dekkra og erfiðara fyrir vikið, en orðstír hennar og minning lýsa okkur leið. Á þessari stundu koma upp margar minningar um góðan vin. Kynni okkar hófust fyrst þeg- ar Stella hóf störf á skrifstofu Sjúkrahúss Suðurnesja árið 1974 að mig minnir. Það var á þeim ár- um sem sérhæfing var minni en nú. Stella gekk í öll skrifstofustörf eins og bókhald og launagreiðslur og iðulega tók hún skrifstofuna að sér þegar forstjórar þurftu að bregða sér af bæ. Þessum störfum gegndi hún af trúmennsku í yfir 20 ár. Á þessum árum var ég deild- arstjóri fæðingardeildar sjúkra- hússins. Stella vann oft á kvöldin og um helgar þegar hún þurfti að ganga frá áríðandi málum, hún taldi það ekki eftir sér, enda bar hún hag sjúkrahússins fyrir brjósti. Þá voru samskipti með öðrum hætti en í dag þar sem tölvupóstur er notaður til að koma boðum á milli manna. Oft var þá sest niður og málin rædd. Mér þótti alltaf gott að leita til Stellu með það er starfið varðaði. Þannig tókst með okkur innileg og góð vinátta. Hún var sérstaklega góð heim að sækja enda afburða gest- risin og var því vinmörg. Í erfiðum veikindum sínum síð- ustu misseri sýndi hún mikla þrautseigju. Hún bauð og mætti til mannfagnaðar þó svo að hún sjálf gæti ekki notið matar né drykkjar, hennar næring var að vera með ástvinum og kunningjum. Lyndiseinkenni Stellu var að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Það sýndi hún í baráttu sinni við illvígan sjúkdóm. En eng- inn fær flúið sitt dauðstríð eins og Stefán Hörður Grímsson kvað. Með Stellu kveður góð kona. Henni vil ég þakka allar okkar góðu stundir. Harmur ættingja er mikill. Kæri Birgir, Telma, Snorri, tengdabörn og aðrir ástvinir, ykk- ur votta ég mína dýpstu samúð og bið góðan Guð um styrk ykkur til handa. Sólveig Þórðardóttir. ✝ Guðný Þorvalds-dóttir fæddist á Deplum í Stíflu 24.1. 1929. Hún lést á Land- spítalanum við Hring- braut 20. janúar sl. Guðný var ein af fimm börnum hjónanna Þorvaldar Guðmundssonar, f. 10.5. 1899 á Þrasa- stöðum í Stíflu, d. 21.7. 1989, og Krist- jönu Magnúsdóttur, f. 26.9. 1899, frá Skuggabjörgum í Deildardal, d. 27.5. 1989. Systkini hennar eru Guðmundur, f. 27.12. 1921, d. 12.3. 2007; Magnús, f. 24.4. 1924, d. 24.8. 2004; Anna Sjólaug, f. 7.3. 1939, d. 5.11. 1967, og Hörður, f. 12.11. 1942. Guðný giftist 7.11. 1958 eftirlif- andi eiginmanni sínum, Eiríki Ás- geirssyni, f. 7.11. 1933 á Þorfinns- stöðum í Önundarfirði, sonur Ásgeirs G. Guðmundssonar, f. 9.9. 1912, d. 29.8. 1987, og Ingibjargar Jóhannesdóttur, f. 27.12. 1913, d. 11.7. 2006. Eiríkur gekk þremur dætrum Guðnýjar í föðurstað, auk þess sem þau eignuðust þrjú börn saman. Börnin þeirra sex eru Krist- jana Björk, f. 19.7. 1952, maki Sig- urður G. Gunnarsson, f. 27.9. 1952, börn þeirra 1) Gunnar, f. 22.6. 1976, 2) Jóhanna, f. 17.8. 1978, 3) Anna María, f. 7.1. 1984; Kolbrún, f. 26.8. 1953, maki (skildu) Skúli Skúlason, f. 1.6. 1942, börn þeirra 1) Dagný, f. 25.12. 1980, 2) Guðný, f. 5.2. 1984; Bára, f. 24.6. 1955, maki Krist- ján Rúnar Krist- jánsson, f. 8.5. 1953, d. 18.8. 2006, börn þeirra 1) Guðný Helga, f. 30.1. 1973, 2) Guðrún Sigríður, f. 26.10. 1974, 2) Svein- björg, f. 25.4. 1981, 4) Kristjana Rúna, f. 2.9. 1983; Guðmundur Ás- geir, f. 6.8. 1957, maki Elínborg W. Halldórsdóttir, f. 5.8. 1956, börn þeirra 1) Halldór, f. 7.4. 1978, 2) Ásgeir Þór, f. 3.12. 1979; Ingibjörg, f. 6.5. 1962, maki Sig- urður Sigurðsson, f. 21.4. 1961 börn þeirra 1) Hildur Björk, f. 11.6. 1986, 2) Anna Guðný, f. 24.12. 1991, 3) Ey- rún Inga, f. 4.5. 1999; Anna Snjó- laug, f. 8.1. 1969, maki Einar Kr. Gíslason, f. 18.5. 1964, börn þeirra 1) Helena Dögg, f. 18.2. 2000, 2) María Dís, f. 19.12. 2001. Barnabarnabörn- in eru 15. Guðný ólst upp í foreldrahúsum á Deplum en fór ung að árum í vist til Reykjavíkur. Lengst af var hún heimavinnandi húsmóðir en starfaði síðar við ræstingar á Landspít- alanum. Síðustu starfsárin, eða til 65 ára aldurs, vann hún á dauð- hreinsunardeild spítalans. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Guð á hæðum gaf þér ástríkt hjarta gæfu lán og marga daga bjarta. Nú er sál þín svifin heimi frá sett til nýrra starfa Guði hjá. (B.B.) Margar góðar minningar koma upp í hugann er ég kveð tengdamóð- ur mína. Ég kom inn í fjölskylduna fyrir 34 árum og var vel tekið af tengdaforeldrum mínum. Það var alltaf gott að koma í kaffi til Guð- nýjar og mikið spjallað og hlegið. Hún vildi aldrei láta neitt hafa fyrir sér en hugsaði fyrst og fremst um að aðrir hefðu það gott. Það lýsir því best hvað hún sýndi mikið æðruleysi í sínum miklu veikindum, hún kvart- aði aldrei og hafði það alltaf ágætt þegar hún var spurð. Drengjunum mínum fannst alltaf gott að koma til ömmu, hún tók þeim opnum örmum og yfirleitt fengu þeir ís og annað góðgæti. Ég er þakklát fyrir þá gæfu að hafa kynnst Guðnýju. Elsku Ei- ríkur, Guð gefi þér styrk til að takast á við sorgina. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elínborg. Elsku amma, það er svo sárt að þurfa að kveðja þig. Ég hélt að þetta myndi bara gerast í draumi, slæmum draumi, og svo þegar ég vaknaði yrði allt eins og það var aftur. En svona er víst lífið. Ég veit að núna líður þér betur og ert á góðum stað þar sem englarnir vaka yfir þér. Ég á svo góðar minningar um þig sem ég mun aldrei gleyma. Alltaf fannst mér nú jafn gaman að koma til ykkar afa. Þegar ég var yngri hjólaði ég til ykkar hvern einasta dag og var hjá ykkur heilu klukku- tímana. Alltaf leið mér svo vel hjá ykkur. Oft sátum við við eldhúsborð- ið og spiluðum og fengum okkur kaffi, best fannst mér þegar ég fékk að gista, alltaf svo kósý að vakna daginn eftir og borða morgunmat og horfa á teiknimyndirnar. Svo þegar ég varð eldri kom ég í heimsókn og afi dekraði við okkur, gaf okkur með kaffinu á meðan við spjölluðum og hlógum inni í stofu. Það sem við gát- um talað. Það var svo gott að koma til þín, þú hafðir svo góða nærveru. Ég fór alltaf heim í góðu skapi og já- kvæð, þú hafðir þessi góðu áhrif á mig. Það er búið að vera svo erfitt að sjá þig svona veika. Þegar sjúkdóm- urinn tók öll völd og þú orðin svo máttfarin þá áttaði ég mig á hvað þú varst orðin lasin, en samt naustu hvers einasta dags. Stundum hugs- aði ég hvernig þú gætir verið svona jákvæð, brosandi, hlæjandi en samt svona mikið veik. Það var líka það sem hjálpaði þér svo mikið í veikind- unum. Þú hefur kennt okkur amma að gefast ekki upp þrátt fyrir erf- iðleika. Elsku góða amma mín. Það er svo erfitt að kveðja þig. Ég sakna þín svo mikið, mér mun alltaf þykja jafn vænt um þig og svo munum við hitt- ast aftur síðar. Það verða sko gleði- fundir. Ó, undur lífs, er á um skeið að auðnast þeim, sem dauðans beið – að finna gróa gras við il og gleði í hjarta að vera til. Hve björt og óvænt skuggaskil. Ei sá ég fyrr þau skil svo skýr. Mér skilst hve lífsins gjöf er dýr – að mega fagna fleygri tíð við fuglasöng í morgunhlíð og tíbrá ljóss um loftin víð. Og gamaltroðna gatan mín í geislaljóma nýjum skín. Ég lýt að blómi í lágum reit og les þar tákn og fyrirheit þess dags, er ekkert auga leit. Ég svara, Drottinn, þökk sé þér! Af þínu ljósi skugginn er vor veröld öll, vort verk, vor þrá að vinna þér til lofs ég má þá stund, er fögur hverfur hjá. (Þorsteinn Valdimarsson) Þín Anna Guðný. Guðný Þorvaldsdóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendi- kerfinu. Minningargreinar ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, ÖNNU MARÍU MAGNÚSDÓTTUR DANIELSEN frá Laugahvoli. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu á Vífilsstöðum fyrir góða umönnun. Ragnar Danielsen, Magnús Danielsen, Jóna A. Imsland, Arnbjörg María, Breki, Tara Þöll, Hans Gunnar, Guðbjörg Magnúsdóttir Thorarensen. ✝ Við þökkum þann hlýhug sem okkur var sýndur vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, RÓSU EIRÍKSDÓTTUR frá Dagsbrún, Neskaupstað. Elísabet Kristinsdóttir, Þórdís Kristinsdóttir, Kristinn Pétursson og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir okkar, MARÍA GUÐRÚN ÞORLÁKSDÓTTIR, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 28. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð. Sérstakar þakkir til starfsfólks á lungnadeild A-6 Landspítala Fossvogi. Fyrir hönd ástvina, Steinunn María Jónsdóttir, Árni Þór Jónsson. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, ÓLAFS KR. MAGNÚSSONAR fyrrv. skólastjóra, Bólstaðarhlíð 13, Reykjavík. Björg Jóhannsdóttir, Jóhann Ólafsson, Jeanne Miller, Sigrún Ólafsdóttir, Helgi Bergþórsson, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.