Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 15

Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 15
-107 - I VERJUM manni er gefið í vöggugjöf þekkingarþrá og starfsgleði. Starfsgleðin veitir kjark til þess að lifa lífinu, en þekkingin er afleið- ing lífsbaráttunnar, afleiðing, sem geym- ifet og notast til nýrra átaka og nýrra sigra. Manninum er eiginlegt að heyja baráttu. Náttúran sér um samkeppni , og ef einhver stendur sig ekki, hlytur hann að dragast aftur úr. Mannfélagið er þó svo fjölbreytt, að hæfi einhverjum ekki þessi staða, þá finnur hann vafa- laust aðra sér betur hæfa og reynist duglegur og nýtur maður þar. Það er þvi mjög áríðandi fyrir hvern einstakl- ing að finna fyrir hvað hann er náttúr- aður og hafa síðan kjark og festu til að ná árangri í þeirri grein. Geri maður- inn þetta, fær hann tljótt undirtökin og verður öruggur og heilsteyptur, heldur fast við sfna sannfæringu, en fæst minna um tröllasögur og dægurþras. En sú skylda fylgir þessu sjálfstæði að fræðast og kanna hvern hlut til hlýt- ar, annars verður hver dómur út í hött, og maðurinn óverður sjálfs sín. Maður- inn ber því einn ábyrgð á sjálfum sér. Enginn stendur honum nær en hann sjálfur, og því aðeins getur hann veitt Öðrum, eigi hann gnótt sjálfur. Allt tal um það, að allir eiga að vera jafnir og eins, er þess vegna tómt kjaftæði út í bláinn. Það eina, sem allir eiga jafnt, er rétturinn til lífsins, þroska o^ namingju. Hverjum er eigin- legt að sá með smu lagi og uppsker í réttu hlutfalli við það. Mennirnir eru þjóðfélagið. Þjóðfélag með réttindum sínum og skyldum á því aðeins rétt á sér, sé það sniðið eftir þörfum þegna sinna allra. Þjóðfélagið má þannig hjálpa hverjum einstakling til þroska og jafnvel skerða frelsi hans litillega við það. Það er svo hvers og eins að kvarta, sé hann misrétti beittur eða óhóflega þrengt að honum. En þó hlýtur hver heilbrigt hugsandi maður að finna þörf heildarinnar til takmörkunar persónufrelsis og sætta sig við það. A þessum grundvelli hlýtur skólinn sem ríkisstofnun og skólaskylda að hvíla. Takmark skólans hlýtur að vera að þroska nemandann, auka honum skilning á sjálfum sér og umhverfi sinu og skila honum sem betri og þroskaðri mannL Þvi miður mistekst skólum okkar þetta að nokkru leyti og í sumum tilfellum að öllu leyti og kem ég þá að meginmáli þessarar greinar. Það sem einkennir æðri skóla lands- ins og þá ekki sízt menntaskóla, er, að þeir tileinka sér meira hið ytra borð námsefnisins, en siður hið lífræna og mannlega í þvi. Til þess,að nemandi, sem mottekur einhverja vizku, fái áhuga og skilning á gildi hennar, hlýtur hún að þurfa að snerta hann og reynslu hans persónulega. Fræðslan ma þvi alls ekki vera slitin í sundurlausa mola, sem eru óháðir hver öðrum, heldur verður að vera byggð á einhverju orsakasambandi, sem hverjum er eðlilegt að fást við, sem manni og tilfinningum gæddri veru, en ekki sem einskisnýtu íláti, sem ekk- ert mannlegt fagurt og háleitt hrærist með. Hver þekking, sem maðurinn öðl- ast, hvort sem hún er komin úr mennta- skóla eða skóla lífsins, verður hluti af honum sjálfum og leitast við að breyta honum. Ef þekkingin er lifandi, starf- ræn og eðlileg, verður nemandinn þetta allt sjálfur með tímanum, en ef þekk- ingin er uppskroppin, innihaldslaus fræði, sem ekkert eiga skylt við lifið, er hvorki hagkvæm til líkama eða sálar, þá hættir nemandinn að skilja tilgang- inn, verður örvæntingarfullur og svart- sýnn og þekkingarþrain og starfsgleðin eru liðinn draumur.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.