Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 34

Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 34
- 126 - Fennir í förumanns spor, fingur krepptir um stafinn. Drættir harðir, en dcpur augu. Dagur í myrkrinu grafinn. Stigið er þungt og stunið við, mót stormi er andlit hans. Löng er för, löng er bið, lífið er kvöl þessa manns. Hann sefur á snjóhvítum fjöllum og saga hans er gleymd okkur öllum. Skugginn á veggnum Veggur er veröld án dýptar. A veggnum er kvistur og gluggi. A veggnum er viðutan litmynd, á veggnum er mannanna skuggi. Þeir bíða og borga sín meðlög en bindandi"er eiðstafur svarinn. Svo er bankað og beoið um efndir, og bráðlega er skugginn farinn. J. O.M.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.