Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 11
- 103 -
*
Afturför ?
SM.R. hafa mörg, ef ekki flest
íslenzk andans stórmenni set-
ið skóla, og mörg þeirra hafa
einmitt byrjað að gefa sig að
andlegum hugðarefnum sínum
hér. Þykir þess vegna ekki undrun
sæta, þótt í 6. bekk megi finna efni í
skáld, listamenn, ræðuskörunga o. þ. h.
Má nefna mörg dæmi síðan í fyrra :
Böðvar Guðmundsson, Einar Már Jóns-
son, Olafur R. Grímsson o.m.fl.
Nú bregður hins vegar svo við, að
trúa nemenda,vita svo sárt af vanmætti
sínum, að það brýzt út í nokkurs konar
stórmennskubrjálæði og lítilsvirðingu
fyrir öðrum nemendum skólans. A ég
þar við menn, sem standa dauðadrukkn-
ir og röflandi niðri á "Skalla" og reyna
að auglýsa yfirburði sína yfir öðrum
með því að ausa óspart úr brunnum
sálarinnar andlegri speki, með því að
vitna 1 kvæði og skáldsögur, sem þeir
segjast hafa lesið. Vill því miður
stundum brenna við, að ein og ein ljóð-
lína skolist til í höndum þessara andans
stórmenna og er mér ekki grunlaust
ekki einn einasti maður í 6. bekk kemst
í hálfkvisti við þessa fornu kappa.
Hvað er að? Er áhugi á listum og öðr-
um andans efnum að þverra? Eða er
þetta aðeins óvenju þunnur árgangur,
sem nú situr 6. bekk?
"Rassia"
Kennarar hófu nýlega allsherjar sókn
gegn skrópasýki, sem töluvert hefur
gætt hér í vetur. Sagt er, að söngtím-
ar falli nú aldrei niður.
Félagsheimilið
Hagur félagsheimilisins íþöku tekur
nú að blómgast undir dugmikilli stjórn
Helga Jónssonar. Hefur Helga tekizt,
með hörku, að uppræta smástuldi með
öllu. Megum við vera honum þakklát
fyrir, hve föstum tökum hann tók mál-
inu. Heyrzt hefur, að gróði af heimil-
inu sé orðinn yfir 20 þusund kr. , það
sem af er vetri.
Yfirborðsmennska
Yfirborðsmennskamargra mennta-
skólanema keyrir nú úr hófi fram.
Margir þeir, sem telja sig andlega full-
um, að þekking þeirra á bókmenntunum,
sé lítið annað en titill bókar, höfundar-
nafn og ritdómar um hana. Þessir
menn ættu að taka það að sér að safna
ritdómum og úrdráttum úr bókum til þess
að dreifa meðal lýðsins, svo að hann
geti talist samkvæmishæfur meðal þess-
arra spekinga.
Jólagle ði
Jólagleði mun verða haldin hinn 28.
þessa mánaðar. Mun mikið verða
vandað til þeirrar skemmtunar eins og
venjulega. Verður hátíðin haldin bæði
í skólanum sjálfum og í íþöku, og munu
valinkunnar hljómsveitir leika fyrir
dansi.
Heyrzt hefur, að öl, gosdrykkir og
þessháttar, muni hækka í verði, til þess
að standa straum af kostnaði við
skemmtunina. Einnig mun verð að-
göngumiða hækka eitthvað frá fyrra ári.
Kjartan Thors
Notið j ólaleyfið
til þess að skrifa
{ Skólabla ðið .